Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingumumáhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is
Ofnæmið burt!
Zensitin
10mg töflur -10, 30 og 100 stk
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
Pokémon Detective Pikachu Ný Ný
Avengers: Endgame 1 3
The Hustle Ný Ný
Hellboy (2019) Ný Ný
UglyDolls Ný Ný
Wonder Park 2 5
Eden Ný Ný
Dumbo (2019) 8 7
Missing Link 6 4
Five Feet Apart 4 4
Bíólistinn 10.–12. maí 2019
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Bíóaðsókn helgarinnar
Bresku þættirnir Killing Eve fengu
flest verðlaun á sjónvarpsverðlauna-
hátíð bresku kvikmynda- og sjón-
varpsakademíunnar, Bafta TV, um
helgina eða þrenn alls. Verðlaunin
hlutu þættirnir fyrir bestu leikkonu
í aðalhlutverki, Jodie Comer, bestu
leikkonu í aukahlutverki, Fionu
Shaw og bestu dramatísku þátta-
röðina. Í þáttunum segir af laun-
morðingja, ungri konu að nafni Vill-
anette og bandarískri leyniþjón-
ustukonu, Eve, sem er á hælunum á
henni. Þáttaraðirnar eru nú orðnar
tvær og enn verið að sýna þá seinni.
Benedict Cumberbatch hreppti
verðlaun sem besti leikari í aðal-
hlutverki fyrir túlkun sína á titil-
persónu Patrick Melrose. Sú þátta-
röð var einnig verðlaunuð sem sú
besta í flokki stuttra þáttaraða.
Cumberbatch hefur verið tilnefndur
til Bafta TV-verðlaunanna sjö sinn-
um og er þetta í fyrsta sinn sem
hann hlýtur þau, að því er fram
kemur á vef BBC. Henti Leikarinn
gaman að því í þakkarræðu og sagð-
ist vera vanari því að vera brúðar-
mey en brúður. Comer tileinkaði
verðlaunin ömmu sinni heitinni og
felldi hún tár þegar hún veitti þeim
viðtöku.
Verðlaun sem besti aukaleikari
hlaut Ben Wishaw fyrir leik sinn í
þáttunum A Very English Scandal
og hæfileikaþáttaröðin Britain’s Got
Talent hlaut verðlaun fyrir bestu
skemmtiþætti. Heildarlista yfir
vinningshafa og tilnefnda má finna
á menningarvef BBC.
Þáttaröðin Killing Eve
fengsæl á Bafta TV
Jodie
Comer
Bandaríska leik-
konan Doris Day
er látin, 97 ára
að aldri. Day var
ein stærsta kvik-
myndastjarna
heims á sjötta og
sjöunda áratugn-
um en hún var
söngkona áður
en hún sneri sér
að kvikmyndaleik. Af kvikmyndum
sem hún lék í má nefna Calamity
Jane og Pillow Talk og The Man
Who Knew Too Much en í þeirri síð-
astnefndu söng hún sinn þekktasta
smell, „Que sera, sera“.
Leikkonan Doris
Day látin, 97 ára
Doris Day
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosamargrett@gmail.com
„Kórinn er mjög vel æfður, hljóm-
sveitin er frábær og Eyþór er svona
rúsínan í pylsuendanum,“ segir Guð-
jón Þ. Kristjánsson, varaformaður í
stjórn Karlakórs Keflavíkur. Kórinn
mun halda vortónleika í Hljómahöll í
dag, 14. maí, og á morgun, 15. maí,
og mun rokkstjarnan Eyþór Ingi
Gunnlaugsson sameina krafta sína
með kórnum.
Guðjón staðfestir að tónleikarnir
muni færast úr klassíkinni og yfir í
rokkið. „Með viðkomu í poppinu í
miðjunni,“ bætir hann við. „Fyrst
verða þetta örfáir klassískir karla-
kórastandardar. Síðan fengum við
Arnór Vilbergsson organista til að
útsetja fyrir okkur lög sem hafa ver-
ið vinsæl hjá yngri poppurum, eins
og Mugison, Ásgeiri Trausta og
Hjálmum. Eftir hlé taka við Queen-
lög sem Eyþór syngur með okkur og
svo nokkur óperulög sem hafa verið
sett í rokkbúning, eins og Nessun
Dorma og Pílagrímakórinn. Þannig
að þetta mun enda í rokki,“ segir
Guðjón. Hann segir kórinn öflugri en
hann hafi verið áður en óperusöngv-
arinn Jóhann Smári Sævarsson, sem
er stjórnandi kórsins á tónleikunum,
bauð upp á einkakennslu fyrir kór-
félaga síðasta vetur. Guðjón segir
kórinn vera heppinn með stjórnanda
og að hann hafi kennt kórnum mikið.
Hljómsveitin sem spilar undir á
tónleikunum gengur undir nafninu A
band with no name sem þýða má á ís-
lensku sem „nafnlausa hljómsveitin“
með áðurnefndan Arnór Vilbergs-
son, organista við Keflavíkurkirkju,
fremstan í flokki.
Karlakórinn rokkar
Vortónleikarnir eru titlaðir Karla-
kórinn rokkar sem endurspeglar
samstarf rokkgoðsins Eyþórs Inga
og efnisskrá vortónleikanna eftir hlé.
Guðjón segir samstarfið við Eyþór
tilkomið í kjölfar þess að kórinn söng
með Eyþóri á tónleikum hans um
síðustu jól. Segir Guðjón að Eyþór
hafi komist að samkomulagi við
stjórnarformanninn eftir jóla-
tónleikana um að syngja á vortón-
leikum kórsins í skiptum fyrir jóla-
tónleikana. Guðjón segir að fyrsta og
eina æfingin með Eyþóri hafi farið
fram síðasta sunnudag og að hún hafi
gengið frábærlega, allt hafi smollið
saman.
Miðasala fyrir tónleikana fer fram
á miðasöluvefnum tix.is.
Fjölhæfir Karlakór Keflavíkur syngur klassísk karlakóralög, popp og rokk ásamt Eyþóri Inga í dag og á morgun.
Óperulög í rokkbúning
Karlakór Keflavíkur fer úr klassík í rokk með viðkomu í
poppi á vortónleikum Eyþór Ingi rokkar með kórnum
Rokkari Eyþór Ingi Gunnlaugsson í
Söngvakeppninni árið 2013.
Verk Ragnars Kjartanssonar, Bliss,
verður sýnt í Walt Disney-tónleika-
höllinni í Los Angeles 25. þessa
mánaðar. Sýningin er hluti af dag-
skrá helgaðri flúxus-listhreyfing-
unni sem stendur yfir þessa mánuði
í tónleikahúsinu kunna, en það er
heimili Fílharmóníuhljómsveitar
Los Angeles.
Ragnar sýndi Bliss fyrst ásamt
samstarfsmönnum, söngvurum og
hljóðfæraleikurum, í leikhúsi á Per-
forma-gjörningahátíðinni í New
York árið 2011 og vakti gjörningur-
inn mikla athygli og hlaut lof gagn-
rýnenda. Lokaaría óperunnar
Brúðkaup Fígarós er flutt aftur og
aftur, alls í tólf klukkustundir, án
hlés. Þessi úthaldsgjörningur er í
kynningu sagður undir áhrifum af
gjörningum flúxus-listamanna og
er uppselt á hann í Los Angeles.
Eins og í fyrri uppfærslunni í New
York syngur Kristján Jóhannsson
hlutverk Almaviva greifa og Ragn-
ar Kjartansson er leikstjóri verks-
ins og syngur líka hlutverk Anton-
ios en átta aðrir söngvarar taka
þátt. Christopher Rountree stjórn-
ar hljómsveitinni wild Up sem leik-
ur undir síendurtekinni aríunni,
sem er sviðsett á glæsilegan hátt
þar sem mikið er lagt í sviðsmynd
og búninga.
Flutningur Bliss verður kvik-
myndaður í mestu mögulegu gæð-
um, af sérfræðingum í kvikmyndun
óperuuppfærslna.
Ljósmynd/LuhringAugustine Galle
Úthaldsgjörningur Kristján Jóhannsson og Ragnar Kjartansson voru fyrir
miðju söngvaranna í Bliss árið 2011 og nú endurtaka þeir leikinn.
Bliss Ragnars Kjart-
anssonar í Los Angeles
Benedict
Cumberbatch