Morgunblaðið - 14.05.2019, Qupperneq 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Pepsi Max-deild kvenna
HK/Víkingur – Selfoss............................. 0:1
Keflavík – Breiðablik ............................... 0:3
Fylkir – KR............................................... 2:1
Staðan:
Breiðablik 3 3 0 0 9:1 9
Valur 2 2 0 0 8:2 6
Stjarnan 2 2 0 0 2:0 6
Þór/KA 3 2 0 1 7:6 6
Fylkir 3 2 0 1 4:4 6
HK/Víkingur 3 1 0 2 1:2 3
ÍBV 3 1 0 2 3:5 3
Selfoss 3 1 0 2 2:5 3
KR 3 0 0 3 1:6 0
Keflavík 3 0 0 3 1:7 0
Pepsi Max-deild karla
Staðan:
Breiðablik 3 2 1 0 7:3 7
ÍA 3 2 1 0 7:4 7
FH 3 2 1 0 6:3 7
Fylkir 3 1 2 0 6:3 5
KR 3 1 2 0 5:2 5
Stjarnan 3 1 2 0 3:2 5
KA 3 1 0 2 4:6 3
Víkingur R. 3 0 2 1 5:7 2
Grindavík 3 0 2 1 3:5 2
Valur 3 0 1 2 4:6 1
HK 3 0 1 2 2:5 1
ÍBV 3 0 1 2 2:8 1
Danmörk
Bröndby – Nordsjælland ........................ 2:0
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
fyrir Bröndby.
Köbenhavn 82, Midtjylland 71, OB 51,
Esbjerg 50, Bröndby 46, Nordsjælland 40.
Tvær umferðir eftir, Köbenhavn er meist-
ari.
Svíþjóð
Norrköping – Gautaborg........................ 1:2
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn fyrir Norrköping. Alfons Sampsted var
ekki í leikmannahópi liðsins.
Staða efstu liða:
Gautaborg 8 5 1 2 18:10 16
Häcken 8 4 2 2 11:5 14
Malmö 7 4 2 1 12:7 14
Hammarby 8 4 2 2 14:12 14
Östersund 8 3 4 1 10:7 13
Djurgården 7 3 3 1 11:7 12
Elfsborg 7 3 3 1 13:10 12
Noregur
Strömsgodset – Viking ........................... 0:0
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn fyrir Viking. Axel Óskar Andrésson er
frá keppni vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Molde 8 6 1 1 18:6 19
Odd 7 5 1 1 11:6 16
Bodø/Glimt 7 4 2 1 16:10 14
Vålerenga 8 4 2 2 15:10 14
Kristiansund 8 4 1 3 8:8 13
Viking 7 3 2 2 9:8 11
Spánn
B-deild:
Málaga – Real Oviedo ............................. 3:0
Diego Jóhannesson lék allan leikinn fyr-
ir Real Oviedo.
KNATTSPYRNA
3. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ekki þarf að eyða mörgum orðum í
það sem hefur komið mest á óvart í
fyrstu þremur umferðum úrvals-
deildar karla í knattspyrnu. Slæm
byrjun Íslandsmeistara Vals er það
sem stendur uppúr þegar úrslit og
staða deildarinnar eru skoðuð.
Valsmenn náðu naumlega jafntefli
gegn Víkingi, töpuðu fyrir KA á Ak-
ureyri, og biðu síðan sinn fyrsta
ósigur á heimavelli í 25 leikjum í
deildinni þegar nýliðar Skagamanna
komu, sáu og sigruðu þá á Hlíðar-
enda á laugardagskvöldið. Þeir eru
með eitt stig eftir leiki gegn þremur
liðum sem reiknað hefur verið með
að verði um eða fyrir neðan miðja
deild.
„Krísa á Hlíðarenda“ og fleira í
þeim dúr hefur verið í umræðunni
að undanförnu. Vissulega hefur
margt verið að hjá Valsliðinu í þess-
um fyrstu leikjum, ef miðað er við
gengi þess undanfarin tvö ár og liðs-
auka sem það fékk í vetur. Það er
hinsvegar rétt að minna á að ein-
ungis þrjár umferðir eru búnar og ef
horft er til síðasta tímabils unnu
Valsmenn einn af fyrstu fimm leikj-
um sínum. Ólafur Jóhannesson og
Sigurbjörn Hreiðarsson þekkja því
mæta vel hvað það er að byrja tíma-
bil á lítilli stigasöfnun. Þeir voru
samt komnir á toppinn í áttundu
umferð í fyrra og stóðu uppi sem
meistarar annað árið í röð. Gefum
þeim aðeins meira svigrúm áður en
við förum að tala um alvörukrísu í
þeirra herbúðum.
Góð byrjun Skagamanna er það
sem að öðru leyti hefur vakið mesta
athygli í byrjun móts. Það sást í vet-
ur að nýliðarnir frá Akranesi myndu
mæta sterkir til leiks og sjö stig
segja allt um það. Viðureign þeirra
gegn FH á Akranesvelli annað kvöld
verður heldur betur áhugaverð en
þar mætast tvö lið sem þegar eru
komin með 7 stig í sarpinn.
Breiðablik trónir þó á toppnum
með 7 stig. Blikar rifu sig heldur
betur upp eftir að hafa náð naum-
lega jafntefli við HK og unnu sann-
færandi sigur á Víkingum.
Markheppni miðvörðurinn
Miðvörðurinn Óttar Bjarni
Guðmundsson er leikmaður 3. um-
ferðar hjá Morgunblaðinu fyrir
frammistöðu sína með ÍA í sigrinum
á Val á Hlíðarenda, 2:1.
Óttar kom til ÍA frá Stjörnunni
fyrir þetta tímabil og hafði aldrei
náð að skora mark í 34 leikjum í
efstu deild, sautján með Stjörnunni
og 17 með Leikni úr Reykjavík.
Hann hefur heldur betur breytt því.
Óttar, sem hefur verið í stóru hlut-
verki í varnarleik ÍA í fyrstu leikjum
tímabilsins, hitaði upp með því að
skora í 3:0 sigri á Augnabliki í 32ja
liða úrslitum bikarkeppninnar og er
síðan búinn að skora jöfnunarmark
ÍA gegn Fylki í uppbótartíma í 2.
umferð Pepsi Max-deildarinnar, og
svo skallamarkið gegn Val.
Óttar er 29 ára gamall og var síð-
ustu tvö ár aðallega varamaður fyrir
miðverði Stjörnunnar, Daníel Lax-
dal og Brynjar Gauta Guðjónsson.
Fram að því lék hann með Leikni og
var lykilmaður í ævintýri Breið-
holtsliðsins þegar það vann sér sæti
í úrvalsdeildinni haustið 2014 og lék
þar í fyrsta og eina skiptið árið 2015.
Kolbeinn þakkaði traustið
Kolbeinn Þórðarson sóknar-
maður úr Breiðabliki var besti ungi
leikmaðurinn í 2. umferð deildar-
innar að mati Morgunblaðsins. Kol-
beinn kom inná sem varamaður í
fyrstu tveimur leikjum Blika, skor-
aði í 2:0 sigri í Grindavík og lagði
upp jöfnunarmark gegn HK í lok
uppbótartíma, 2:2, í annarri umferð.
Gegn Víkingi á föstudagskvöldið var
Kolbeinn í fyrsta sinn í byrjunarliði
Ágústs Þórs Gylfasonar og þakkaði
traustið með því að skora tvö mörk
og eiga prýðisleik sem skilaði hon-
um tveimur M-um í einkunn hjá
okkur.
Kolbeinn er 19 ára gamall, uppal-
inn hjá Breiðabliki, og spilaði tólf
leiki í deildinni í fyrra, sex þeirra í
byrjunarliðinu. Í vor hafði hann ekki
náð að skora mark í 19 leikjum í
efstu deild en hefur heldur betur
bætt úr því og er einn af fjórum leik-
mönnum sem hafa skorað 3 mörk í
fyrstu þremur umferðunum.
Halldór Orri Björnsson úr FH
er einn þeirra fjögurra sem hafa
skorað 3 mörk í deildinni en hann
gerði tvö mörk í sigrinum á KA, 3:2.
Halldór hafði ekki náð að skora
mark fyrir FH í deildinni á tveimur
tímabilum, en er nú með þrjú mörk í
síðustu tveimur. Hann er marka-
hæstur í sögu Stjörnunnar í efstu
deild með 56 mörk, og einnig sá
þriðji leikjahæsti með 146 leiki.
Hallgrímur Mar Steingrímsson
úr KA og Nikolaj Hansen úr Víkingi
eru hinir tveir sem hafa skorað þrjú
mörk. Þeir hafa hvor um sig skorað í
öllum þremur leikjum sinna liða.
Fjórða umferð deildarinnar fer
fram í vikunni, fjórir leikir annað
kvöld og tveir þeir síðustu á fimmtu-
dagskvöld. HK mætir ÍBV í upp-
gjöri tveggja neðstu liðanna í Kórn-
um og stórleikurinn er tvímælalaust
viðureign ÍA og FH á Akranesvelli
annað kvöld. Víkingur tekur á móti
Stjörnunni á Eimskipsvelli Þróttar
og KA fær Breiðablik í heimsókn
norður. Á fimmtudagskvöld leikur
Grindavík við KR og Fylkir við Val.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Guðmundur Kristjánsson, FH 4
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 4
Björn Daníel Sverrisson, FH 3
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 3
Jónatan Ingi Jónsson, FH 3
Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki 3
Óskar Örn Hauksson, KR 3
Sam Hewson, Fylki 3
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 3
Sölvi Geir Ottesen, Víkingi 3
Alexander H. Sigurðarson, Breiðabliki 2
Almarr Ormarsson, KA 2
Arnar Már Guðjónsson, ÍA 2
Arnar Freyr Ólafsson, HK 2
Aron Snær Friðriksson, Fylki 2
Aron Jóhannsson, Grindavík 2
Björn Berg Bryde, HK 2
Callum Williams, KA 2
Daði Ólafsson, Fylki 2
Daníel Hafsteinsson, KA 2
Einar Karl Ingvarsson, Val 2
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 2
Eyjólfur Héðinsson, Stjörnunni 2
ÍA 18
KR 17
FH 16
Breiðablik 15
KA 15
Víkingur R.14
Fylkir 13
Stjarnan 12
HK 12
Grindavík 10
Valur 9
ÍBV 8
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Aron Snær Friðriksson
Fylki
Björn Daníel
Sverrisson
FH
Höskuldur Gunnlaugsson
Breiðabliki
Aron Jóhannsson
GrindavíkHilmar Árni
Halldórsson
Stjörnunni
Halldór Orri
Björnsson
FH
Tryggvi Hrafn
Haraldsson
ÍA (2)
Finnur Orri
Margeirsson
KR
Óttar Bjarni
Guðmundsson
ÍA
Kolbeinn Þórðarson
Breiðabliki
Marcus
Johansson
ÍA
3. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
2
2
Finnur Orri Margeirsson, KR 2
Guðjón Baldvinsson, Stjörnunni 2
Gunnar Þór Gunnarsson, KR 2
Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 2
Halldór Smári Sigurðsson, Víkingi 2
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 2
Höskuldur Gunnlaugsson, Breiðabliki 2
Júlíus Magnússon, Víkingi 2
Kennie Chopart, KR 2
Logi Tómasson, Víkingi 2
Marcus Johansson, ÍA 2
Martin Rauschenberg, Stjörnunni 2
Matt Garner, ÍBV 2
Ólafur Örn Eyjólfsson, HK 2
Pálmi Rafn Pálmason, KR 2
Rick ten Voorde, Víkingi 2
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 2
Víðir Þorvarðarson, ÍBV 2
Er krísa á Hlíðarenda?
Valsmenn þekkja vel að byrja Íslandsmótið illa Frískir nýliðar á Akranesi
Óttar Bjarni besti leikmaður 3. umferðar Kolbeinn besti ungi leikmaðurinn
Morgunblaðið/Ómar
Skoraði Óttar Bjarni Guðmundsson
hefur leikið vel í vörn ÍA og að auki
skorað mikilvæg mörk fyrir liðið.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 20. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105, kata@mbl.is
Blaðið verður með góðum
upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta,
sumarblómin, sumar-
húsgögn og grill ásamt
girnilegum uppskriftum.
Garðar &grill
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 24. maí
SÉRBLAÐ