Morgunblaðið - 14.05.2019, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
VERTU
LJÓSAVINUR
Það er ekkert í lífinu sem býr þig undir það að greinast með krabbamein
Ljósið gefur von
Til okkar leita hundruð einstaklinga í hverjummánuði,
bæði krabbameinsgreindir og aðstandendur þeirra
í margvíslega þjónustu. Lífslíkur krabbameinsgreindra eru
að aukast og samhliða því er aukin þörf á endurhæfingu
fyrir líkama og sál. Við þurfum fleiri Ljósavini.
Vertumánaðarlegur styrktaraðili áwww.ljosid.is
Gagnrýnendur fjölmiðla lofa viða-
mikla og metnaðarfulla tónlistarsýn-
inguna sem Björk Guðmundsdóttir
hefur sett upp í hinu nýja menning-
arhúsi, The Shed, á Manhattan í
New York. Sýninguna kallar Björk
Cornucopia og er samspili tónlistar,
leikmyndar, búninga og myndvörp-
unar hrósað í hástert en alls verða
átta sýningar í mánuðinum og er
uppselt á þær allar. Leikstjóri sýn-
ingarinnar er kunnur argentínskur
kvikmyndaleikstjóri, Lucretia Mar-
tel. Rýnir Rolling Stones segir að
erfitt sé að draga í efa að þetta séu
þeir tónleikar Bjarkar sem sviðsettir
séu með glæsilegustum hætti, og
hafa þeir þó verið tilkomumiklir.
Við flutninginn nýtur Björk að-
stoðar Hamrahlíðarkórsins sem
skipaður er 52 söngvurum undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Áð-
ur en Björk stígur á svið flytur kór-
inn nokkur lög, íslensk þjóðlög sem
og lög eftir Björk, og kemur hann
einnig við sögu í sumum laganna eft-
ir að tónleikar Bjarkar hefjast. Í
stóru hlutverki á sviðinu er flautu-
septettinn viibra, skipaður sjö ís-
lenskum konum, Katie Buckley leik-
ur á hörpu, Manu Delago annast
áslátt og Bergur Þórisson keyrir
tölvurnar.
Ævintýri Bjarkar
Ljósmynd/Santiago Felipe
Áhrifaríkt Samspili tónlistar, sviðsmyndar og myndvörpunar á tónleikum Bjarkar í The Shed er hrósað í hástert.
Ljósmynd/Santiago Felipe
Ævintýraheimur Tveir flautuleikaranna sjö í viibra á sviðinu í New York.
Cornucopia í
The Shed hrósað
Skáli Litháens hlaut Gullna ljónið,
aðalverðlaun Feneyjatvíæringsins,
og var valinn af dómnefnd besti
þjóðarskálinn á 58. tvíæringnum.
Alls taka níutíu þjóðir þátt að þessu
sinni. Skáli Litháens hefur vakið
mikla athygli allt frá opnun, og hef-
ur til að mynda komist á lista
margra fjölmiðla yfir athyglisverð-
ustu skálana, en í honum er fluttur
tónlistargjörningurinn Sun & Sea
(Marina) eftir þær Linu Lapelyte,
Vaivu Grainyte og Rugile Barzd-
ziukaite.
Í skemmu í Feneyjum hefur gólfið
verið þakið gulum sandi. Áhorf-
endur fara upp á svalir og horfa nið-
ur á fólk í dæmigerðu strandlífi, í
sterku ljósi, en af og til hefur fólkið á
„ströndinni“ söng og flytur stutta
óperu sem fjallar um umhverfis-
vána.
Annan tvíæringinn í röð hreppir
gjörningur því helstu verðlaun
tvíæringsins; fyrir tveimur árum
hlaut uppfærsla Anne Imhof á Fást í
þýska skálanum Gullna ljónið.
Gullið ljón fyrir ævistarf
Dómnefnd tvíæringsins veitti
fleiri verðlaun. Skáli Belgíu með inn-
setningu Jos de Gruyter og Harald
Thys, Mondo Cane, fékk sérstaka
viðurkenningu. Myndlistarmaðurinn
Arthur Jafa fékk verðlaun fyrir
besta framlagið í alþjóðlegu megin-
sýningunni, „May You Live In Int-
eresting Times“ sem sett er upp í
ítalska skálanum og hinni fornu
skipasmíðastöð Arsenale. Þá hreppti
Haris Epaminonda frá Kýpur Silf-
urljónið sem „efnilegasti ungi þátt-
takandinn“ á tvíæringnum. Tveir
aðrir listamenn fengu sérstaka við-
urkenningu fyrir verk sín, þau Ter-
esa Margolles frá Mexíó og Otobong
Nkanga frá Nígeríu.
Áður hafði verið tilkynnt að
bandaríski listamaðurinn Jimmie
Durham hlyti Gullna ljónið sem veitt
er fyrir ævistarf í myndlist.
Umhverfisópera
í besta skálanum
Litháíski skálinn hreppti Gullna ljónið í Feneyjum
Ljósmynd/Neon Realism
Strandlíf Í verðlaunaverki Litháanna bresta strandgestir reglulega í söng.