Morgunblaðið - 14.05.2019, Síða 28
14. maí hefði
Snædís Gunnlaugs-
dóttir orðið 67 ára.
Við félagar í Hann-
yrðaklúbbi Húsa-
víkur minnumst kærrar vinkonu
með söknuði og jafnframt þakk-
læti fyrir ógleymanlegar stundir.
Leiðir sumra okkar lágu fyrst
saman þegar Snædís og Sigurjón
fluttu til Húsavíkur og settust að
í Kaldbak. Fyrir einhverja tilvilj-
un sem að hluta er hulin þoku
gleymskunnar æxlaðist það svo
að fyrsta haust þeirra á Húsavík
var haldinn stofnfundur Hann-
yrðaklúbbs Húsavíkur og þar
með lagður grunnur að vináttu
sem haldist hefur í rúm 40 ár.
Eins og gengur breyttist sam-
setning hópsins í áranna rás – fé-
lagar komu og fóru.
Síðustu árin vorum við tvær
eftir af stofnfélögum, ég og Snæ-
dís, sem var að mörgu leyti límið í
hópnum. Hún var óþreytandi að
minna okkur á ef henni fannst
orðið fulllangt milli klúbba. Það
var jafn líklegt að einmitt hún
gleymdi klúbbnum, þangað til
hringt var í hana. Þá hafði þessi
eldhugi, sem hún var, ef til vill
gleymt sér við gluggatjaldasaum
eða húsgagnaviðgerðir eða garð-
vinnu eða bara gleymt sér því
hugurinn flögraði annað. Hún var
oft svolítið illa tengd við það sem
var að gerast í kringum hana og
leit hlutina ekki alltaf sömu aug-
um og samferðafólkið, það meðal
annars hafði þau áhrif að hún var
litríkur og skemmtilegur per-
sónuleiki, sem svo sannarlega
gerði lífið og umhverfið svo miklu
skemmtilegra og fallegra í eigin-
legri og óeiginlegri merkingu.
Þegar Hannyrðaklúbburinn
var nýstofnaður mætti Snædís
með peysu sem hún var að
prjóna. Peysan var eins og hönn-
uðurinn – litrík og glaðleg. Í
fyrstu klúbbum þekktumst við fé-
Snædís
Gunnlaugsdóttir
✝ Snædís Gunn-laugsdóttir
fæddist 14. maí
1952. Hún lést 22.
október 2018.
Bálför Snædísar
fór fram í kyrrþey.
lagar ekki mikið,
hönnuðurinn og
prjónakonan Snæ-
dís sat einbeitt við
að prjóna fyrri erm-
ina, hún jók fallega
út með jöfnu milli-
bili og skipti reglu-
lega um lit: Ermin
var smáröndótt og
víkkaði jafnt og
þétt og féll fallega
að handlegg þegar
hún var mátuð.
Þegar fram leið á veturinn
jukust kynnin, umræður urðu
fjörugri og ákafari. Komið var að
seinni erminni og enginn tími til
að telja lykkjur eða umferðir. Ég
man ekki um hvað var rætt en
erminni gleymi ég aldrei; hún
víkkaði í fulla vídd strax að lokn-
um snúningi og ef ég man rétt
voru á henni 3-4 rendur á móti ca
30 á þeirri fyrri. Því miður lauk
Snædís aldrei við peysuna en
hún sýndi okkur hana við hátíð-
leg tækifæri og við reyndum að
giska á hvaða umræðuefni til-
heyrði hverri rönd. Að sjálfsögðu
vorum við ekki sammála um það
frekar en svo margt annað.
Við vorum ekki vinkonur og
klúbbsystur til að vera sammála,
saumaklúbbarnir voru engar
hallelújasamkomur, fjarri því, og
oft á tíðum er ég hrædd um að
heimilisfólk hjá þeirri sem hélt
klúbbinn hverju sinni hafi átt
erfitt með að festa blund þegar
skoðanaskiptin og hlátrasköllin
stóðu sem hæst. Ég veit að þeir
hinir sömu eru í dag jafn þakk-
látir og við fyrir vináttuna og
gleðistundirnar sem við áttum
saman því það duldist engum
hvað þær hafa gefið okkur mikið
og hvers virði við erum hver ann-
arri.
Að leiðarlokum þökkum við
núverandi og fyrrverandi félagar
í Hannyrðaklúbbi Húsavíkur
samfylgdina og sendum fjöl-
skyldu og vinum innilegar sam-
úðarkveðjur. Minningar um
stórbrotna konu lifa með okkur
um ókomna tíð.
Fyrir hönd Hannyrðaklúbbs
Húsavíkur,
Regína Sigurðardóttir.
28 MINNINGARAfmælisminning
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Annast liðveislu við bókhaldslausnir
o.þ.h..
Hafið samband í síma 831-8682.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og
tek að mér
ýmis verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
í Glæsibæ
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL,
Glæsibær
Sími 7730273
Til sölu
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Tölvubíla hf.
verður haldinn í fundarsal Hreyfils á 6. hæð,
Fellsmúla 26, þriðjudaginn 28. maí, kl. 20.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Kosning stjórnar, skoðunarmanna
og löggilds endurskoðanda.
4. Önnur mál.
Reikningar félagsins afhentir við innganginn.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Vörubílastöðvarinnar Þróttar hf.
verður haldinn að Sævarhöfða12,
fimmtudaginn 30.5.2019
Dagskrá fundarins samkv. samþykktum
félagsins.
Vörubílastöðin Þróttur hf.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Gönguhópur kl. 10.15.
Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Vatnslitun kl. 13. Bíó í mið-
rými kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-
16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Brids kl. 12.30. Bónusbíllinn fer frá
Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-16. Bíó í matsal kl.
13.15. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt og 18
holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14:45-15.30.
Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30, fuglatálgun kl. 13, brids og kanasta kl. 13.
Bústaðakirkja Vorferð félagsstarfsins verður farin miðvikudaginn
15. maí kl. 13 frá Bústaðakirkju. Skráning og nánari upplýsingar eru
hjá Hólmfríði djákna og Ásbirni kirkjuhaldara í sima 5538500 og hægt
að senda Hólmfríði tölvupóst, holmfridur(hjá)kirkja.is
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.30.
Fella- og Hólakirkja Vorferð eldri borgara.starfsins, lagt af stað kl.
10 frá kirkjunni. Fullt er í ferðina en nánari upplýsingar í s. 5573280.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
boðið kl. 8.50. Listasmiðja opin kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Leikfimi kl.
10-11.45. Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11.45. Hádegismatur kl.
11.30. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Brids kl. 13-16. Enskunámskeið kl.
13-15. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Furugerði 1 Opin fjöliðja með leiðbeinanda frá kl. 10-16. Leikfimi kl.
11, hádegismatur kl. 11.30-12.30, ganga kl. 13, botsía kl. 14, kaffisala kl.
14.30-15.30, samsöngur kl. 15.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Karlaleikfimi Ásgarði kl.
12 fellur niður. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi gong Sjálandi
kl. 9. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Félagsvist í Jónshúsi kl. 20.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl.
9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna,
kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og
jafnvægisæfingar.
Grensáskirkja Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Verið velkomin!
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9, botsía kl. 9.30, málm/silfursmiði /
kanasta kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Hjúkrunarfræðingur kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl.
12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hraunsel Kl. 9 dansleikfimi, kl. 10 qi-gong, kl. 13 brids Sólvangs-
vegur 1, kl. 9 handmennt Hjallabraut 33, kl. 13 Fjölstofan.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, helgistund
kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Botsía kl. 10 í dag í Borgum og kl. 16 í Borgum. Helgistund
Grafarvogskirkju kl. 10.30 í dag og sundleikfimi með Brynjólfi í Grafar-
vogssundlaug kl. 13.30 í dag. Heimanámskennsla í Borgum kl. 16.30.
Minnum á kvikmyndasýningu á morgun í Borgum kl. 13. Velkomin.
Neskirkja Krossgötur kl. 13, Kristján Björnssson, Skálholtsbiskup,
fjallar um verkefni vígslubiskups á nýjum tímum. Kaffiveitingar.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15,
upplestur kl. 11-11.30, hádegisverður kl. 11.30, trésmiðja kl. 9-12, opin
listasmiðja án leiðbeinanda kl. 9-12 og 13-16, bókasafnshópur kl. 14,
kaffihúsaferð kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur
kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Skák kl. 13, allir velkomnir. Fyrsta ferð sumarsins;
Borgarfjörður – Dalir – Snæfellsnes 1.-2. júní nk., 2ja daga ferð á þetta
svæði. Skráning á feb@feb.is / síma 5882111. Innifalið í verði er akstur
í rútunni, gisting, kvöldmatur og morgunmatur í Stykkishólmi. Farar-
stjóri og leiðsögumaður Kári Jónasson. Skráning í allar aðrar ferðir
félagsins á feb@feb.is
Aðalfundur
Aðalfundur Vörubílstjórafélagsins Þróttar
verður haldinn í húsi félagsins að
Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 23. maí n.k.
og hefst kl. 19:00.
Dagskrá aðalfundar skv. 27. gr. laga
Vörubílstjórafélagsins Þróttar.
Stjórnin
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Er ég frétti um
andlát Kristínar
Óskarsdóttur komu
upp í huga mér sam-
verustundir okkar
forðum í Öskjuhlíðarskólanum.
Kristín heitin var þar einn af nem-
endum mínum er ég hóf tón-
menntarkennslu við skólann 1989.
Kristín var gædd mjög góðum
tónlistarhæfileikum, sem varð til
þess að hún mætti í tilboðstíma
hjá mér í tónlist. Þar söng hún af
mikilli innlifun, lék á ásláttarhljóð-
færi og dansaði. Hún var í essinu
sínu þegar hún samdi dansa við
tónverk mitt Töfratóna en það
varð til í samskiptum mínum við
kennara og bekkjarfélaga Kristín-
ar heitinnar. Það gaf mér mikið að
vinna með Kristínu Óskarsdóttur
og ég er þakklátur fyrir okkar
samverustundir. Kristín naut þess
að eiga góðan bakhjarl í fjölskyldu
sinni er studdi hana vel á lífsleið-
inni. Ég trúi því, að hún njóti nú
tónlistar á himnum og kveð hana
með vísu er við sungum mikið:
Kristín
Óskarsdóttir
✝ Kristín Óskars-dóttir fæddist
16. júlí 1981. Hún
lést 24. apríl 2019.
Útförin fór fram
6. maí 2019.
Ég vil hald’í þína hönd
horfa inni í augað
bjarta.
Fara um hin fögur lönd,
hlust́á frið í mínu hjarta.
Bjóða góðan, góðan
dag.
Gera það með gleði-
brag.
Viltu vera vinur minn.
Ég skal vera vinur þinn.
(Ól. B. Ól.)
Hvíl þú í friði,
kæra góða Kristín mín. Sendi fjöl-
skyldu hennar samúðarkveðjur.
Ólafur Beinteinn Ólafsson.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minningar-
grein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar