Morgunblaðið - 16.05.2019, Síða 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Mótorinn er úr vegavinnuvél, væng-
irnir úr striga, hjólin fengin að láni
úr tvíhjóla léttivagni. Hér er átt við
flugvél sem poppkornssali í Pakistan
smíðaði sér og hefur framtak hans
náð augum og eyrum flughers lands-
ins.
Saga Muhammad Fayyaz hefur
fangað hug og hjörtu fjölda sam-
borgara hans, í landi þar sem millj-
ónir manna hafa takmarkaðan að-
gang að menntun en reyna samt að
freista gæfunnar og nýta tækifæri
sem bjóðast til betra lífs.
„Ég var bókstaflega í loftinu, ég
fann ekkert fyrir öðru,“ sagði Fa-
yyaz um fyrsta flugið í flugvélinni
sem hann smíðaði upp úr teikningum
sem hann fann á veraldarvefnum og
bútum úr sjónvarpsmyndum.
Sælustraumar hafa áður farið um
Pakistana sem eiga því að venjast að
upp spretti undrabörn og gáfnaljós
úr ýmsum kimum landsins og öðlist
stundarfrægð. Til að mynda verk-
fræðingur sem sagðist árið 2012 hafa
fundið upp bíl sem ganga myndi fyrir
vatni í stað olíu og bensíns. Vísinda-
menn hröktu kenningu hans um síð-
ir.
Fayyaz stendur á því fastar en fót-
unum að hann hafi flogið og sér flug-
herinn ekki ástæðu til annars en
veita vélinni athygli. Fulltrúar hers-
ins hafa heimsótt Fayyaz margsinnis
og gefið út vottorð þar sem framtak
hans er lofað, að sögn poppkornssal-
ans.
Stöðugur straumur fólks hefur
legið að heimili hans til að skoða
sköpunarverkið sem Fayyaz varð-
veitir í forgarði þriggja herbergja
heimilis síns í þorpinu Tabur í miðju
Punjab-héraði.
Dreymir um þotu
Hinn 32 ára gamli kaupsýslumað-
ur segist hafa átt þann draum í æsku
að ganga í flugherinn. Faðir hans
hafi hins vegar dáið er piltur var í
grunnskóla og það varð til þess að
hann hætti námi því hann þurfti að
vinna fyrir heimilinu; ala önn fyrir
móður sinni og fimm yngri systk-
inum.
Flugáhugi hans dvínaði ekki með
aldrinum og hann ákvað dag nokk-
urn að taka þá áhættu að láta draum-
inn um að fljúga rætast. Lagði hann
allt í sölurnar til að skapa og smíða
sína eigin flugvél. Á daginn seldi
hann poppkorn og vann sem öryggis-
vörður á kvöldin og sparaði hverja
einustu rúpíu sem unnt var. Hann
varð að byrja á því að afla sér upplýs-
inga um flugför. Byrjaði hann á að
skoða þætti sjónvarpsstöðvar Nat-
ional Geographic um flugslys og
rannsókn þeirra og öðlaðist þar
skilning á kný, loftþrýstingi, og
snúningsátaki skrúfu. Til að fylla
upp í eyðurnar notaðist hann við
ódýran aðgang að internetinu í ná-
lægri borg. Kvaðst Fayyaz hafa
splæst saman teikningar af flug-
vélum til að skapa sína eigin flugvél.
Til að fjármagna smíðina seldi
hann hluta af landareign fjölskyld-
unnar og tók til viðbótar 50.000 rúpíu
smálán sem hann er enn að borga
niður, en lánsupphæðin svaraði til
rúmra 42.000 króna. Sjóði sína brúk-
aði hann til kaupa á efni til flugvél-
arsmíðinnar. Hann keypti striga-
sekki í heildsölu og fékk síðan
góðhjartaðan verkstæðismann til að
smíða fyrir sig skrúfuna á flugvélina.
Þeir kynntust er sá fyrrnefndi var að
skrapa saman smíðaefni hjá fólki.
Þeir prófuðu sig áfram uns æski-
legur árangur náðist. Sumt af búnaði
flugvélarinnar þurfti því að skipta
um, hönnun að breyta og víra- og
leiðslulagnir endurskoða og hagræða
öðruvísi en upphaflega var ætlunin.
Fjölskyldu Fayyaz hefur ekkert
litist á blikuna og óttaðist hugfjötra
fyrirvinnunnar. „Ég lagði alltaf að
honum að hætta. Sagði honum að
helga sig fremur fjölskyldunni og
vinnunni, hann væri orðinn vitstola
út af engu. En hann hlustaði ekki og
tók ekkert mark á mér,“ rifjar móðir
hans, Mumtaz Bibi, upp. Og Fayyaz
hélt sínu striki og hafði á endanum
smíðað flugvél – litla og brothætta og
málaði hana í skærbláum lit.
Læstur inni með gangsterum
Í febrúar síðastliðnum, eftir meira
en tveggja ára aðhlátur, kvaðst Fa-
yyaz tilbúinn að flugprófa farartækið
heimasmíðaða. Heldur hann því fram
að vinir hans hafi lokað fyrir sig veg-
arspotta sem hann brúkaði sem flug-
braut til fyrsta flugsins. Er flugvélin
hafi náð 120 km/klst hraða hafi hún
losaði sig úr hlekkjum þyngdarafls-
ins og lyft sér upp af flugbrautinni,
sagði Ameer Hussain, sjónarvottur
sem ók mótorhjóli samhliða flygild-
inu í flugtaksbruninu, við AFP-
fréttastofuna. „Hún var 60-75 senti-
metra yfir jörðinni og flaug tvo til
þrjá kílómetra áður en hún lenti,“
sagði Hussain, en fréttastofunni hef-
ur ekki tekist að sannreyna vitnis-
burð hans.
Flugið hafði heppnast það vel að
Fayyaz vildi gera aðra tilraun
frammi fyrir þorpsbúum í Tabur sem
margir hverjir skopuðust að við-
fangsefni hans.
Hann valdi 23. mars, þjóðhátíðar-
dag Pakistans, til að frumsýna flug-
vélina. Að sögn lögreglu söfnuðust
hundruð manns að húsi hans og
margir þeirra héldu á þjóðfána. En
áður en Fayyaz gat svo mikið sem
gangsett hreyfilinn stormaði lög-
reglan á vettvang, handtók
flugvélarsmiðinn og gerði sköp-
unarverk hans upptækt.
„Mér leið eins og ég hefði drýgt
einhvern mesta glæp í sögunni, og
fannst ég vera versta manneskjan í
Pakistan. Mér var stungið í steininn
og læstur inni með glæpamönnum,“
sagði hann. Dómstóll leysti hann úr
haldi og dæmdi til sektar, 3.000 rúpí-
ur, eða sem svarar 2.300 krónum. Í
heimsókn AFP-fréttastofunnar á
lögreglustöðina fékk hún þau svör að
Fayyaz hefði verið handtekinn þar
sem flugvél hans varðaði við öryggi
landsins; af henni stafaði ógn. „Hon-
um var afhent flugvél aftur til vitnis
um velvilja lögreglunnar. Verði hann
sér úti um flugréttindi er honum
frjálst að fljúga henni,“ sagði Zafar
Iqbal lögregluforingi.
Hin illu örlög Fayyaz leiddu til
skjótrar og mikillar frægðar á sam-
félagsmiðlum. Netverjar sumir
sögðu hann „hetju“ og hvetjandi fyr-
irmynd. Fulltrúar flughersins hafa
heimsótt hann tvisvar og skoðað
flugvélina í krók og kring. Yfirmaður
flugherstöðvar í nágrenninu gaf út
vottorð þar sem Fayyaz er hrósað
fyrir „ástríðu og handlagni“ við smíði
þess sem hann kallar „örsmáa
grundvallarflugvél“.
Poppkornssali smíðaði sér flugvél
AFP
Áhugi Muhammad Fayyaz útskýrir flugvélarsmíðina fyrir gestum og gangandi við heimili sitt í Tabor í Pakistan.
Pakistani fullyrðir að flugvél sín hafi flogið þótt ekki hafi tekist að sannreyna það Handtekinn
þegar hann ætlaði að sýna flugvélina opinberlega Hlaut skjóta frægð á samfélagsmiðlum
Draumur Fayyaz má ekki fljúga vélinni því hann er réttindalaus.
Demparar og gormar
Fjöðrunarbúnaður
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Smart
lands
blað
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 31. maí
Í Smartlandsblaðinu verður fjallað um
tískustrauma í fatnaði, förðun, snyrtingu, sólar-
kremum, sólgleraugum, sumarskóm og sundfatnaði
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 27. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ