Morgunblaðið - 16.05.2019, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Landsvirkjun fékk erlendan lands-
lagsarkitekt til að endurhanna Búr-
fellslund til að mæta athugasemdum
sem gerðar voru við fyrri áform. Til-
laga hans gengur út á það að færa
vindmyllurnar til innan núverandi
rannsóknarsvæðis, norður fyrir veg
og að Sultartangastíflu. Vindmyll-
unum er komið fyrir á minna svæði
en áður var áformað. Þær eiga að
falla betur inn í landslagið og blasa
ekki eins við af veginum og eru í
hvarfi þegar litið er yfir svæðið frá
vinsælum áningarstöðum.
Vindmyllurnar eru vitaskuld
þarna áfram og sjást frá öðrum sjón-
arhornum.
Mikil áhrif á ferðasvæði
Í tillögum verkefnisstjórnar 3.
áfanga rammaáætlunar, sem raunar
eru óafgreiddar frá Alþingi, er Búr-
fellslundur settur í biðflokk. Megin-
rökin eru það mat faghóps 2 sem
taldi að vindmyllurnar myndu hafa
mikil áhrif á ferðasvæði. Taldi fag-
hópurinn þennan kost hafa meiri
áhrif á ferðamennsku og útivist en
nokkur annar virkjanakostur sem
skoðaður var.
Bent var á að allir ferðamenn sem
fari um Sprengisandsleið og Fjalla-
bak muni sjá vindmyllurnar og þær
muni því hafa áhrif á mörg ferða-
svæði sem tengjast Sprengisands-
leið, svo og á mörg verðmæt ferða-
svæði á sunnanverðu hálendinu, svo
sem Landsmannalaugar, Heklu,
Veiðivötn og Eldgjá. Verkefnis-
stjórn taldi óhjákvæmilegt að bíða
með ákvörðun um ráðstöfun svæð-
isins og flokkaði í biðflokk í tillögum
sínum.
Landsvirkjun gerði alvarlegar at-
hugasemdir við þetta mat og benti á
að sum svæðin sem starfshópurinn
tilgreinir liggi óravegu frá stöðum
sem myllurnar sjást frá. Reiknaðist
Landsvirkjun til að faghópurinn
teldi að Búrfellslundur myndi hafa
áhrif á 11% landsins. Þá taldi Lands-
virkjun að ekki hefði verið litið til
þess hversu mikið svæðið væri þeg-
ar nýtt til orkuvinnslu eða innviða
sem því fylgja.
Skipulagsstofnun taldi í áliti sínu
á umhverfismati Búrfellslundar að
tilefni væri til að endurskoða áform
um uppbyggingu vindorkugarðsins.
Vantar farveg fyrir breytingar
Óli Grétar Blöndal Sveinsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Landsvirkjunar, segir að eins og
staðan er í dag sé enginn farvegur til
að koma breytingum á hönnun Búr-
fellslundar á framfæri og bíði
Landsvirkjun með framhald verk-
efnisins. Óli segir að ef þau vanda-
mál sem nú eru uppi í reglugerða- og
leyfisveitingaferli vindorkunnar
yrðu leyst ætti Landsvirkjun að geta
farið af stað með uppbyggingu Búr-
fellslundar með skömmum fyrir-
vara. helgi@mbl.is
Landsvirkjun hefur látið endurhanna Búrfellslund
Möstrin skyggja ekki lengur á Heklu
Mynd/Landsvirkjun
Búrfellslundur Endurhönnun vindorkugarðsins miðar að því að fella vindmyllurnar inn í landslagið og að þær sjáist síður frá vinsælum áningarstöðum.
Efri myndin sýnir hvernig myllurnar sáust þegar horft er frá Háafossi að Heklu. Á neðri myndinni er útsýnið frá sama stað eftir endurhönnun.
Vindorka