Morgunblaðið - 16.05.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Ársfundur – stjórnarkjör 2019
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudag-
inn 28. júní 2019 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
• Venjuleg ársfundarstörf.
• Stjórnarkjör skv. samþykktum.
• Önnur mál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.
LSB auglýsir eftir framboðum til setu í stjórn sjóðsins:
• Eitt sæti í aðalstjórn til fjögurra ára.
• Tvö sæti í varastjórn, annað til tveggja ára og hitt til
fjögurra ára.
Þeir sem gefa kost á sér þurfa að fullnægja kröfum um hæfi
og hæfni stjórnarmanna skv. lögum nr. 129/1997, reglum
FME og samþykktum sjóðsins og vera tilbúnir til að gangast
undir hæfismat FME. Framboðsfrestur er til 31. maí 2019.
Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að
skila vegna framboða til setu í stjórn sjóðsins má sjá á
heimasíðu sjóðsins, www.lsb.is.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Byggingarréttur
fyrir 4. hæð.
Samtals eftir
stækkun: 642 fm.
1.856,9 rúmm.
Miklir
möguleikar!
Miklir möguleikar
fyrir margskonar
starfssemi s.s.
íbúðarhótel,
verslun, skrif-
stofur, íbúð,
þjónustu eða
hvað sem er.
Bílastæði fyrir framan
og á bakvið.
Hugsanleg kaup með eða án
veitingastaðar á fyrstu hæð.
Afhending er samkvæmt
samkomulagi.
Vinsamlega sendið tilboð til
tomas6911@gmail.com
S: 896 - 35 - 36
Til sölu - Allt húsið
Eignarlóð - Í hjarta miðbæjar Reykjavíkur
Hverfisgata 123
Geymið auglýsinguna
Þristavinafélagið Pál Sveinsson til
varðveislu og hefur viðhaldið vélinni
síðan.
Á D-deginum svonefnda fyrir 75
árum höfðu DC-vélar bandamanna
mikilvægu hlutverki að gegna en um
800 flugvélar af gerðinni DC-3/C-47,
stundum nefndar Dakotas eða Daks,
flugu með um 24 þúsund fallhlífar-
hermenn yfir Normandí árla morg-
uns 6. júní 1944. Sameinuðust þeir
um 160 þúsund landgönguliðum til
að ráðast gegn herliði Þjóðverja.
Vélarnar 15 leggja af stað frá Ox-
ford á austurströnd Bandaríkjanna
og fara sömu leið yfir N-Atlantshaf
og farin var gjarnan á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar, leið sem
nefndist á frummálinu Blue Spruce.
Frá Oxford verður flogið til Goose
Bay í Nýfundnalandi og gist eina
nótt, þaðan til Narsarsuaq á Græn-
landi, þá til Reykjavíkur, þar sem
flotinn mun dvelja í tvo daga, og það-
an til Prestwick á vesturströnd
Skotlands. Næst verður flogið á
Duxford-flugvöll norður af Lund-
únum en þar sameinast fleiri DC-
vélar frá Englandi og meginlandi
Evrópu dagana 1. og 2. júní áður en
flotinn tekur lokaflugið yfir Ermar-
sundið til Normandí 5. júní.
Sjálf hátíðin í Normandí er frá
6.-9. júní nk. en margar vélanna
munu einnig taka þátt í athöfn í
Berlín í sumar í tilefni þess að 70 ár
eru liðin frá lokum loftbrúarinnar til
Berlínar, þegar Rússar lokuðu land-
leiðinni til Berlínar árin 1948-1949.
En bandamenn hófu þá umfangs-
mikla loftflutninga með birgðir til
borgarinnar, m.a. með DC-3 flug-
vélum.
á milli lendinga og svo þarf að taka
tillit til annarrar flugumferðar á
sama tíma. Tómas Dagur segir
Þristavinafélagið hafa skoðað alvar-
lega þann möguleika að fljúga héðan
á DC-3 vél félagsins, Páli Sveins-
syni, til Normandí en ekki tókst að
fjármagna þann leiðangur. Verið er
að leggja lokahönd á að gera Pál
kláran fyrir sumarið og stefnt að því
að fljúga honum suður um helgina
þannig að hann geti hitt systkini sín
frá Bandaríkjunum eftir helgina.
Páll hefur líkt og undanfarin ár verið
í vetrardvala á Flugsafni Íslands á
Akureyrarflugvelli.
800 DC-3 vélar tóku þátt í inn-
rásinni fyrir 75 árum
Páll Sveinsson kom upphaflega til
landsins í desember 1943 til flutn-
inga fyrir bandaríska herinn á
Keflavíkurflugvelli. Árið keypti 1946
keypti Flugfélag Íslands vélina til
farþegaflugs og var notuð sem slík
til fjölda ára, eða þar til Land-
græðsla ríkisins fékk hana til afnota
árið 1972 og var hún í landgræðslu-
flugi allt til ársins 2006. Þá fékk
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Mikill viðbúnaður verður á Reykja-
víkurflugvelli í næstu viku þegar
þangað koma 15 flugvélar af gerð-
inni DC-3/C-47. Vélarnar munu
leggja af stað frá Bandaríkjunum á
sunnudag en áfangastaðurinn er
Normandí í Frakklandi en þar fer
fram athöfn 6. júní í tilefni þess að 75
ár eru þá liðin frá innrásinni í Norm-
andí, sem markaði upphaf endiloka
síðari heimsstyrjaldarinnar. Von er
á vélunum til Reykjavíkur að kvöldi
mánudagsins 20. maí eða að morgni
daginn eftir, allt eftir því hvernig
viðrar á leiðinni.
Fjölmargir aðilar vinna nú að
undirbúningi fyrir komu vélanna,
eins og Isavia, BIRK Flugþjónustan
á Reykjavíkurflugvelli, Þristavina-
félagið, AOPA á Íslandi (Félag flug-
manna og flugvélaeigenda) og Skelj-
ungur, en flugvélarnar þurfa
gríðarlegt magn af eldsneyti, eða um
2.000 lítra hver um sig. Nálgast elds-
neytismagnið helminginn af því sem
einkaflugvélar nota árlega á Reykja-
víkurflugvelli.
Unnið er að því að finna vélunum
stæði á flugvellinum á meðan þær
stoppa hér. BIRK Flugþjónustan
vinnur að því, í samráði við Isavia,
og meðal svæða sem koma til greina
er neyðarflugbrautin svonefnda,
sem hefur verið aflögð. Er til skoð-
unar að hafa vélarnar til sýnis fyrir
almenning.
Var til skoðunar að senda
Pál Sveinsson héðan
Leiðangurinn nefnist D-Day
Squadron og talsmaður hans, Mor-
eno Aquiari, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að lokaundir-
búningi ferðarinnar miðaði vel.
Verður leiðangurinn kynntur sér-
staklega á blaðamannafundi vestan
hafs í dag. Auk vélanna 15 sem hing-
að koma munu aðrar 15 vélar frá
Evrópu sameinast leiðangrinum fyr-
ir flugið yfir Ermarsundið til Norm-
andí. Að sögn Aquiari tóku fimm
þessara véla, sem lenda í Reykjavík,
þátt í innrásinni í Normandí 6. júní
1944.
Tómas Dagur Helgason, formaður
Þristavinafélagsins, man ekki til
þess í seinni tíð að jafn margar vélar
af þessari gerð hafi lent á Reykja-
víkurflugvelli á einum degi.
Mun lending allra vélanna geta
tekið 3-4 tíma því 10-15 mínútur líða
Ljósmyndir/Daks over Normandy
Þristar Vélar af þessari tegund eru væntanlegar til Reykjavíkur næsta mánudagskvöld eða þriðjudagsmorgun.
Fimmtán Þristar á
leiðinni til Reykjavíkur
Fljúga til Normandí til að fagna 75 árum frá innrásinni
Innrás Um 800 vélar af gerðinni DC-3 flugu með 24 þúsund fallhlífar-
hermenn yfir Normandí í Frakklandi árla morguns 6. júní árið 1944.
Okkar maður Páll Sveinsson kemur
frá Akureyri eftir vetrardvala.
Ljósmynd/Haukur Snorrason
Heildarlaun félagsmanna VR voru
652 þúsund krónur að meðaltali í
febrúar 2019 en miðgildi heildar-
launa var 600 þúsund. Þetta kemur
fram í launarannsókn félagsins.
Grunnlaun voru að meðaltali 644
þúsund en miðgildi grunnlauna var
591 þúsund. Fram kemur að launa-
rannsókn VR byggist á niðurstöðum
í reiknivélinni Mín laun á Mínum síð-
um á vef félagsins. Félagsmenn
skrái þar starfsheiti sitt og vinnu-
tíma í reiknivélina og fái birtan sam-
anburð sinna launa við félagsmenn í
samskonar starfi.
„Miðað er við að lágmarki 60%
starfshlutfall sem reiknað er upp í
fullt starf og er allur samanburður
því á grundvelli a.m.k. 100% starfs-
hlutfalls. Launarannsókn fyrir febr-
úar 2019 byggist á tæplega 11 þús-
und skráningum en félagsmenn VR í
þeim mánuði voru um 36 þúsund,“
segir ennfremur en launareiknivélin
hefur verið í þróun í tæp þrjú ár.
Þetta er í fyrsta sinn sem niðurstöð-
ur hennar eru birtar.
VR hefur staðið fyrir árlegri könn-
un á launakjörum félagsmanna sinna
í tvo áratugi, en það var ekki gert á
þessu ári vegna upplýsinganna af
Minum síðum.
Heildarlaunin að
meðaltali 652 þúsund