Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Það er gaman að sjá hversu
fljót Dagný Brynjarsdóttir hefur
verið að stimpla sig aftur inn í lið
Orlando Pride í Bandaríkjunum.
Þegar ég tók viðtal við hana í
febrúar talaði hún um að geta
vonandi farið að spila 90 mín-
útna leiki í júní, en verkir í
mjaðmagrind höfðu þá tafið fyrir
henni á leið aftur á fótboltavöll-
inn eftir að hafa átt barn í fyrra.
Dagný var því á undan áætlun
þegar hún lék um helgina sinn
fyrsta 90 mínútna leik síðan
haustið 2017. Hún gerði gott bet-
ur og skoraði í 3:1-sigri. „Því
miður“ er enn langur tími fram
að næsta mótsleik íslenska
landsliðsins, þegar undankeppni
EM hefst í lok ágúst, en það er
gott að sjá einn lykilleikmanna
liðsins vera að snúa aftur.
Ég segi „því miður“ vegna
þess að auðvitað hefði ég viljað
að næstu leikir íslenska liðsins
væru leikir á HM í Frakklandi í
júní. Ég sá viðtal við Dagnýju fyr-
ir helgi þar sem hún lýsti því ein-
mitt hvílík vonbrigði það hefðu
verið að komast ekki á HM. Að
það hefði í fyrstu hreinlega verið
áfall að komast að því að hún
ætti von á barni, því Ísland hefði
átt svo góða möguleika á að
komast á HM og að hún tryði því
enn í dag að liðið hefði komist
þangað ef hún hefði verið með.
Hún gat þess þó að vissulega
væri hún í skýjunum í dag, með
Brynjar litla á kantinum.
En já, maður þarf sem sagt að
finna sér annað lið til að halda
með þegar HM hefst 7. júní. Áður
en íslenska karlalandsliðið tók
upp á því að komast á HM í Rúss-
landi í fyrra hélt ég alltaf með
hollenska landsliðinu á heims-
meistaramótum karla. Það er
orðinn vænlegur kostur að velja
líka þær appelsínugulu á HM
kvenna, eftir uppgang Evrópu-
meistaranna síðustu ár.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Klukkan 18.30 í kvöld verður flaut-
að til fyrsta úrslitaleiks Hauka og
Selfoss um Íslandsmeistaratitilinn í
handknattleik karla á heimavelli
Hauka, Schenker-höllinni á Ásvöll-
um í Hafnarfirði. Haukar luku
rimmu sinni við ÍBV á laugardaginn
í fimmtu viðureign liðanna. Selfoss-
liðið hefur hinsvegar haft rúma viku
til þess að búa sig undir úrslitaleik-
ina eftir að hafa lagt Valsmenn í
þremur hörkuleikjum.
Selfoss hefur farið taplaust í
gegnum úrslitakeppnina til þessa.
Liðið hefur unnið alla leiki sína
fimm. Deildarmeistarar Hauka hafa
fengið að hafa meira fyrir sæti sínu
í úrslitum. Þeir lögðu Stjörnuna
með tveimur vinningum gegn einum
og ÍBV með þremur sigrum í fimm
leikja rimmu. Hvort það skiptir máli
þegar á hólminn er komið að annað
liðið hefur fengið rúmlega vikuhvíld
frá leikjum meðan hitt lék síðast
fyrir þremur sólarhringum er erfitt
að segja til um. Tjörvi Þorgeirsson,
fyrirliði Hauka, sagði í samtali við
Morgunblaðið eftir sigurinn á ÍBV í
oddaleiknum á laugardaginn að það
skipti ekki öllu máli þótt stutt væri
á milli leikjanna í undanúrslitum og
úrslitum.
Haukar eru sennilega með best
skipaða hópinn enda ekki deildar-
meistarar fyrir ekki neitt. Varn-
arleikur er aðal liðsins auk mark-
vörslu, hraðaupphlaupa og hinnar
margumtöluðu seinni bylgju.
Selfoss hefur hinsvegar á að
skipa skemmtilegasta sóknarliði ís-
lensks handknattleiks um þessar
mundir með ungstirnin Hauk Þrast-
arson og Elvar Örn Jónsson í aðal-
hlutverki, mennina sem léku hina
feikisterku Valsvörn grátt hvað eft-
ir annað í undanúrslitum. Besta
varnarlið Olís-deildarinnar mætir
því besta sóknarliði deildarinnar í
úrslitum. Er þetta þá ekki bara
uppskrift á bráðskemmtilega úr-
slitaleiki? Vafalaust verður hraðinn
mikill í leikjunum og hætt er við að
það verði á kostnað varnarleiksins í
einhverjum mæli. Þó verður að telj-
ast sennilegt að úr hraðanum dragi
þegar á rimmuna líður enda er gert
ráð fyrir að tíu daga líði frá fyrsta
leik í kvöld og þar til sá fimmti
verður háður, komi á annað borð til
hans.
Annar leikur liðanna fer fram á
Selfossi á föstudagskvöld, þriðja
viðureign á sunnudaginn á heima-
velli Hauka og síðan er reiknað með
fjórða leik á miðvikudaginn í næstu
viku. Oddaleikur, komi til hans, fer
fram á heimavelli Hauka annan
föstudag.
Unnu báða leikina í deildinni
Haukar höfðu tak á Selfoss-liðinu
á keppnistímabilinu í Olís-deildinni í
vetur og unnu þeir báða leiki lið-
anna. Sá fyrri fór fram á heimavelli
Hauka 12. nóvember og lauk með
fjögurra marka öruggum sigri
heimamanna, 30:26. Hinn 12. mars
mættu leikmenn Hauka í Hleðslu-
höllina á Selfossi og unnu með
tveggja marka mun, 29:27, eftir að
hafa verið tveimur mörkum undir
að loknum fyrri hálfleik, 15:13.
Þegar upp var staðið frá deild-
arkeppninni voru liðin jöfn að stig-
um, hvort með 34 stig eftir 22 leiki.
Eftir því sem næst verður komist
eru liðin eins vel búin undir leikina
og kostur er á. Patrekur Jóhannes-
son, þjálfari Selfoss, sagði við Morg-
unblaðið í gær að hann gæti teflt
fram sama liði og í undanförnum
leikjum í úrslitakeppninni. Allar ka-
nónur liðsins væru tilbúnar og biðu
þess aðeins að blásið væri til leiks.
Svipaða sögu er að segja af liði
Hauka. Brynjólfur Snær Brynjólfs-
son lék ekki með liðinu í oddaviður-
eigninni við ÍBV á laugardaginn
vegna meiðsla. „Staðan verður tekin
á Binna fyrir leik á morgun. Annars
eru allir klárir,“ sagði Gunnar í
svari fyrir fyrirspurn Morgunblaðs-
ins.
Fremsta sóknarliðið sækir
besta varnarliðið heim
Tvö fremstu lið landsins hefja í kvöld kapphlaupið að Íslandsbikarnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Barátta Atli Ævar Ingólfsson, línumaður Selfoss, í harðri baráttu við Daníel Þór Ingason og Ásgeir Örn Hall-
grímsson, leikmenn Hauka, í leik liðanna í deildinni í mars. Það verður ekkert gefið eftir í leikjum liðanna.
Körfuknattleiksliði KR í kvenna-
flokki barst mikill liðsstyrkur í gær
þegar landsliðskonan Hildur Björg
Kjartansdóttir skrifaði undir eins
árs samning við félagið.
Hildur Björg, sem er 24 ára göm-
ul, flytur þar með frá Spáni en hún
hefur leikið þar undanfarin tvö ár
ár, fyrst hjá Leganés og síðan með
Celta á nýliðnu tímabili. Liði Celta
gekk vel á leiktíðinni og komst m.a.
í úrslitaleiki um sæti í A-deildinni.
Hildur Björg lék stórt hlutverk hjá
liðinu enda segist hún hafa bætt sig
mikið sem körfuknattleikskona á
síðustu misserum.
„Mig langar til þess að aðstoða
KR-liðið við að halda áfram að
byggja ofan á það góða starf sem
unnið hefur verið innan deildar-
innar með kvennaliðið,“ sagði Hild-
ur í samtali við Morgunblaðið. Hún
væntir þess að KR-liðið geti veitt
þreföldum meisturum Vals enn
meiri keppni á næsta keppnis-
tímabili og ætlar að leggja sitt lóð á
vogarskálina í þeim efnum. „Ég er
viss um það að við eigum góða
möguleika á að gera góða hluti.“
KR verður fyrsta liðið hér á landi
sem Hildur Björg leikur með fyrir
utan uppeldisfélagið Snæfell. Hún
ólst upp í Stykkishólmi og lék með
Snæfelli allt þar til hún fór til náms
í Bandaríkjunum. Hildur Björg
skrifaði undir samning við Breiða-
blik fyrir tveimur árum. Áður en
kom að því að hún færi að leika með
liði Blika gekk hún til liðs við Lega-
nés á Spáni.
„Mér líst vel á að ég geti fallið vel
inn í leikmannahópinn hjá KR og
þann leikstíl sem liðið leikur,“ sagði
körfuknattleikskonan Hildur Björg
Kjartansdóttir í gær. iben@mbl.is
Vill aðstoða KR í
keppninni við Val
Morgunblaðið/Ívar
Öflug Hildur Björg Kjartansdóttir
leikur með KR á næsta vetri.