Morgunblaðið - 16.05.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Hefur þú prófað nýju
kjúklingasteikurnar?
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOLT
A
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er mikil bið í brennsluaðgerðir
á hjarta og ákveðið áhyggjuefni
hvað sá biðtími er langur,“ segir Hlíf
Steingrímsdóttir, framkvæmda-
stjóri lyflækningasviðs Landspítala
Íslands.
Í nýbirtum tölum Landspítala
kemur fram talsverð fjölgun þeirra
sem eru á biðlista eftir aðgerð á
hjartaþræðingarstofu spítalans.
Hinn 10. apríl síðastliðinn höfðu 365
manns beðið eftir aðgerð lengur en
þrjá mánuði og hafði þeim fjölgað
um 5% miðað við sama tíma í fyrra.
Hlutfall sjúklinga sem beðið hefur
eftir aðgerð á hjartaþræðingarstofu
lengur en í þrjá mánuði hefur aukist
úr 65% í 77% milli ára. Að sögn Hlíf-
ar eru gerðar ýmiss konar aðgerðir
á hjartaþræðingarstofu; hjarta-
þræðingar, hjartabrennsluaðgerðir
og aðgerðir á hjartalokum svo eitt-
hvað sé nefnt. Lengstu biðlistarnir
eru í brennsluaðgerðir.
Fjárframlög sem duga skammt
Fram kom í Morgunblaðinu í lið-
inni viku að Davíð O. Arnar, yfir-
læknir hjartalækninga, telur
ástandið ekki viðunandi. „Við erum
nú að vinna niður nokkurra ára upp-
safnaðan vanda,“ sagði Davíð. „Við
getum tekið á þessu vandamáli en
verðum að fá áfram fjármagn til að
geta aukið fjölda aðgerða. Ef það
tekst er ég jákvæður á að eftir 18-24
mánuði verði biðlistar komnir í jafn-
vægi og biðtími orðinn eðlilegur. Til
þess þurfum við að gera 150-200
gáttatifsbrennslur á ári,“ sagði Dav-
íð sem telur að 3-6 mánuðir geti tal-
ist eðlilegur biðtími. Um sex þúsund
Íslendingar hafa greinst með gátta-
tif.
Greint var frá því á vef heilbrigð-
isráðuneytisins í byrjun apríl að
verja ætti 840 milljónum króna í for-
gangsaðgerðir í ár. Þar kom fram að
framkvæma ætti brennsluaðgerðir
vegna gáttatifs fyrir svipaða upp-
hæð og varið var til þræðinga og
kransæðavíkkana í samskonar átaki
í fyrra. Heilbrigðisráðuneytið hefur
ekki svarað fyrirspurn Morgun-
blaðsins um það hversu hárri upp-
hæð verði varið í brennsluaðgerðir
vegna gáttatifs í umræddu átaki.
Hlíf segir í samtali við Morgun-
blaðið að óskað hafi verið eftir að
bæta við í átaki allt að 100 aðgerðum
árið 2019 til að vinna bug á biðlistum
en fengist hafi viðbótarfjármagn til
að gera sjö aðgerðir umfram það
sem gert var á síðasta ári sem dugi
skammt til að vinna á þessum vanda.
Aðgerð hentar þeim yngri
Flestir sem fá gáttatif eru komnir
yfir miðjan aldur en þó er vel þekkt
að yngra fólk fái takttruflunina.
Brennsluaðgerð hentar oft mjög vel
gegn gáttatifi hjá þeim sem yngri
eru. Aðrir áhættuþættir gáttatifs
eru sjúkdómar eins og háþrýst-
ingur, hjartabilun, sykursýki, offita
og kæfisvefn.
Vildu gera 100
aðgerðir en
fengu aðeins 7
Langur biðtími eftir brennsluað-
gerðum vegna gáttatifs Áhyggjuefni
Morgunblaðið/Ásdís
Skurðaðgerð Bið eftir brennsluað-
gerðum vegna gáttatifs lengist.
Langir biðlistar
» Um 200 manns eru nú á bið-
lista eftir brennslu vegna gátta-
tifs og álíka stór hópur bíður
eftir brennslu vegna annarra
hjartsláttartruflana. Biðtíminn
er nú allt að tveimur árum.
» Um sex þúsund Íslendingar
hafa greinst með gáttatif.
» Óskað var eftir fjármagni til
að gera 100 viðbótaraðgerðir í
ár en fé fékkst til að gera sjö.
Dagurinn eftir mikla gleði er oft
ekki alveg jafn skemmtilegur og
sjálfur gleðidagurinn. Línan úr
væntanlegu sigurlagi Eurovision í
ár „þynnkan er endalaus“ átti vel
við hjá sumum Íslendinganna í Tel
Aviv í gær.
Væntanlegu sigurlagi segi ég
upphátt á meðan ég skrifa því
„Hatrið mun sigra“ hefur flogið
upp listann hjá veðbönkum eftir
frammistöðuna á þriðjudags-
kvöldið. Þegar þetta er skrifað er
laginu spáð fimmta sæti og ég sé
ekkert því til fyrirstöðu að við end-
um ofar en það í úrslitunum. 1999,
2009 og 2019? Lendum við í öðru
sæti á tíu ára fresti eða stígum við
skrefið til fulls á laugardag?
Eftir ósvikinn fögnuð á sund-
laugarbakkanum við hótelið í Tel
Aviv aðfaranótt miðvikudags gátu
flestir krakkanna í Hatara hvílt lú-
in bein í gær þar sem margir lágu
á sundlaugarbakkanum, þar sem
þeir höfðu fagnað einhverjum
klukkustundum áður.
Gærdagurinn var þó ekki bara
nýttur í það að liggja í leti. Ísra-
elskur Íslandsvinur bauð til veislu í
gamla bænum í Tel Aviv í gær-
kvöldi, þangað sem Íslendingum á
svæðinu var boðið. Ég ræddi við
Ísraelann Orra Dror, sem lýsti yfir
hrifningu sinni á Íslandi. Hann og
eiginkona hans giftu sig á Íslandi,
hann er að læra íslensku og talar
nokkur orð og þau hjónin stefna á
að flytja á Frónið.
Í dag tekur alvaran aftur við
þegar undirbúningur Hatara fyrir
úrslitin hefst. Einnig kemur í kvöld
í ljós hvaða tíu lög úr seinni undan-
riðlinum, sem sérfræðingar telja
mun sterkari en þann fyrri, komast
í úrslitin. Þar eru nokkur framlög
sem þykja líkleg til árangurs og
heyrst hefur að Svíar og Hollend-
ingar séu farnir að undirbúa það
að halda keppni að ári. Dramb er
falli næst segi ég nú bara og vona
að keppnin fari ekki fram í Malmö
eða Rotterdam vorið 2020.
Skemmtilegra væri ef hún yrði á
Ísafirði.
Morgunblaðið/Eggert
Eurovision Orri Drór og Yael Bar Cohen héldu partí í gærkvöldi þar sem Íslendingum var boðið.
Lognið á undan
storminum
Undirbúningur fyrir úrslitakeppnina í Tel Aviv
Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krón-
unnar, segir að verslanir Krónunnar séu byrjaðar að
undirbúa sig fyrir aukna sölu um helgina í ljósi
þess að Ísland keppir til úrslita í Eurovision á laug-
ardaginn. „Við búumst við því að það verði keypt
meira af grillkjöti og meira af snakki,“ segir Gréta.
„Við erum algjörlega byrjuð að undirbúa þetta.
Þetta er bæði gott fyrir verslanir og líka fyrir þjóð-
arsálina.“
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, yfirmaður sölu- og
þjónustusviðs ÁTVR, segir að Vínbúðirnar geri ekki ráðstafanir fyrir
helgina. „Það verður kannski meira að gera en ég held að við ráðum
alveg við það,“ segir Sigrún.
AUKIN SALA UM HELGINA
Grill Það verður
eflaust veisla hjá
mörgum um helgina.
Grillkjöt og snakk aukið
MORGUNBLAÐIÐ Í TEL AVIV
Jóhann Ólafsson
blaðamaður
Eggert Jóhannesson
ljósmyndari
Opnuninni fagnað með Elvis
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glatt var á hjalla þegar Hrafnista
við Laugarás vígði formlega
stærstu dagþjálfunardeild lands-
ins fyrir einstaklinga með heila-
bilun að viðstöddum Degi B. Egg-
ertssyni borgarstjóra og Svandísi
Svavarsdóttur heilbrigðisráð-
herra. Deildin nefnist Viðey, en
þar er hægt að veita 30 manns
dagþjálfun vegna heilabilunar.
Pétur Magnússon, forstjóri
Hrafnistu, segir að heilabilun hafi
stundum verið líkt við faraldur
sem gangi yfir hinn vestræna
heim. „Og biðlistar eftir úrræðum
fyrir einstaklinga með heilabilun
hafa því miður verið að lengjast á
undanförnum misserum,“ segir
Pétur, en hátt á annað hundrað
manns sem greinst hafa með
sjúkdóminn eru nú á biðlista eftir
dagdvalarrými á höfuðborg-
arsvæðinu. „Þetta er því mjög
kærkomin viðbót við þá faglegu
þjónustu sem einstaklingar með
heilabilun þurfa á að halda hér á
úsdóttir hafa undanfarinn áratug
heimsótt um 2.500 staði fyrir
aldraða og sungið fyrir þá undir
merkjum verkefnisins Elligleði.
landi.“ Boðið var upp á tónlistar-
atriði, þar sem tenórsöngvarinn
Stefán Helgi Stefánsson brá sér í
líki rokkgoðsins Elvis Presley, en
Stefán og Margrét Sesselja Magn-