Morgunblaðið - 16.05.2019, Page 53
Allt heilgrillað með hýðinu á.
Grillið vel á öllum hliðum. Þegar
þetta er tilbúið takið þá hýðið af
grænmetinu, (kjarnhreinsið papr-
ikuna) og skerið allt fínt. Setjið í skál
og dreypið ólífuolíu saman við, saltið
og piprið.
Miðausturlanda-Kebab:
500 gr nautahakk
1 stk. laukur fínt skorinn
2-3 tsk. Ras el Hanut Kryddhússins
1 tsk. Mynta, þurrkuð, frá Kryddhúsinu
lúkufylli af fíntskorinni steinselju
salt og pipar
aðeins af ólífuolíu
Allt blandað saman í skál og látið
hvíla inni í kæli í a.m.k. 30 mín áður
en sporöskjulaga bollur eru mótaðar
utan um grillspjót. Grillað á heitu
grilli.
Grillaðar Záatar lefsur:
5 dl hveiti
2.5 dl AB mjólk
1 msk. sýróp
½ tsk. hjartarsalt
aðeins salt
Allt sett í skál og blandað vel sam-
an. Mótið 6-8 stk., 1 cm þykkar
lummur úr deiginu. Grillið á heitu
grilli í u.þ.b. 4 mín á hvorri hlið. 2
msk. Záatar kryddblanda Krydd-
hússins blandað saman við u.þ.b. 2-4
msk. af ólífuolíu og penslað á lefs-
urnar þegar þær eru tilbúnar.
Kryddað ofnbakað blómkál:
1 stór (eða 2 litlir) blómkálshaus
settur á hvolfi í pott með sjóðandi
heitu vatni og soðið í a.m.k. 8 mín
(fer eftir stærð blómkálsins). Takið
úr vatninu eftir suðu og látið standa
þannig að vatnið leki vel af því.
Á meðan blandið saman:
2-3 tsk. Hawaii kryddblöndu Krydd-
hússins
1 msk. hunang
salt
u.þ.b. 4 msk. ólífuolíu.
Allt blandað vel saman og penslað
yfir blómkálið. Sett í 180 gráðu heit-
an ofn í 30 mín eða þar til gyllt og
stökkt.
Hummus með Tahini og Harissu:
1 dós Hummus
u.þ.b. 2 msk. af Tahini (sesam smjör)
sítrónusafi og salt
ólífuolía
Hrærið Tahinið út með vatni.
Byrjið á að setja aðeins af vatni og
hrærið það saman við og smá bætið
við vatni þar til þið hafið náð þeirri
þykkt eða áferð sem þið kjósið.
Þetta tekur smá tíma. Kreistið safa
úr sítrónu út í og blandið vel saman
við. Saltið aðeins og smakkið til, og
bætið við sítrónusafa og eða salti ef
þarf.
Harissu mauk:
1 msk. Marokkósk Harissa krydd-
blanda Kryddhússins
hrært saman við u.þ.b. 3-4 msk. ólífu-
olíu.
Setjið Hummus á disk og gerið
holu í hann með bakinu á skeið. Hell-
ið Tahini sósunni í holuna, Harissu
maukinu og dreypið ólífuolíu yfir allt
saman.
Sætar kartöflur:
Skerið sætar kartöflur í báta og
pakkið þeim, hverjum og einum inn í
álpappír. Setjið á heitt grill og grillið
þar til mjúkar og tilbúnar. Takið úr
álpappírnum og dreypið ólífuolíu yf-
ir ásamt salti og pipar.
Skalotlaukur með Sumac:
Afhýðið skalotlauk og skerið hann
þversum, í sneiðar. Setjið í skál og
stráið vel af Sumac kryddi frá
Kryddhúsinu yfir og dreypið aðeins
af ólífuolíu yfir.
Heimatilbúið myntu-límonaði
(Lemon Nana)
Safi úr 3-4 sítrónum
sykurvatn, magn fer eftir hve sætt þið
viljið hafa límonaðið
lúkufylli af ferskum myntulaufum
ísmolar og sítrónubátar ef vill
Sykurvatn: sjóðið niður 1 glas af
sykri á móti 1 glasi af vatni. Sykur-
vatn geymist vel í lokuðu íláti inni í
ísskáp.
Kreistið safann úr sítrónunum.
Setjið í vatnskönnu ásamt ferskri
myntunni og sykurvatninu. Fyllið
könnuna af ísköldu vatni og setjið
ísmola og sítrónubáta út í ef vill.
Grænt salat með appelsínu
og myntu dressingu:
Safi úr ½ appelsínu
2 msk. hunang
1 tsk. Mynta, þurrkuð, frá Kryddhúsinu
a.m.k. ½ dl ólífuolía
salt eftir smekk
Allt hrært vel saman og látið
standa í a.m.k. 20 mín til að bragðið
taki sig. Hellið yfir grænt salat að
eigin vali, rétt áður en borið fram.
Spennandi Hjónin Ólöf Einarsdóttir og Omry Avraham, eigendur Krydd-
hússins, slógu upp veislu um helgina og leyfðu okkur að deila uppskriftunum.
Litgleði Hummus með tahini og harissu ætti engan að svíkja. Svalandi Hver fær staðist heimatilbúið myntu-límonaði.
Girnilegt Hér gefur að líta einstaklega spenn-
andi bragðsamsetningu sem ætti engan að svíkja
- þá ekki síst sanna áhugamenn um matargerð.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019