Morgunblaðið - 14.05.2019, Síða 40
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is
AXIS framleiðir
eldhúsinnréttingar
í miklu úrvali
Val er um mismunandi útlit,
viðartegundir og fleira.
Viðskiptavinum stendur til boða
aðstoð hönnuða AXIS,
við að teikna upp og útfæra
innréttingar og skápa.
Hjá AXIS er veitt ráðgjöf um val á
innréttingum en sjá má nokkurn
hluta úrvalsins í glæsilegum
sýningarsal AXIS, Smiðjuvegi 9
í Kópavogi.
Vandaðar íslenskar
innréttingar
Hljómsveitin Morpholith fór með
sigur af hólmi í þungarokks-
hljómsveitakeppninni Wacken
Metal Battle sem haldin var á laug-
ardaginn á tónleikastaðnum Húrra.
Sex hljómsveitir léku þar til úrslita.
Morpholith mun því koma fram á
umfangsmestu þungarokkshátíð
heims, Wacken Open Air, í Þýska-
landi í byrjun ágúst og etja þar
kappi við 29 hljómsveitir.
Morpholith sigraði í
Wacken Metal Battle
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 134. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Selfoss vann sinn fyrsta leik í Pepsi
Max-deild kvenna í knattspyrnu þeg-
ar liðið lagði HK/Víking með einu
marki gegn engu í Kórnum í Kópa-
vogi. Nýliðar Fylkis kræktu í þrjú stig
með góðum sigri á KR, 2:1. Íslands-
meistarar Breiðabliks halda sínu
striki. Þeir unnu öruggan sigur á ný-
liðum Keflavíkur, 3:0, á útivelli. »34
Selfoss vann sinn
fyrsta leik í sumar
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Manchester City varð enskur
meistari í knattspyrnu annað árið
í röð á sunnudaginn og hefur
fengið samtals 198 stig á þessum
tveimur síðustu
keppnistímabilum.
Horfur eru á að
sigurganga liðs-
ins undir stjórn
Pep Guardiola
haldi áfram enn
um sinn, enda er
stór hluti leik-
mannahópsins
enn ungur að
árum. Fjallað er
um frammistöðu
Englandsmeist-
aranna á íþrótta-
síðum blaðsins í
dag. »35
Sigurganga sem sér
ekki fyrir endann á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kennslu- og æfingaferðir ísbílsins
hafa staðið yfir að undanförnu og
halda áfram út vikuna en stefnt er
að því að áætlun hefjist á ný um
næstu helgi. 21. maí verða 25 ár frá
því fyrirtækið Ísbílaútgerðin ehf.
hóf göngu sína með einum bíl, sem
fór drekkhlaðinn út úr borginni. Í
sumar verða 20 til 30 ökumenn á 13
ísbílum á ferðinni um allt land.
Ásgeir Baldursson hefur verið
viðriðinn fyrirtækið frá upphafi. Á
háskólaárunum byrjaði hann sem
sumarstarfsmaður 1994 eftir að
Skúli Ólafsson heildsali hafði komið
með fyrsta bílinn frá Danmörku og
stofnað fyrirtækið um vorið. Hann
varð síðar sölustjóri og keypti
reksturinn 2006.
Eigandinn rifjar upp að í fyrstu
hafi verið boðið upp á ís frá Emm-
essís og Kjörís auk þess sem DV
hafi verið til sölu í sumarhúsa-
byggðum á laugardögum. Fjöl-
breytnin hafi vaxið ár frá ári og í
sumar verði 45 vörutegundir í
lausasölu. „Það nýjasta er holda-
naut frá Sogni í Kjós,“ segir Ásgeir
og vísar til þess að hamborgarar í
staðlaðri stærð verði fáanlegir í bíl-
unum ásamt hamborgarabrauði.
Erfitt hafi verið að fá framleið-
endur til þess að vera með staðl-
aðar stærðir, til dæmis 700 g steik-
ur, og það komi í veg fyrir að hægt
sé að fjölga vöruflokkum í kjöti.
Fjölbreytt úrval
Ísinn er af öllum gerðum og
stærðum. Ásgeir bendir á að enginn
eigi að verða útundan, til dæmis
vegna ofnæmis, og allir eigi að geta
fundið ís við hæfi. Auk íss frá
Emmessís og Kjörís sé fyrirtækið í
samstarfi við ísbíla á Norðurlöndum
og meðal annars sé boðið upp á
vegan ís, sykurlausan ís, laktósfrí-
an, lífrænan, mjólkurlausan ávaxta-
ís og hitaeiningasnauðan ís fyrir ut-
an hefðbundna ísa eins og rjómaís,
jurtaís og frostpinna.
Úrval í frosnum matvörum hefur
aukist undanfarin ár. Til dæmis má
kaupa humar, rækjur, laxabita,
þorskhnakka, ýsublokkir, þorsk-
blokkir og fiskibollur. Ennfremur
frosnar pítsur og ávexti. „Þetta
vindur stöðugt upp á sig og við
reynum að laga okkur að mark-
aðnum,“ segir Ásgeir.
Að því sögðu segir hann rigning-
arsumarið í fyrra hafa dregið úr
viðskiptum. „Veðrið hefur áhrif á
suma þætti starfseminnar,“ segir
hann og bendir á að víða hafi verið
tómlegt í sumarhúsum sl. sumar.
„Þegar ekkert tilefni er til þess að
borða ís í tvær vikur á fólk ísinn til
betri tíma og salan dettur niður.“
Leiðakerfið hefur verið í stöðugri
þróun og allt höfuðborgarsvæðið er
komið á áætlun ásamt landsbyggð-
inni. Ásgeir segir að enginn lands-
hluti skeri sig úr en yfirleitt sé það
þannig að íssalan sé mest þar sem
börnin séu flest. „Fyrirtæki eru í
auknum mæli farin að panta ísbíl-
inn á staðinn enda hafa margir
mannauðsstjórar komist að því að
það sé ódýrasta lausnin til þess að
gefa öllu starfsfólki eitthvað sem
gleður það. Oft rignir inn pöntunum
á ísbíl daginn fyrir frábæra veður-
spá.“
Morgunblaðið/Hari
Ísbíllinn Ásgeir Baldursson með söluvörur fyrir framan hluta ísbílaflotans sem byrjar áætlunarferðir um helgina.
Ísbíllinn í aldarfjórðung
Nú fara 13 bílar um allt land Boðið upp á 45 vöru-
tegundir í lausasölu Kjöt og fiskur til sölu í ísbílunum