Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
HANDBOLTI
Austurríki
Undanúrslit, annar leikur:
West Wien – Alpla Hard ..................... 29:22
Viggó Kristjánsson skoraði 8 mörk fyrir
West Wien, Ólafur Bjarki Ragnarsson 5 og
Guðmundur Hólmar Helgason 1.
Staðan er jöfn, 1:1.
Frakkland
JL Bourg – Nanterre .......................... 75:70
Haukur Helgi Pálsson lék í 29 mínútur
fyrir Nanterre,skoraði ekki stig, tók 3 frá-
köst og átti 2 stoðsendingar.
Argentína
Mercedes – Regatas ............................ 99:78
Ægir Þór Steinarsson skoraði 8 stig fyr-
ir Regatas og átti 2 stoðsendingar.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Toronto – Philadelphia ........................ 92:90
Toronto sigraði 4:3 og mætir Milwaukee í
úrslitum.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Origo-völlur: Valur – Stjarnan ............ 19.15
Mjólkurbikar kvenna, 2. umferð:
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Haukar ..... 19
Kaplakriki: FH – ÍA.................................. 19
HANDKNATTLEIKUR
Fyrsti úrslitaleikur karla:
Schenker-höll: Haukar – Selfoss ........ 18.30
Í KVÖLD!
Viggó Kristjáns-
son átta góðan
leik með West
Wien í gærkvöldi
þegar liðið vann
Alpla Hard,
29:22, í annarri
viðureign lið-
anna í undan-
úrslitum austur-
rísku 1. deildar-
innar í hand-
knattleik. Viggó skoraði 8 mörk,
Ólafur Bjarki Ragnarsson 5 og
Guðmundur Helgason 1. West Wien
jafnaði metin í rimmunni 1:1.
Sjö marka
heimasigur
Viggó
Kristjánsson
KEFLAVÍK/KÓRINN/
ÁRBÆR
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bjarni Helgason
Guðmundur Hilmarsson
Íslands- og bikarmeistarar Breiða-
bliks unnu sannfærandi 3:0-útisigur
á Keflavík í 3. umferð úrvalsdeildar
kvenna í fótbolta í gærkvöldi, Pepsi
Max-deildinni. Breiðablik er því
með fullt hús stiga og byrjar titil-
vörnina af krafti. Staðan í hálfleik
var 1:0, en Breiðablik hefði getað
skorað mun fleiri mörk í hálf-
leiknum. Hvað eftir annað skapaði
liðið sér fín færi, en illa gekk að
hitta á markið.
Um leið og Agla María Alberts-
dóttir skoraði fyrsta markið á 38.
mínútu var hins vegar ljóst í hvað
stefndi. Hildur Antonsdóttir og
Berglind Björg Þorvalsdóttir bættu
við mörkum í seinni hálfleik og var
sigurinn aldrei í hættu. Það var við
hæfi að Agla María skoraði fyrsta
markið, því hún var stórhættuleg
allan leikinn. Keflvíkingum leið illa
þegar hún var með boltann og var
hún ófeimin við að sækja á markið.
Agla lagði einnig upp annað markið
og spilaði í heild glimrandi vel, þótt
hún hafi ekki nýtt vítaspyrnu í
seinni hálfleik. Agla hefur sjaldan
eða aldrei leikið eins vel og í upp-
hafi leiktíðar.
Alexandra Jóhannsdóttir og
Hildur Antonsdóttir stýrðu miðj-
unni þar fyrir aftan og Berglind
Björg Þorvalsdóttir virðist alltaf
skora. Marki Breiðabliks var sjald-
an ógnað og náði Keflavík ekki að
skapa sér gott færi í leiknum.
Sveindís Jane Jónsdóttir var frá
vegna meiðsla og vantaði því meiri
ógn fram á við hjá Keflavíkur-
konum. Keflavík gat helst þakkað
Katrínu Hönnu Hauksdóttur í
markinu fyrir að mörkin urðu ekki
fleiri. Hún varði oft á tíðum afar
vel og þar á meðal vítaspyrnuna
frá Öglu.
Spilamennska Breiðabliks er
framhald á síðasta sumri. Með
stórhættulega leikmenn fram á við
sem alltaf valda usla, sterka miðju
og örugga vörn. Þar fyrir aftan
hefur Sonný Lára Þráinsdóttir
stundum lítið að gera í markinu.
Keflavík er enn án stiga, en liðið
varðist þokkalega stóran hluta leiks
og getur tekið eitthvað jákvætt út
úr erfiðu verkefni. Niðurstaða
Keflavíkur ræðst ekki á leikjum við
lið eins og Breiðablik, en hægt er
að nýta leik gærkvöldsins í fram-
haldið.
Rapp var á skotskónum
Fyrsti sigur Selfoss í deildinni
kom gegn HK/Víkingi í Kórnum í
gær. Leiknum lauk með 1:0-sigri
Selfyssinga en það var Grace Rapp
sem skoraði sigurmark á 80. mín-
útu.
Selfyssingar fengu tvö frábær
færi til þess að komast yfir í fyrri
hálfleik en tókst ekki að skora og
staðan í hálfleik markalaus. Eftir
tvö sláarskot í síðari hálfleik fór
boltinn loksins í netið hjá Selfyss-
ingum þegar Grace Rapp kláraði í
nærhornið af stuttu færi eftir frá-
bæran undirbúning Barbáru Sólar
Gísladóttur.
HK/Víkings stúlkur sköpuðu sér
ekki mörg marktækifæri í leiknum
og þær ógnuðu einna helst úr föst-
um leikatriðum. Liðið fékk nokkrar
álitlegar skyndisóknir til þess að
skora en alltaf klikkaði síðasta
sendingin. Varnarleikur liðsins var
góður og Eygló Þorsteinsdóttir átti
fínan leik á miðjunni en liðið skorti
gæði fram á við til þess að koma
inn marki.
Selfyssingar voru sterkari aðilinn
í leiknum og allt annað en sigur
hefði verið vonbrigði fyrir liðið. Ef
Selfoss hefði nýtt færin sín hefði
leikurinn hæglega getað endað 5:0-
fyrir Selfossi en liðið þarf að gera
betur á síðasta þriðjungi vallarins.
Sóknarleikurinn hrökk í gang þeg-
ar Barbára Sól fór úr hægri bak-
verðinum á hægri kantinn og
óskiljanlegt að Alfreð Elías ákveði
að skipa hana sem hægri bakvörð
leik eftir leik enda einn besti sókn-
armaður liðsins.
Sóknarlega er HK/Víkingur í
basli en liðið hefur aðeins skorað
eitt mark í sumar. Þórhallur Vík-
ingsson þarf að finna svör í sókn-
arleiknum sínum og liðið hans
verður að skora mörk ef þær ætla
sér ekki niður um deild. Selfyss-
ingar eiga ennþá eftir að stilla bet-
ur saman strengi sína en þegar lið-
ið er á deginum sínum og nýtir
færin sín geta Selfyssingar hæg-
lega staðið í sterkustu liðum deild-
arinnar.
Annar sigur Fylkis
Nýliðar Fylkis byrja tímabilið í
deild þeirra bestu ljómandi vel en
Fylkir hafði betur gegn KR 2:1 á
heimavelli sínum og er Árbæjar-
liðið þar með komið með sex stig
eftir þrjá fyrstu leiki sína. KR-
ingar eru hins vegar ekki komnir á
blað en Vesturbæjarliðinu tókst þó
að skora sitt fyrsta mark í deildinni
á tímabilinu.
Fylkir var sterkari aðilinn lengi
vel en KR sótti í sig veðrið á loka-
kafla leiksins og gerði heiðarlega
tilraun til að ná að jafna metin en
tókst það ekki.
Hulda Hrund Arnarsdóttir kom
Fylki í forystu á 16. mínútu þegar
hún skaut boltanum yfir Agnesi
Þóru Árnadóttur, markvörð KR, af
um 25 metra færi. Skotið var gott
hjá Huldu en Agnes stóð of fram-
arlega í markinu og náði ekki til
boltans. Þremur mínútum fyrir
leikhlé bætti hin 17 ára gamla Ída
Marín við öðru marki fyrir Fylki af
stuttu færi eftir góðan undirbúning
Mariju Radojicic. Ída á ekki langt
að sækja hæfileikana en faðir
hennar er Hermann Hreiðarsson,
fyrrverandi landsliðsmaður og at-
vinnumaður, og móðir hennar er
Ragna Lóa Stefánsdóttir, fyrrver-
andi landsliðskona.
Fylkir hélt góðum tökum á leikn-
um fyrri hlutann í seinni hálfleik en
KR-liðið vann sig jafnt og þétt inn
í leikinn og Guðmunda Brynja Óla-
dóttir gaf því von þegar hún
minnkaði muninn á 78. mínútu með
hörkuskoti utarlega úr teignum.
Fylki tókst að halda fengnum hlut
og fagnaði sætum sigri en KR þarf
að bíða eitthvað lengur til þess að
komast á blað.
Byrja titilvörnina af krafti
Sannfærandi sigur Breiðabliks Agla María sjaldan spilað betur Mörkin
hefðu getað orðið fleiri Nýliðar Fylkis byrja vel Fyrsti sigur Selfoss
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Boltinn Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki, sætir færis að ná boltanum af
Ásdísi Karen Halldórsdóttur og Guðmundu Brynju Óladóttur, KR-ingum.
Keflavík – Breiðablik 0:3
0:1 Agla María Albertsdóttir 38..
0:2 Hildur Antonsdóttir 54.
0:3 Berglind Björg Þorvaldsd. 72.
I Gul spjöldNatasha, Þóra Kristín
(Keflavík), Heiðdís (Breiðabliki)
MM
Agla María Albertsdóttir (Breið.)
M
Katrín Hanna Hauksdóttir (Kef.)
Þóra Kristín Klemensd. (Kef.)
Aníta Lind Daníelsdóttir (Kefl.)
Karólína L. Vilhjálmsd. (Breið.)
Berglind B. Þorvaldsd. (Breið.)
Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki)
Alexandra Jóhannsdóttir (Breið.)
Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki)
Dómari: Elías Ingi Árnason, 7.
HK/Víkingur – Selfoss 0:1
0:1 Grace Rapp 81.
I Gul spjöldEygló (HK/Vík.), Magda-
lena (Selfossi)
KEFLAVÍK – BREIÐABLIK 0:3
HK/VÍKINGUR – SELFOSS 0:1 FYLKIR – KR 2:1
M
Grace Rapp (Selfossi)
Magdalena A. Reimus (Selfossi)
Barbára Sól Gísladóttir (Self.)
Anna M. Friðgeirsdóttir (Self.)
Cassie Boren (Selfossi)
Halla Hinriksdóttir (HK/Víkingi)
Gígja V. Harðardóttir (HK/Vík.)
Eygló Þorsteinsdóttir (HK/Vík.)
Tinna Óðinsdóttir (HK/Víkingi)
Dómari: Bryngeir Valdimarsson, 6.
Fylkir – KR 2:1
1:0 Hulda Hrund Arnarsdóttir 16.
2:0 Ída Marín Hermannsd. 42.
2:1 Guðmunda Brynja Ólad. 78.
I Gul spjöldIngunn (KR)
M
Cecilia Rán Rúnarsdóttir (Fylki)
Ída Marín Hermannsdóttir (Fylki)
Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylki)
Maria Radojicic (Fylki)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR)
Katrín Ómarsdóttir (KR)
Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
Dómari: Atli Haukur Arnarsson, 6.Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
TENGISTYKKIN
Dvergarnir R
Skoðið
nýju
heimas
íðuna
islands
hus.is
FÁST Í BYGGINGA-VÖRUVERSLUNUM
Sérsmíðuð tengistykki á dvergana
léttir vinnuna – margar tegundir