Morgunblaðið - 16.05.2019, Síða 39

Morgunblaðið - 16.05.2019, Síða 39
Ríkisstjórnin er sigri hrósandi yfir því að fullrúar EFTA- ríkjanna og ESB gera ekki athuga- semdir við þau áform stjórnarinnar að sam- þykkja þriðja orku- pakkann inn í EES- samninginn og láta samt hjá líða að upp- fylla allar skuldbind- ingar sem pakkanum fylgja. Meirihluti utanríkisnefndar virðist trúa því að yfirlýsingar viðkom- andi stjórnvalda hafi leyst allan vanda og nú sé ekkert eftir nema fallast á að innleiða þriðja orku- pakkann í EES-samninginn. En það er bara ekki svo einfalt. Það má vel vera að yfirlýsingar EFTA og ESB merki að stjórn- völd í þessum ríkjum geti síður stefnt Íslandi fyrir innleiðingar- brot. En það virðist hafa stein- gleymst að slíkar yfirlýsingar skerða ekki rétt hagsmunaaðila á EES-svæðinu sem byggja sinn rétt á sjálfum EES-samningnum. Láti þeir reyna á sinn rétt mun EFTA-dómstóllinn dæma eftir innihaldi EES- samningsins. Þar koma einhliða fyr- irvarar og pólitískar yfirlýsingar ekki við sögu enda væri þá orðið lítið hald í EES- samningnum. Þriðja orkupakk- inn leggur miklar skyldur á ríkið Ríkinu verður með- al annars skylt að „ryðja úr vegi hindr- unum fyrir millilandatengingum“. Svíkist stjórnvöld um í þeim efn- um veldur það tjóni fyrir þá sem vilja selja orku um sæstreng og einnig þá sem vilja reka slíkan sæstreng. Orkustofnun verður óháð innlendum stjórnvöldum og skal hún meðal annars „afnema takmarkanir í viðskiptum með raf- magn milli aðildarríkjanna“. Einn- ig skal Orkustofnun „ákvarða eða samþykkja, í samræmi við gagn- sæjar viðmiðanir, gjaldskrár fyrir flutning og dreifingu eða að- ferðafræði þeirra“. Flutnings- kerfið er í eigu þjóðarinnar sem hefur fórnað undir það jarðnæði og eflaust meira en hundrað millj- örðum. Er óhætt að framselja vald Mun forseti Íslands skrifa upp á óútfylltan víxil á þjóðina? Eftir Frosta Sigurjónsson Frosti Sigurjónsson » Forseti Íslands þarf sem kunnugt er að staðfesta alla milliríkja- samninga og líka breyt- ingar á þeim. Höfundur er rekstrarhagfræðingur og fv. þingmaður. yfir því til stofnunar sem lýtur ekki innlendri stjórn? Einnig skal veita einkaorkuverum aðgang að flutningskerfinu á sama verði og býðst virkjunum í okkar eigu. Kalli það eftir aukinni burðargetu flutningsnetsins skal fjárfest í þeirri aukningu á kostnað allra sem nota netið. Hvað gæti það kostað okkur? Svo mætti lengi telja því orkupakkanum fylgja mjög víðtækar skyldur sem varða mikla hagsmuni og veita einkaað- ilum í raforkugeiranum mikil rétt- indi. Milljarðakröfur gætu stofnast á hendur ríkinu Þeir sem vilja virkja hér á landi eiga mikla hagsmuni af því að hingað komi sæstrengur því þá hækkar raforkuverð til muna. Sæ- strengsfyrirtæki hafa lengi haft áhuga á að tengja Ísland við orku- markað ESB. Ice-link hefur verið á lista ESB yfir mikilvæga innviði sem geta fengið styrki af hálfu sambandsins. Að Ice-link- verkefninu standa Landsnet og National Grid, alþjóðlegt fyrirtæki sem rekur marga sæstrengi. Nat- ional Grid stendur vart að 800 milljarða verkefni bara til gamans. Mögulegt tjón slíks aðila af því að Ísland innleiði ekki þriðja orku- pakkann að fullu gæti hæglega numið milljörðum eða jafnvel tug- um milljarða. Ekki er að sjá að áhættuþættir af þessum toga hafi verið kannaðir af hálfu stjórvalda eða Alþingis. Utanríkisráðuneytið hefur reyndar látið kanna ýmsa aðra þætti málsins. Carl Bauden- bacher, fyrrverandi dómari við EFTA-dómstólinn, var fenginn til að fjalla um þá leið að óska und- anþágu frá sameiginlegu EES- nefndinni. Hans niðurstaða var að sú leið væri fær eins og menn vissu raunar fyrir. Gagnlegra hefði samt verið að fá álit Carls á því hvort einhliða fyrirvarar af hálfu Íslands væru líklegir til að halda fyrir EFTA-dómstólnum. Lausnin blasir við Til að útiloka tjón þurfa þing- menn að vísa orkupakkanum aftur til utanríkismálanefndar. Breyta þarf þingsályktuninni á þann veg að ríkisstjórninni verði aðeins heimilt að samþykkja þriðja orku- pakkann inn í EES-samningin eft- ir að sameiginlega EES-nefndin hefur fundað og veitt Íslandi skýra undanþágu frá innleiðingu pakkans í landsrétt. Slík undan- þága ætti að vera auðsótt ef marka má yfirlýsingar EFTA og ESB um að pakkinn hafi afar tak- markaða þýðingu hér á landi. Sameiginlega EES-nefndin fundar reglulega og gæti því leyst málið á skömmum tíma. Að svo búnu gætu utanríkis- ráðherrann og forseti Íslands staðfest með undirskriftum sínum að þriðji orkupakkinn sé orðinn hluti af EES-samningnum. For- setinn þarf sem kunnugt er að staðfesta alla milliríkjasamninga og breytingar á þeim. Verði ekk- ert gert til að draga úr þeirri áhættu sem hér gæti skapast, hlýtur forsetinn að skoða málið mjög rækilega áður en hann skrif- ar undir. Að öðrum kosti væri hann að samþykkja óútfylltan víxil á þjóðina, þar sem fjárhæðirnar gætu hlaupið á tugum milljarða. 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 Nú eru fyrir at- vinnuveganefnd Al- þingis þrjú mál í tengslum við sam- þykki Íslands á þriðja orkupakkanum. Það fyrsta er mál um breytingar á lögum um Orkustofnun (OS); annað er mál um breytingu á þings- ályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutn- ingskerfis raforku; og þriðja er mál um breytingu á raforkulögum um tilvísun í þá stefnu stjórnvalda. Fyrsta málið, um breytingar á lögum um OS, lýtur að auknu sjálf- stæði raforkueftirlits OS. Einnig hækkun sektarheimilda, sem munu geta numið 10% af veltu fyrir- tækja, og hækkun raforkueftirlits- gjalds vegna aukinna skyldna raf- orkueftirlits OS. Sjálfstæði raforkueftirlits og annarra eftir- litsstofnana hefur ekki verið ábóta- vant í íslensku stjórnkerfi og er hér um að ræða óeðlileg afskipti af hálfu ESB, sem vega að sjálfstæði íslenskrar stjórnsýslu. Hin tvö málin snúast um að við innleiðingu þriðja orkupakkans eru stjórnvöld að reyna með íslenskri löggjöf að tryggja að ekki verði lagður sæstrengur til ESB nema með samþykki Alþing- is. Þetta er gert með breytingu á raforku- lögum, þar sem segir: „Um tengingu raf- orkukerfis landsins við raforkukerfi ann- ars lands í gegnum sæstreng fer sam- kvæmt stefnu stjórn- valda um uppbygg- ingu flutningskerfis raforku.“ Málið er að innan EES gilda EES-lög, ekki íslensk lög. Stefna stjórnvalda um uppbygg- ingu flutningskerfis raforku er ákveðin með þingsályktun og því þarf að breyta henni með nýjum tölulið um að sæstrengur verði ekki lagður nema með samþykki Alþingis. Ekki nægir því að setja lagafyr- irvara við innleiðingu á sjálfum þriðja orkupakkanum í íslenskan rétt; það er þriggja ESB-gerða um raforku og einni um Samstarfs- stofnunina. Einnig á í íslenskum lögum að kveða á um að sæstreng- ur til ESB verði ekki lagður nema með samþykki Alþingis. Hér eru notuð bæði belti og axlabönd og farið í lögfræðiloftfimleika. Stóra málið er að til lengri tíma litið er engin öryggisdýna þegar kemur að því að Íslendingar spyrja sig hvort þeir stjórni orkumálum sínum sjálfir eða ekki. Ljóst er að fyrir- hugaðar breytingar, á raforku- lögum og þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutn- ingskerfis raforku, falla utan gild- issviðs raforkulaga. Ástæðan er að gildissvið raforkulaga tekur „til vinnslu, flutnings, dreifingar og viðskipta með raforku á íslensku forráðasvæði“. Millilandatengingar falla utan gildissviðsins. Alþingi getur ekki samþykkt breytingar bæði á raforkulögum og á þings- ályktun sem byggist á raforku- lögum sem falla utan gildissviðs þeirra laga. Ísland er án orkustefnu, en ákvörðun um grundvallarmál sem sæstrengur til Evrópu er á ekki heima í stefnu stjórnvalda um upp- byggingu flutningskerfis raforku. Sú stefna er samkvæmt raforku- lögum einungis til fjögurra ára í senn og felur ekki í sér grundvall- arstefnumótun í orkumálum. Þetta hafa stjórnvöld viður- kennt. Haustið 2011 lagði ráðherra fyrir Alþingi skýrslu, „Heildstæð orkustefna fyrir Ísland“, með kafla um sæstreng til flutnings raforku á milli markaða. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra skipaði vorið 2018 starfshóp til að vinna orkustefnu fyrir Ísland. Leggja á tillögur hópsins fyrir Alþingi í byrjun árs 2020. Í erindisbréfi ráðherra, dags. 23. apríl 2018, kemur fram að í orkustefnu þurfi áherslur stjórn- valda að ná til ákveðinna þátta, þar á meðal: Hugmynda um útflutning raforku í gegnum sæstreng. Orku- stefnan á að vera til 20-30 ára og mun sæta reglulegri endurskoðun (á 4-5 ára fresti). Af hverju sami ráðherra vill að kveða skuli á um ákvörðun um sæstreng í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutn- ingskerfis raforku sem er til fjög- urra ára, þegar hann hefur skipað starfshóp til að fjalla um sama mál í orkustefnu til 20-30 ára er óskilj- anlegt. Orkustefna ESB er forgangsmál framkvæmdastjórnar ESB og er hún gríðarlega umfangsmikil. Að- almarkmið orkustefnu ESB er einn samtengdur innri raforkumark- aður, en markmiðum orkustefnu ESB er komið í framkvæmd í áföngum með orkupökkum, nú með þriðja orkupakkanum. Evrópu- þingið telur að með þriðja orku- pakkanum sé lagður hornsteinn að innri orkumarkaði ESB. Pakkinn er að stórum hluta tæknileg mark- aðslöggjöf en felur í sér grundvall- arbreytingu með Samstarfsstofn- uninni. Með innleiðingu orkustefnu ESB með orkupökkunum án ákvörðunar þjóðarinnar mun Ís- land missa stjórn á orkumálum sín- um til ESB. Alþingi ætlar samtímis að sam- þykkja þriðja orkupakkann og skuldbinda Ísland að þjóðarétti til að innleiða í landsrétt áfanga í orkustefnu ESB og að setja máls- grein inn í „stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raf- orku“ sem gengur gegn orkustefnu ESB. Ekki er bæði samtímis hægt að innleiða áfanga í orkustefnu ESB og ákveða stefnu sem gengur gegn henni. Alþingi ætlar að lögtaka orku- stefnu ESB án þess að Ísland hafi mótað sína eigin orkustefnu. Ekki nóg með það, stefnulaust Ísland varðandi ákvörðun um sæstreng og samtengingu við innri raforku- markað ESB ætlar að taka upp í landsrétt reglur ESB um raforku- viðskipti yfir landamæri. Þriðji orkupakkinn tekur við af Landsréttarmálinu í sögu Alþingis, enda er þar ónýtt ráðningarferli. Skal engan undra að þjóðin treysti ekki Alþingi Íslendinga. Eftir Eyjólf Ármannsson » Alþingi ætlar að lögtaka orkustefnu ESB án þess að Ísland hafi eigin orkustefnu. Með fyrirvörum skv. raforkulögum sem falla utan gildissviðs þeirra. Eyjólfur Ármannsson Höfundur er lögfræðingur LL.M. eyjolfur@yahoo.com Stefnulaust Ísland lögtekur orkustefnu ESB Í starfi mínu sem lögmaður hef ég kom- ist að raun um að í landinu hafa starfandi embættismenn í stjórnarráðinu og ýms- um öðrum stofnunum ríkisins miklu meiri völd en stjórnskipun okkar gerir ráð fyrir. Með sanni má segja að þessi hópur sé eins konar ríki í ríkinu. Fjölmörg dæmi eru um að þeir hreinlega stjórni í bága við vilja og fyrirmæli yfirmanna sinna, sem eru auðvitað ráðherrarnir sjálfir. Margir ráðherrar virð- ast hreinlega óttast þetta heimaríka fólk og láta því undan því, þeg- ar taka þarf ákvarðanir eða hrinda þegar tekn- um ákvörðunum í framkvæmd. Jafnframt hafa margir á orði að stjórn- un á embættismönnum sé einatt lítil sem eng- in. Ef þeir sinni ekki störfum sínum séu þeir ekki reknir, eins og almennt tíðkast í rekstri fyr- irtækja, heldur komið þægilega fyr- ir og einhver annar ráðinn til að sinna hinum nauðsynlegu verk- efnum. Í lögum hefur réttarstöðu embættismanna verið komið fyrir með þeim hætti að nær ógerlegt er að losna við þá þó að þeir vinni ekki vinnuna sína. Það er löngu tímabært að stjórn- málamenn í landinu taki höndum saman um að hrinda ólögmætu of- urvaldi embættismanna. Okkar lýð- ræðislega stjórnskipun gerir ráð fyrir að pólitískir ráðherrar stjórni í ráðuneytum. Þeir sækja umboð sitt til þjóðarinnar og bera ábyrgð gagn- vart henni á meðferð valds síns. Það hlýtur að vera sameiginlegt áhuga- mál þeirra, hvar í flokkum sem þeir standa, að koma fram umbótum á þessu þýðingarmikla sviði. Þær myndu leiða til skýrari ábyrgðar og verulegrar lækkunar á kostnaði við að halda úti embættismannakerfi, sem að hluta sinnir ekki störfum sínum á forsvaranlegan hátt og þarf ekki að bera ábyrgð á verkum sín- um. Almenningur myndi hrópa húrra fyrir stjórnmálamönnum sem sýndu áræði og samstöðu sín í milli um að bæta úr þessu ástandi. Ég leyfi mér því að skora á for- ystumenn í stjórnmálum að taka nú höndum saman um umbætur með lagasetningu á þessu málasviði. Þær myndu snerta hagsmuni þeirra allra. Þeir gætu því sett til hliðar hanaslaginn milli flokkanna, þegar þeir tækju höndum saman um að sinna þessu verðuga verkefni. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Það er löngu tíma- bært að stjórnmála- menn í landinu taki höndum saman um að hrinda ólögmætu of- urvaldi embættis- manna. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Ríki í ríkinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.