Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 Ársfundur – stjórnarkjör 2019 Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudag- inn 28. júní 2019 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík. Dagskrá: • Venjuleg ársfundarstörf. • Stjórnarkjör skv. samþykktum. • Önnur mál. Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu. LSB auglýsir eftir framboðum til setu í stjórn sjóðsins: • Eitt sæti í aðalstjórn til fjögurra ára. • Tvö sæti í varastjórn, annað til tveggja ára og hitt til fjögurra ára. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að fullnægja kröfum um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. lögum nr. 129/1997, reglum FME og samþykktum sjóðsins og vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME. Framboðsfrestur er til 31. maí 2019. Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að skila vegna framboða til setu í stjórn sjóðsins má sjá á heimasíðu sjóðsins, www.lsb.is. Stjórn Lífeyrissjóðs bænda Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is Byggingarréttur fyrir 4. hæð. Samtals eftir stækkun: 642 fm. 1.856,9 rúmm. Miklir möguleikar! Miklir möguleikar fyrir margskonar starfssemi s.s. íbúðarhótel, verslun, skrif- stofur, íbúð, þjónustu eða hvað sem er. Bílastæði fyrir framan og á bakvið. Hugsanleg kaup með eða án veitingastaðar á fyrstu hæð. Afhending er samkvæmt samkomulagi. Vinsamlega sendið tilboð til tomas6911@gmail.com S: 896 - 35 - 36 Til sölu - Allt húsið Eignarlóð - Í hjarta miðbæjar Reykjavíkur Hverfisgata 123 Geymið auglýsinguna Þristavinafélagið Pál Sveinsson til varðveislu og hefur viðhaldið vélinni síðan. Á D-deginum svonefnda fyrir 75 árum höfðu DC-vélar bandamanna mikilvægu hlutverki að gegna en um 800 flugvélar af gerðinni DC-3/C-47, stundum nefndar Dakotas eða Daks, flugu með um 24 þúsund fallhlífar- hermenn yfir Normandí árla morg- uns 6. júní 1944. Sameinuðust þeir um 160 þúsund landgönguliðum til að ráðast gegn herliði Þjóðverja. Vélarnar 15 leggja af stað frá Ox- ford á austurströnd Bandaríkjanna og fara sömu leið yfir N-Atlantshaf og farin var gjarnan á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar, leið sem nefndist á frummálinu Blue Spruce. Frá Oxford verður flogið til Goose Bay í Nýfundnalandi og gist eina nótt, þaðan til Narsarsuaq á Græn- landi, þá til Reykjavíkur, þar sem flotinn mun dvelja í tvo daga, og það- an til Prestwick á vesturströnd Skotlands. Næst verður flogið á Duxford-flugvöll norður af Lund- únum en þar sameinast fleiri DC- vélar frá Englandi og meginlandi Evrópu dagana 1. og 2. júní áður en flotinn tekur lokaflugið yfir Ermar- sundið til Normandí 5. júní. Sjálf hátíðin í Normandí er frá 6.-9. júní nk. en margar vélanna munu einnig taka þátt í athöfn í Berlín í sumar í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá lokum loftbrúarinnar til Berlínar, þegar Rússar lokuðu land- leiðinni til Berlínar árin 1948-1949. En bandamenn hófu þá umfangs- mikla loftflutninga með birgðir til borgarinnar, m.a. með DC-3 flug- vélum. á milli lendinga og svo þarf að taka tillit til annarrar flugumferðar á sama tíma. Tómas Dagur segir Þristavinafélagið hafa skoðað alvar- lega þann möguleika að fljúga héðan á DC-3 vél félagsins, Páli Sveins- syni, til Normandí en ekki tókst að fjármagna þann leiðangur. Verið er að leggja lokahönd á að gera Pál kláran fyrir sumarið og stefnt að því að fljúga honum suður um helgina þannig að hann geti hitt systkini sín frá Bandaríkjunum eftir helgina. Páll hefur líkt og undanfarin ár verið í vetrardvala á Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli. 800 DC-3 vélar tóku þátt í inn- rásinni fyrir 75 árum Páll Sveinsson kom upphaflega til landsins í desember 1943 til flutn- inga fyrir bandaríska herinn á Keflavíkurflugvelli. Árið keypti 1946 keypti Flugfélag Íslands vélina til farþegaflugs og var notuð sem slík til fjölda ára, eða þar til Land- græðsla ríkisins fékk hana til afnota árið 1972 og var hún í landgræðslu- flugi allt til ársins 2006. Þá fékk SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Mikill viðbúnaður verður á Reykja- víkurflugvelli í næstu viku þegar þangað koma 15 flugvélar af gerð- inni DC-3/C-47. Vélarnar munu leggja af stað frá Bandaríkjunum á sunnudag en áfangastaðurinn er Normandí í Frakklandi en þar fer fram athöfn 6. júní í tilefni þess að 75 ár eru þá liðin frá innrásinni í Norm- andí, sem markaði upphaf endiloka síðari heimsstyrjaldarinnar. Von er á vélunum til Reykjavíkur að kvöldi mánudagsins 20. maí eða að morgni daginn eftir, allt eftir því hvernig viðrar á leiðinni. Fjölmargir aðilar vinna nú að undirbúningi fyrir komu vélanna, eins og Isavia, BIRK Flugþjónustan á Reykjavíkurflugvelli, Þristavina- félagið, AOPA á Íslandi (Félag flug- manna og flugvélaeigenda) og Skelj- ungur, en flugvélarnar þurfa gríðarlegt magn af eldsneyti, eða um 2.000 lítra hver um sig. Nálgast elds- neytismagnið helminginn af því sem einkaflugvélar nota árlega á Reykja- víkurflugvelli. Unnið er að því að finna vélunum stæði á flugvellinum á meðan þær stoppa hér. BIRK Flugþjónustan vinnur að því, í samráði við Isavia, og meðal svæða sem koma til greina er neyðarflugbrautin svonefnda, sem hefur verið aflögð. Er til skoð- unar að hafa vélarnar til sýnis fyrir almenning. Var til skoðunar að senda Pál Sveinsson héðan Leiðangurinn nefnist D-Day Squadron og talsmaður hans, Mor- eno Aquiari, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að lokaundir- búningi ferðarinnar miðaði vel. Verður leiðangurinn kynntur sér- staklega á blaðamannafundi vestan hafs í dag. Auk vélanna 15 sem hing- að koma munu aðrar 15 vélar frá Evrópu sameinast leiðangrinum fyr- ir flugið yfir Ermarsundið til Norm- andí. Að sögn Aquiari tóku fimm þessara véla, sem lenda í Reykjavík, þátt í innrásinni í Normandí 6. júní 1944. Tómas Dagur Helgason, formaður Þristavinafélagsins, man ekki til þess í seinni tíð að jafn margar vélar af þessari gerð hafi lent á Reykja- víkurflugvelli á einum degi. Mun lending allra vélanna geta tekið 3-4 tíma því 10-15 mínútur líða Ljósmyndir/Daks over Normandy Þristar Vélar af þessari tegund eru væntanlegar til Reykjavíkur næsta mánudagskvöld eða þriðjudagsmorgun. Fimmtán Þristar á leiðinni til Reykjavíkur  Fljúga til Normandí til að fagna 75 árum frá innrásinni Innrás Um 800 vélar af gerðinni DC-3 flugu með 24 þúsund fallhlífar- hermenn yfir Normandí í Frakklandi árla morguns 6. júní árið 1944. Okkar maður Páll Sveinsson kemur frá Akureyri eftir vetrardvala. Ljósmynd/Haukur Snorrason Heildarlaun félagsmanna VR voru 652 þúsund krónur að meðaltali í febrúar 2019 en miðgildi heildar- launa var 600 þúsund. Þetta kemur fram í launarannsókn félagsins. Grunnlaun voru að meðaltali 644 þúsund en miðgildi grunnlauna var 591 þúsund. Fram kemur að launa- rannsókn VR byggist á niðurstöðum í reiknivélinni Mín laun á Mínum síð- um á vef félagsins. Félagsmenn skrái þar starfsheiti sitt og vinnu- tíma í reiknivélina og fái birtan sam- anburð sinna launa við félagsmenn í samskonar starfi. „Miðað er við að lágmarki 60% starfshlutfall sem reiknað er upp í fullt starf og er allur samanburður því á grundvelli a.m.k. 100% starfs- hlutfalls. Launarannsókn fyrir febr- úar 2019 byggist á tæplega 11 þús- und skráningum en félagsmenn VR í þeim mánuði voru um 36 þúsund,“ segir ennfremur en launareiknivélin hefur verið í þróun í tæp þrjú ár. Þetta er í fyrsta sinn sem niðurstöð- ur hennar eru birtar. VR hefur staðið fyrir árlegri könn- un á launakjörum félagsmanna sinna í tvo áratugi, en það var ekki gert á þessu ári vegna upplýsinganna af Minum síðum. Heildarlaunin að meðaltali 652 þúsund
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.