Morgunblaðið - 14.05.2019, Side 30
Mímis en ákveðið var að leggja það
niður. Hann fékk greiddan sinn hlut
og ákvað að fara í land.
Fljótlega fékk hann stöðu sem vél-
stjóri í Hraðfrystihúsinu í Hnífsdal,
drengurinn vann í tuttugu tíma törn-
um og svaf fjóra tíma. Kalli var með
afbrigðum fljótur að beita og var leit-
un að annarri eins hamhleypu. Tvisv-
ar tók hann þátt í beitningarkapp-
mótum í Alþýðuhúsinu á Ísafirði og
tók fyrstu verðlaun í bæði skiptin.
Líkt og svo margir ungir menn í ís-
lenskum sjávarþorpum byrjaði Kalli
ungur til sjós og kom fljótt í ljós að
sjómennskan átti vel við hann. Árið
1940 fór hann suður til Reykjavíkur í
Stýrimannaskólann. Þar var hann í
nokkra mánuði og tók það sem þá
kallaðist minna fiskimannapróf, en
það gaf skipstjórnarréttindi á 120
tonna báta. Kalli var ágætur náms-
maður, sérstaklega lá stærðfræði vel
fyrir honum og þar skaraði hann fram
úr. Hann útskrifaðist úr skipstjórn-
arnáminu með fyrstu einkunn.
Kalli átti farsælan skipstjórnarferil
en lengstan tíma var hann á Mími eða
alls 25 ár. Eftir að síldin fór breyttist
margt í útgerð á Íslandi. Kalli hafði
verið meðeigandi í útgerðarfyrirtæki
K
arl Kristján Sigurðsson
fæddist 14. maí 1918 á
Ísafirði, nánar tiltekið í
húsi sem kallast Róma-
borg og tilheyrir í dag
Sundstræti. Þegar Kalli var á fyrsta
ári flutti fjölskyldan út í Hnífsdal en
þar hefur hann búið stærstan hluta
ævi sinnar.
Karl er kominn af harðduglegu al-
þýðufólki sem hafði ekki mikið á milli
handanna. Sex daga vikunnar var
borðaður fiskur í bæði mál, á sunnu-
dögum fékk heimilisfólkið saltkjöt til
hátíðabrigða. Stundum fundu krakk-
arnir krækling og kúskel í fjörunni.
Ekkert fór til spillis; þó að slíkt sjáv-
arfang væri ekki í hávegum haft á
þessum tímum var farið með það
heim, það soðið og borðað. Á haustin
tíndu krakkarnir þurran hrossaskít-
inn á Búðatúninu og var hann síðan
notaður til að drýgja eldiviðinn yfir
veturinn. Mjólk var munaðarvara.
Þegar Kalli er inntur eftir ástæðum
langlífisins nefnir hann gjarnan það
að hann hafi fengið kaffi á pelann í
bernsku.
Kalli byrjaði snemma að vinna og
leggja til heimilisins. Þegar hann var
aðeins tíu ára fór hann sem smali að
Eyri við Seyðisfjörð. Í þá daga var
fært frá, eins og það kallaðist. Lömb-
in voru tekin undan ánum, þær rekn-
ar í haga yfir daginn og mjólkaðar í
kvíum kvölds og morgna. Það er erfitt
að setja sig í spor lítils, tíu ára drengs
við þessar aðstæður. Þeir voru tveir
smalarnir, vöknuðu klukkan sex á
morgnana, ráku ærnar í hagann og
sátu þar yfir þeim allan daginn. Undir
kvöld komu þeir heim með kindahóp-
inn svo lítill tími hefur gefist til leikja.
Á Eyri bjó ekkja með börn sín. Á
heimilinu voru einnig kaupakonur og
sláttumenn. Auk fyrrgreindra var á
heimilinu ung stúlka frá Hnífsdal.
Stúlkan sú þurfti ekki að vinna frá
morgni til kvölds líkt og smalarnir
heldur virtist hlutverk hennar eink-
um fólgið í því að vera heimasætunum
til skemmtunar. Ekki grunaði tíu ára
drenginn á þessari stundu að þarna
væri komin tilvonandi eiginkona
hans, Kristjana Hjartardóttir.
Fjórtán ára fór Kalli að vinna við
beitningu. Vaktafyrirkomulagið yrði
seint samþykkt í dag en fjórtán ára
en því starfi sinnti hann í tæplega 30
ár. Auk vélstjórastöðunnar starfaði
hann sem matsmaður og einnig sem
vigtarmaður.
Kalli hefur alla tíð verið vel á sig
kominn líkamlega. Sem ungur maður
var hann kattliðugur, stundaði glímu
um tíma og var vel liðtækur í fótbolta.
Í dag eru árin orðin hundrað og
eitt. Þó að sjón og heyrn hafi daprast
nokkuð er Kalli ótrúlega vel á sig
kominn, hann er stálminnugur og
gildir það jafnt um gamla daga sem
aðra. Það sem ef til vill er þó eftirtekt-
arverðast er lífsviðhorfið – sáttin sem
einkennir allt hans fas. Biturð og nei-
kvæðni hefur einfaldlega ekki verið
úthlutað plássi í hans tilveru því þar
er jákvæðnin, glaðværðin og elskan
alltumlykjandi.
Fjölskylda
Eiginkona Karls var Kristjana
Hjartardóttir, f. 1.7. 1918, d. 30.8.
2013, húsfreyja og verkakona. For-
eldrar hennar voru hjónin Hjörtur
Karl Sigurðsson, fyrrverandi skipstjóri – 101 árs
Í Hnífsdal Karl, efst til vinstri,
ásamt bræðrum sínum, Salómon
og Lárusi, og foreldrum sínum.
Glaðværðin alltumlykjandi
Hjónin Kristjana og Karl.
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
70 ára Elín er fædd í
Ytri-Njarðvík en flutti til
Hafnarfjarðar tíu ára
og býr þar. Hún er hætt
að vinna en starfaði við
verslun og þjónustu og
við umönnun á Sól-
vangi og Hrafnistu.
Maki: Einar Sigursteinsson, f. 1950, kerf-
isfræðingur hjá Isavia.
Börn: Sigrún Lilja, f. 1967, Þórdís Tinna,
f. 1968, d. 2008, Bjarni Þór, f. 1973, Drífa
Huld, f. 1974, og Daði Rúnar, f. 1991.
Barnabörn eru 8 og langömmubörn eru
4.
Foreldrar: Kristófer Þorvarðarson, f.
1926, d. 1993, verkamaður í Njarðvík, og
Sigrún Halla Eiríksdóttir, f. 1927, d. 2016,
verkakona í Njarðvík og Hafnarfirði.
Elín
Kristófersdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér hentar oft að vera einn með
sjálfum þér því þú veist að einvera er ekki
sama og einsemd. Þú færð upplýsingar
sem þú verður að halda fyrir þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekki alltaf svo að besta
lausnin sé sú sem liggur í augum uppi. En
ekki er allt sem sýnist í nýju ástarsam-
bandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst þú vera undir smásjá
yfirmanna þinna og þér líður illa þess
vegna. Einhver daðrar við þig og þér líkar
það ekki illa.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt sjá að eitt er um að tala
og annað í að komast. Einföld gönguferð í
fjöru eða á fjall getur verið allra meina
bót.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þú getir verið sveigjanleg/ur
þýðir það ekki að þú eigir að láta stjórn-
ast af tilfinningum annarra. Vinna þín er
líka áhugamál þitt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert friðsæl/l og í góðu jafnvægi
og hefur því góð áhrif á alla í kringum þig.
Ekki er gott að taka ákvarðanir í dag sem
lúta að íbúðaskiptum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ræktaðu tilfinningar þínar, þar er þitt
ríkidæmi. Reyndu að koma eins miklu í
verk og þú getur áður en sumarið kemur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eins og það er gott, þegar
menn hjálpast að, getur það stundum
orðið til trafala, þegar of margir koma að
verki. Vertu með fólki sem hvetur þig
áfram.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú getur lært ýmislegt af öðr-
um í dag. Athygli þín er skörp og ekkert
fer fram hjá þér. Fjölskyldan er þér allt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óreiða og ruglingur þarf ekki
endilega alltaf að vera af hinu slæma.
Gefðu þér tíma til þess að skipuleggja
hlutina og þá muntu ná mun betri árangri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að söðla um og finna
orku þinni heppilegasta farveginn, að öðr-
um kosti áttu á hættu að vinna allt fyrir
gíg. Slökktu á gemsanum – þá hefurðu
meiri tíma.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mannlegu samskiptin sitja í fyrir-
rúmi en þú þarft að gæta þess að þau
komi ekki niður á starfi þínu. Ekki hella
olíu á eldinn í ástarsambandi.
60 ára Sigríður er
fædd í Ytri-Njarðvík,
ólst upp í Keflavík, bjó
lengi á Suðureyri en
býr núna í Ytri-
Njarðvík. Hún hefur
verið dagmóðir frá
1996, en vann ýmis
störf fram að því.
Maki: Ólafur Reynir Svavarsson, f. 1952,
fyrrverandi sjómaður.
Börn: Svavar, f. 1981, Friðrik Már, f. 1983,
og Róbert Ólafur, f. 1988. Barnabörn eru
6.
Foreldrar: Jón Karl Sigurðsson, f. 1937,
d. 1975, sjómaður, síðast í Keflavík, og
Guðrún Halldóra Ólöf Ólafsdóttir
Benitez, f. 1939, d. 2010, húsmóðir og
verkakona í Keflavík.
Sigríður Eiríka
Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is