Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Æðislegir hægindastólar með ítölsku leðri á slitflöt Fáanlegir í svörtu, dökkbrúnu og dökkgráu leðri. Einnig fáanlegir í sófum. Verð frá 179.000 kr. um. Vinsælu Jason hægindastólarnir komnir aftur Rafmagn í skemli og hauspúða Sýning á verkum Gunnars Jónsson- ar myndlistarmanns, Gröf, verður opnuð í D-sal Listasafns Reykjavík- ur – Hafnarhúss, í dag fimmtudag, klukkan 20. Gunnar er 37. listamað- urinn sem sýnir í sýningaröðinni í D-sal, þar sem listamönnum er boð- ið að halda sína fyrstu einkasýn- ingu í opinberu safni. Í verkum sínum beinir Gunnar sjónum að eigin uppruna, sjálfs- mynd og umhverfi. Hann er fæddur í Reykjavík en uppalinn á Ísafirði þar sem hann býr nú og starfar. Í tilkynningu segir að tengsl hans við höfuðstaðinn, annars vegar, og landsbyggðina hins vegar séu hon- um sérstaklega hugleikin. „Í verkinu Gröf er áhorfandinn tekinn með í ferð um Reykjavík þar sem Gunnar rekur sögu sína og for- feðra sinna um borgina. Titill verksins vísar til bæjarins Grafar í Grafarholti.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Uppsetning Gunnar tók sér örstutt hlé frá uppsetningu sýningar sinnar þegar ljósmyndara bar að garði. Eins og sjá má var allt á fullu. Gröf Gunnars Jóns- sonar sýnd í D-sal Tökur á næstu kvikmynd um njósnarann James Brond munu dragast á langinn vegna meiðsla aðalleik- arans, Daniel Craig. Craig meiddist á ökkla við tökur á hasaratriði á Jamaíku fyrir fáein- um dögum en hann var á harða- spretti þegar óhappið varð. Craig mun hafa runnið til og dottið illa. Tökur áttu næst að fara fram í Pinewood myndverinu í London en hefur nú verið frestað. Craig hefur áður meiðst við tökur á Bond- mynd, árið 2006 voru tvær tennur slegnar úr honum við tökur á Cas- ino Roayle, hann meiddist á fingri við tökur á Quantum of Solace árið 2008 og á hné við tökur á Spectre árið 2015. Ítrekaðar tafir hafa orð- ið á framleiðslu næstu Bond- myndar því Danny Boyle sagði sig frá því að leikstýra henni í fyrra og Cary Fukunaga tók við. Þá hefur handritið verið margendurskoðað. Tökum seinkað vegna meiðsla Daniel Craig Leikfélag Akur- eyrar stendur fyrir áheyrnar- prufum fyrir söngleikinn Vorið vaknar í Reykjavík 18. og 19. maí og á Ak- ureyri 20. og 22. maí. Æskilegur aldur þátttak- enda er 17-27 ára, segir á vef Menn- ingarfélags Akureyrar, mak.is. Á vefsíðunni má finna tengil fyrir skráningu í prufurnar, frekari upp- lýsingar og slóð á lög sem þátttak- endur þurfa að kunna fyrir pruf- una. Einnig verður sena úr verkinu send í tölvupósti til þátttakenda. Í prufunum verður prufað í leik, söng og dansi. Marta Nordal, leik- hússtjóri Leikfélags Akureyrar, mun leikstýra uppfærslunni og verður frumsýning í Samkomuhús- inu á Akureyri í janúar á næsta ári. Áheyrnarprufur fyrir Vorið vaknar Marta Nordal Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég er að setja upp verk sem fjalla um leik og hreyfingu,“ segir Eygló Harðardóttir myndlistarkona um sýninguna sem hún opnar í Komp- unni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í dag, fimmtudag, klukkan 17. Hún segist setja upp þrjú þrívíð verk, tvö sem hún hefur sýnt áður en eitt er nú sýnt í fyrsta skipti. Eitt verk- ið má handfjatla og leika sér með en hin eru skúlptúrar á gólfi en fjalla þó um leið um leik og nefnast Leik- ur Iog II. Eygló er kunn fyrir sína tví- og þrívíðu abstrakt skúlptúra og bók- verk þar sem hún vinnur til að mynda með pappír, nýjan sem end- urnýttan, ýmiskonar litríkt fundið efni, plast, við, grafít og gler. Á dögunum hreppti hún Íslensku myndlistarverðlaunin 2019 fyrir rómaða einkasýningu sína, Annað rými, í Nýlistasafninu í fyrra. Handfjötluð á barnum „Leik I sýndi ég áður í Listasafni Reykjanesbæjar. Leikur II er hins vegar ósýnt en þó gamalt verk sem ég gerði árið 2015 fyrir sýningu í Skaftfelli. En þá fannst mér það vera ljótt og henti því inn í geymslu,“ segir Eygló og hlær. „En svo rakst ég á það um daginn og fannst það ansi gott og ríma vel við hin verkin! Ég breytti því örlítið og nú er að sjá hvernig það kemur út – en ég er spennt fyrir því.“ Er þetta hefðbundið vinnulag Eyglóar, að gera verk og sjá svo til hvernig þau eldast? „Það getur komið fyrir, það þarf þó að vera eitthvað forvitnilegt við þau. Stundum þarf maður að leyfa verkunum að koma til sín ef maður skilur þau ekki í byrjun. Stundum enda þau þó bara í ruslinu og þá verður ekkert meira úr því…“ Hún segir að þriðja verkið á sýn- ingunni í Alþýðuhúsinu hafi verið unnið fyrir samsýningu sem var sett upp á sýningu sem bókverkaút- gáfan ’uns stóð fyrir á Hótel Holti. Það kallast „Þú átt leik - fimm skúlptúrar til að handfjatla“. „Það var sett upp á barnum á Holtinu og er einmit fyrir bargesti að hand- fjatla. Og verkið, sem er í nokkrum einingum, lifði af barveruna og er nú komið á stefnumót hingað til Siglufjarðar.“ Heiður að sýna á stöðunum Eygló kemur víða við þessa dag- ana því hún setti líka upp eina af sýningunum í Safnasafninu í Eyja- firði, við Svalbarðseyri, en sumar- opnun þess var um liðna helgi. Og þar segist hún líka blanda saman nýjum og eldri verkum. „Þar sýni ég verk sem fjalla um grímur. Þrjú þeirra sýndi ég í sýningarrýminu 1. hæð til vinstri í Reykjavík í fyrra en hef bætt við þau stóru verki, sem er samsett verk, teikningar af grímum og klippimyndir. Þar sýni ég vegg- verk en hér á Siglufirði skúlptúra; það eru nokkuð ólík verk á þessum stöðum. Það var mjög áhugavert að vinna í Safnasafninu, það er alveg stórkostlegt safn. Þar sýni ég í ein- um Básnum, hér í Kompunni,“ og hún hlær að heiti sýningarstaðanna. Eygló bætir við: „Það hefur verið dásamlegt að vinna við uppsetningu sýninganna hér fyrir norðan, að setja þær upp og hugsa málin.“ Og Eygló sýnir víðar úti á landi í sumar. „Þetta er landsbyggðartúr- inn mikli!“ segir hún og líkir sýn- ingaferðunum við veiðiferðir því við uppsetningu sýninganna notar hún tækifærið og dvelur á sýningarstöð- unum í nokkra daga. „Verkin eru ekki send á staðinn, ég kem með þau og set þau upp, í samhengi og í samtali við það fólk sem rekur og hefur byggt upp ótrúlega spennandi suðupotta sköpunar á stöðunum þar sem þau eru sýnd. Næst tek ég þátt í sýningunni Rúllandi snjóbolta á Djúpavogi og sýni svo í Verksmiðjunni í Hjalteyri í ágúst. Það er einstaklega ánægju- legt að tengjast landinu og fólkinu á þessum stöðum en öll þessi starf- semi er meira og minna keyrð áfram af listamönnum, af miklum metnaði í alvöru rýmum. Það er mikill heiður að fá að sýna á þessum stöðum,“ segir Eygló. Um leik og til að leika með  Eygló Harðardóttir, handhafi Íslensku myndlistarverðlaunanna 2019, opnar sýningu í Alþýðuhúsinu á Siglufirði  Setti líka upp sýningu í Safnasafninu Ljósmynd/Helga Óskarsdóttir Leikgleði Eitt verkanna sem Eygló sýnir í Kompunni á Siglufirði, Leikur I, en þar sýnir hún skúlptúra. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Listakonan Eygló Harðardóttir sýnir víða úti á landi í sumar. Ljósmynd/Helga Óskarsdóttir Leikur II Verkið sem lenti í geymsl- unni var endurmetið og er nú sýnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.