Morgunblaðið - 16.05.2019, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
atvinnuþróunar borgarinnar við fyr-
irspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæð-
isflokks um byggingaráform á
Keldnasvæðinu í tengslum við kjara-
samninga.
Þar kemur fram að í aðalskipulagi
Reykjavíkur 2010-2030 sé svæðinu
skipt í tvo hluta. Annars vegar mið-
svæði og hins vegar íbúðabyggð.
Fyrst og fremst er gert ráð fyrir
verslunum og skrifstofum á miðsvæð-
inu. Áætluð uppbygging atvinnu-
húsnæðis er 50 þúsund fermetrar.
Uppbygging atvinnuhúsnæðis verður
að skipulagstímabili loknu, 2030. Á
efri hluta svæðisins er gert ráð fyrir
íbúðarbyggð, allt að 400 íbúðum.
Ekki er óhugsandi að skipulaginu
verði breytt og íbúðum fjölgað á
kostnað atvinnuhúsnæðis.
Í Keldnaholti sé fyrst og fremst
gert ráð fyrir verslunum og skrif-
stofum á miðsvæðinu. Ekki er gert
ráð fyrir íbúðarhúsnæði, hótelum eða
matvöruverslunum. Áætluð aukning
atvinnuhúsnæðis 100 þúsund fer-
metrar. Stærsti hluti aukningar at-
vinnuhúsnæðis er að skipulags-
tímabili loknu, þ.e. eftir 2030.
„Viðræður hafa verið við ríkið um
svæðið í mörg ár, en þær viðræður
hafi alltaf strandað á tvennu. Í fyrsta
lagi hafi ríkið viljað fá hámarksverð
fyrir landið líkt og lög kveði á um og
því hafi ekki gengið upp að hafa þar
félagslega blöndun með ódýrara hús-
næði. Þá hafi samgöngur þurft að
ganga upp sem þær geri ekki miðað
við stöðuna í dag. Ljóst er að mark-
vissar samgöngur með tilkomu borg-
arlínu munu gera þennan kost fýsi-
legri,“ segir í svarinu.
Ríkissjóður Íslands hefur gert tvo
samninga við sveitarfélög með ábata-
skiptasamkomulagi. Fyrri samning-
urinn var gerður við Reykjavíkur-
borg í mars 2013 um sölu á landi við
Skerjafjörð og sá seinni í apríl 2017
við Garðabæ um sölu á jörðinni Vífils-
stöðum. Samningur um Keldur og
Keldnaholt gæti orðið þriðji í röð
slíkra samninga.
Í maí 2017 lagði Sigurður Ingi Jó-
hannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, þá spurningu fyrir Bene-
dikt Jóhannesson, þáverandi fjár-
málaráðherra, hvort Reykjavíkur-
borg stæði til boða að kaupa land
Keldna og Keldnaholts á sömu kjör-
um og Garðabær keypti land Vífils-
staða.
„Viðræður hafa verið við Reykja-
víkurborg með hléum um langt skeið
vegna áhuga borgarinnar á landi rík-
isins við Keldur og Keldnaholt,“ sagði
í svari fjármálaráðherra.
Ríkið fékk ábata af sölu
Afstaða ríkisins hafi ávallt verið sú
að það sé reiðubúið að ganga til
samninga við borgina um sölu á um-
ræddum landsvæðum enda henti þau
að mati ríkisins mjög vel til uppbygg-
ingar jafnt íbúðarbyggðar sem at-
vinnusvæða. Ríkið hafi ítrekað lagt til
að gerður yrði svokallaður ábata-
skiptasamningur um landsvæði ríkis-
ins á svæðinu þar sem ábata af sölu á
byggingarrétti yrði skipt milli ríkis
og sveitarfélags,“ sagði m.a. í svari
ráðherrans.
Samningurinn um Vífilsstaða-
landið var undirritaður af Benedikt
Jóhannessyni fjármálaráðherra og
Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra
Garðabæjar, í apríl 2017. Umsamið
grunnkaupverð var 558,6 milljónir
króna. Til viðbótar við rétt til grunn-
kaupverðs átti seljandi (ríkið) rétt á
greiðslum vegna hlutdeildar í ábata
af sölu alls byggingaréttar á til-
greindum svæðum. Hlutdeild ríkisins
í skiptingu ábatans var 60% af sölu-
verði byggingaréttar en hlutdeild
Garðabæjar var 40%.
Byggingarland á góðum stað
Viðræður eru hafnar um kaup Reykjavíkur á landi Keldna og Keldnaholts Ríkið er tilbúið að
selja landið með því skilyrði að fá ábata af uppbyggingunni Verði íbúðabyggð og atvinnuhúsnæði
Yfirlitsmynd Rauðu línurnar afmarka landið. Land Keldna er merkt A2, A3, B1 og B2. Land Keldnaholts merkt A1.
Keldnalandið liggur á milli Vesturlandsvegar, neðst á myndinni, og Húsa- og Foldahverfis í Grafarvogshverfi.
Alls 117 hektarar
» Landsvæði ríkisins við Keld-
ur er um 86 hektarar og
Keldnaholt er um 31 hektari að
stærð.
» Alls eru þetta því 117 hekt-
arar byggingarlands.
» Ríkið er reiðubúið til við-
ræðna við Reykjavíkurborg um
að selja allt þetta land.
» Borgin telur hins vegar að
umferðarmannvirki í nágrenn-
inu anni ekki aukinni umferð.
Því geti uppbygging ekki hafist
fyrr en búið er að leggja borg-
arlínu.
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Land Keldna og Keldnaholts hefur
verið í umræðunni í áratugi sem
mögulegt byggingarland í Reykjavík.
Það kemur ekki á óvart enda landið
vel í sveit sett. Á Keldnalandi er
mögulegt að reisa íbúðabyggð í halla
á móti suðri.
Fram kom í frétt í Morgunblaðinu
fyrr í þessum mánuði að viðræður
væru hafnar milli ríkisins og Reykja-
víkurborgar um kaup borgarinnar á
landinu. Þær eru á frumstigi. Um er
að ræða mikið byggingarland, sunn-
an við Folda- og Húsahverfi í Grafar-
vogi. Mögulegt er talið að allt að fimm
þúsund manna byggð verði í Keldna-
landi.
Landsvæði ríkisins við Keldur og í
Keldnaholti er alls 117 hektarar. Rík-
ið er reiðubúið til viðræðna um að
selja allt þetta land, samkvæmt upp-
lýsingum frá fjármálaráðuneytinu.
Að sögn ráðuneytisins liggur ekki
fyrir nýlegt verðmat á Keldnalandi
og Keldnaholti enda sé verðmæti
landsins mjög háð skipulagi og mögu-
legri nýtingu þess.
Tengist lífskjarasamningi
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
vegna lífskjarasamninganna á dög-
unum var kafli um ráðstöfun ríkislóða
fyrir íbúðir, þar á meðal fyrir leigu-
markað.
Átakshópur ríkisstjórnarinnar um
húsnæðismál, sem skilaði skýrslu í
janúar sl., taldi að Keldur og eftir at-
vikum Keldnaholt gætu nýst sem
byggingarland þar sem m.a. ákveðinn
hluti íbúða yrði hagkvæmar leigu-
íbúðir fyrir tekjulága og einnig al-
mennar íbúðir og veittur yrði af-
sláttur af lóðarverði. Aðrar lóðir yrðu
seldar á markaðsvirði.
Lagði hópurinn til að ríki og
Reykjavíkurborg kæmust að sam-
komulagi um að hefja skipulagningu
Keldnalands sem fyrst.
Á fundi borgarráðs 9. maí sl. var
lögð fram umsögn skrifstofu eigna og
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
m.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og fleira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888