Morgunblaðið - 14.05.2019, Side 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Orri Freyr Gíslason, fyrirliði hand-
knattleiksliðs Vals, hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna en þetta var til-
kynnt á Facebook-síðu Vals í gær. Orri
verður 31 árs í þessum mánuði en
hann hefur verið í stóru hlutverki hjá
liðinu um árabil og var valinn íþrótta-
maður Vals fyrir árið 2017.
KR hefur fengið knattspyrnukonuna
Ásdísi Karenu Halldórsdóttur lánaða
frá Val. Ásdís, sem er tvítug, lék með
KR til 2017 en skoraði fjögur mörk í 12
leikjum með Val á Íslandsmótinu í
fyrra. Hún hefur ekki komið við sögu
hjá Hlíðarendaliðinu í vor og var á
bekknum gegn KR í síðustu umferð.
Króatíski körfuboltamaðurinn Mar-
io Matasovic leikur áfram með Njarð-
víkingum næsta vetur en hann hefur
framlengt samning sinn til vorsins
2020. Mario er 26 ára gamall fram-
herji sem var í stóru hlutverki hjá
Njarðvíkurliðinu í vetur. Hann kom
þangað úr bandarískum háskóla, eftir
að hafa farið í nýliðaval NBA 2018.
Knattspyrnumaðurinn Elís Rafn
Björnsson hefur verið lánaður til
Fjölnis frá Stjörnunni. Elís skipti yfir til
Stjörnunnar frá Fylki fyrir tímabilið og
gerði tveggja ára samning við Garða-
bæjarliðið en hefur ekki komið við
sögu í fyrstu þremur leikjum liðsins í
deildinni.
Þróttarar í Reykjavík hafa fengið
knattspyrnumanninn Dag Austmann
Hilmarsson til liðs við sig frá ÍBV og
samið við hann út þetta tímabil. Dagur
er tvítugur miðju- eða varnarmaður og
lék 14 leiki með ÍBV í úrvalsdeildinni í
fyrra en missti af lokasprettinum
vegna meiðsla.
Eitt
ogannað
MAN. CITY
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta er erfiðasti titill sem ég hef
unnið á ferlinum. Sá langerfiðasti,“
sagði Pep Guardiola til að undirstrika
hve lítið mátti út af bera þegar Man-
chester City varð Englandsmeistari á
sunnudaginn. Liðið þurfti að ljúka
tímabilinu með 14 sigurleikjum í röð
til að vinna einvígið við Liverpool sem
náði þriðja mesta stigafjölda í sögu
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu. Heil 97 stig duga ekki þegar
við stórkostlegt lið Manchester City,
með meistara Pep Guardiola í brúnni,
er að eiga.
Aðeins City, á síðustu tveimur ár-
um, hefur gert betur en Liverpool nú
hvað stigafjölda varðar. City-menn
fengu 98 stig í ár en 100 þegar þeir
unnu titilinn í fyrra. Það gerir 198
stig af 228 mögulegum á síðustu
tveimur leiktíðum, eða 87% árangur.
Þessi ævintýralega vegferð, sem
kannski má segja að hafi hafist með
ferð til Íslands og leik við West Ham
á Laugardalsvelli 2017, verður seint
toppuð en eitt er þó ljóst; bláa liðið í
Manchesterborg ætlar ekki að láta
staðar numið núna.
Enska þrennan í sigtinu
„Það er svo ávanabindandi að
vinna titla og nú er auðvitað bikarúr-
slitaleikurinn næstur á dagskrá eftir
nokkra daga,“ sagði Guardiola, en
vinni City lið Watford á Wembley á
laugardaginn verða City-menn fyrst-
ir allra til að vinna ensku þrennuna á
sama tímabili; deildina, bikarinn og
deildabikarinn.
„Eftir bikarúrslitaleikinn munum
við undirbúa okkur vel og taka réttar
ákvarðanir fyrir næstu leiktíð, til að
koma enn sterkari til leiks, því ég
held að Liverpool haldi áfram á sömu
braut og hin liðin verði betri. Ég held
að [Manchester] United hljóti að taka
við sér á ný, Chelsea verður betra eft-
ir að hafa haft [Maurizio] Sarri í eitt
ár, við erum búin að sjá Tottenham
komast í úrslit Meistaradeildarinnar,
og Arsenal, þegar liðið hefur gert það
sem það þarf að gera, verður í barátt-
unni líka. Við vitum þetta, tökum
áskoruninni og ég lofa ykkur því að
við snúum aftur í haust með að ég tel
enn sterkara lið,“ sagði Guardiola.
Ein viðbót frá síðustu leiktíð
Þessi 48 ára gamli Spánverji hefur
hreinlega velt sér upp úr gulli sem
þjálfari síðasta áratuginn, eins og
hann gerði reyndar að miklu leyti
sem leikmaður. Frá og með árinu
2009 hefur hann fagnað landsmeist-
aratitli í 8 af 10 mögulegum skiptum
(hann tók sér frí frá þjálfun 2012-
2013) auk fjölda annarra titla, en ekki
bara það heldur búið til sögulega góð
knattspyrnulið. Hann hefur auðvitað
haft úr frábærum leikmönnum að
velja, hvort sem er hjá Barcelona,
Bayern eða City, og peningar eru
ekki vandamál, en það þarf að kunna
að nýta leikmennina og peningana
með réttum hætti.
Það hefur Guardiola gert og síð-
asta sumar var hann með í höndunum
hóp sem hann sá ekki ástæðu til að
breyta nema að litlu leyti. City varði
þá minna fé í leikmenn en átta félög í
ensku úrvalsdeildinni. Eina verulega
viðbótin fólst í kaupum á Riyad
Mahrez sem reyndist liðinu vel á
sinni fyrstu leiktíð, og færði bros yfir
andlit manna með hinu fallega þriðja
marki gegn Brighton á sunnudag
sem endanlega staðfesti að titillinn
yrði áfram í eigu City. Og nú vill Gu-
ardiola vinna meistaratitil þriðja árið
í röð á næstu leiktíð, eins og honum
tókst með Barcelona og Bayern. Ef-
laust vill hann einnig bæta við sigri í
Meistaradeild Evrópu, sem Guardi-
ola vann tvisvar með Barcelona, en þá
keppni hefur City aldrei unnið.
Erum ekki einstakir
„Þegar maður vinnur titil þá skilur
maður betur hvað það er erfitt að
vinna bara einn titil. Liverpool hefur
ekki unnið einn einasta síðustu ár.
Manchester United og Liverpool eru
stærstu félögin á Englandi. Stærstu
mistökin sem hægt er að gera, og þau
munu ekki gerast hjá mér, er að
halda að við séum eitthvað einstakir
þó að við vinnum 4-5 titla á tveimur
árum. Það getur alveg gerst að mað-
ur vinni svo ekki neitt næstu 4-5 árin.
Þess vegna vil ég að stuðningsmenn-
irnir og allir hjá félaginu njóti augna-
bliksins því þetta er svo flókið,“ sagði
Guardiola.
Með hann við stjórnvölinn sér ekki
fyrir endann á gullskeiði City. City
getur stillt upp stórkostlegu liði 25
ára og yngri og mikilvægir leikmenn
eins og Kevin De Bruyne og Kyle
Walker eru á besta aldri. Raheem
Sterling (24 ára) var af blaðamönnum
valinn besti leikmaður tímabilsins og
á sama tíma valinn besti ungi leik-
maðurinn af samtökum leikmann-
anna sjálfra. Leroy Sané (23) fékk
seinni verðlaunin einmitt fyrir ári.
Ederson (25) og Bernardo Silva (24)
áttu báðir frábært tímabil, og yngri
leikmenn eins og úkraínski vinstri
bakvörðurinn Oleksandr Zinchenko
(22) og enski miðjumaðurinn Phil
Foden, aðeins 18 ára, fengu heilmörg
tækifæri til að sýna sig og sanna í vet-
ur og nýttu þau vel. Miðverðirnir
Aymeric Laporte og John Stones eru
24 ára, og svona mætti áfram telja.
Eldri en eiga nóg eftir
Menn á borð við Fernandinho,
David Silva og fyrirliðann Vincent
Kompany eru vissulega teknir að eld-
ast, og raunar er óvíst hvað verður
hjá Kompany en samningur hans á
að renna út nú í sumar. Silva er orð-
inn 33 ára og Fernandinho 34, og
Sergio Agüero verður bráðum 31 árs.
Miðað við spilamennsku þessara
þriggja í vetur eiga þeir hins vegar
nóg eftir. Guardiola er sjálfsagt
löngu búinn að ákveða hvernig hann
vill að hópurinn sinn komi til með að
líta út á næstu leiktíð og varla líklegt
að hann geri miklar breytingar frek-
ar en í fyrra.
0
100
200
300
Frá kaupum sjeiksins Mansour frá Abu Dhabi árið 2008
Keppnir á Englandi Leikmannakaup
Í milljónum punda (áætlað)
Meistaradeild Evrópu frá 2008-09
Úrvalsdeildin 2018-19 Markatala
Markahæstur í liðinu
Sergio Aguero (ARG)
21 mark
Úrslit
Manchester City
Heimildir: Premier League, Transfermarkt, UEFA
2008
-09
285,8
141,6
2018
-19
2008
-09
2018
-19
2013
-14
2008
-09
2018
-19
Meistarar
Úrslitaleikur
Undanúrslit
8-liða úrslit
16-liða úrslit
Riðlakeppni
Ekki með
Úrvalsdeildin
Bikarkeppnin
Deildabikarinn
69,4
sigrar
jafnt
töp
32
42
95
+7223
+
–
Óstöðvandi eftir Íslandsför
Man. City hefur fengið 198 stig af 228 mögulegum á síðustu tveimur árum
Guardiola ánetjaðist titlum snemma Leikmannahópur á fjölmörg ár eftir
AFP
Meistarar Pep Guardiola var tolleraður af leikmönnum venju samkvæmt.