Morgunblaðið - 16.05.2019, Page 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Framleiðum allar gerðir
límmiða af mismunandi
stærðum og gerðum
Thermal
Hvítir miðar
Litamiðar
Forprentaðir
Athyglismiðar
Tilboðsmiðar
Vogamiðar
Lyfsölumiðar
Varúðarmiðar
Endurskinsmiðar
Flöskumiðar
Verðmer
Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is
kimiðar
Límmiðar
Mutter Courage, útskrift-arverkefni leikara-brautar ListaháskólaÍslands í samstarfi við
tónlistardeild skólans, er unnið í
samvinnu við Leikfélag Akureyrar
og Þjóðleikhúsið þetta árið. Fyrir
nemendur hlýtur það að vera
skemmtilegt og áhugavert að fá að
sýna útskriftarverkefnið í tveimur
jafn ólíkum leikhúsum og fyrir okk-
ur Norðlendinga er þetta kærkomin
viðbót í menningarflóruna.
Bertolt Brecht skrifaði Mutter
Courage und ihre Kinder árið 1939
sem viðbragð við útbreiðslu fasism-
ans og til að vara við stríðinu sem þá
var yfirvofandi. Verkið fjallar um
Mutter Courage sem heitir í raun
Anna Fierling, þar sem hún fylgir
sænska hernum um Evrópu í þrjátíu
ára stríðinu á fyrri hluta sautjándu
aldar í von um að hagnast á stríðs-
bröltinu. Verkið er þannig bæði
ádeila á hermang og stríðsrekstur
því Mutter Courage hefur ekkert
upp úr krafsinu og missir að auki
börnin sín þrjú.
Hið epíska leikhús Brechts geng-
ur út á að brjóta fjórða vegginn milli
sviðs og salar og hindra þannig til-
finningaleg tengsl áhorfenda við
sögupersónur og þvinga þá frekar til
að taka vitsmunalega afstöðu til við-
fangsefnisins. Marta Nordal velur
að fylgja þessari leið allt til síns rök-
lega enda. Leikhópurinn er þannig
allt í öllu í uppfærslunni, búninga-
skipti og hljóðblöndun fer fram á
sviðinu sjálfu. Leikarar stýra ljós-
unum og færa til leiktjöldin. Undir-
leikarinn situr við píanóið sitt á svið-
inu allan tímann. Sviðsleiðbeiningar
eru lesnar upp fyrir okkur. Áhættan
er sú að áhorfandinn gleymi sér við
að fylgjast með þessum ramma utan
um verkið og fylgi ekki sögunni
sjálfri en hér er skýr ávinningur.
Þegar salnum er hleypt baksviðs og
inn í tæknirými leikhússins með því
að færa þetta allt inn á sviðið sjálft
verður leikhópurinn berskjaldaður
og endurspeglar þannig stöðu fólks-
ins í verkinu sjálfu. Upplifun áhorf-
enda verður sú að mynda enn sterk-
ari og nánari tilfinningatengsl við
sögupersónurnar. Sigrarnir verða
stærri og áföllin sárari. Í stað hinnar
köldu rökhyggju sem Brecht hugðist
framkalla verður til einhvers konar
samofið reipi epískrar og aristótel-
ískrar leikhúshefðar sem er sterk-
ara en þær hvor fyrir sig.
Sviðsetningin er einföld og sagan
gerist í kringum stálgrindarvagn
sem gegnir hlutverki söluvagns
Mutter Courage. Ljós og sviðs-
leiðbeiningar skapa ramma sýning-
arinnar frekar en raunsæir leik-
munir eða margslungin leikmynd.
Mikið er lagt upp úr að búa til magn-
aðar og sterkar myndir þar sem
reykur og lýsing auka hin sjónrænu
áhrif, svo mikill reykur reyndar að
undirritaðan sveið í augun á stund-
um.
Tónlistin hæfir verkinu og sér-
staklega er söngur Yvette og loka-
lagið áhrifaríkt. Hins vegar virðist
sem tónfalli íslenskunnar hafi ekki
verið gefinn nógu mikill gaumur og á
stundum urðu söngtextar undarlegir
þegar áherslur lentu á atkvæðum
þar sem engin áhersla er í eðlilegu
máli.
Mutter Courage er leikin af þrem-
ur leikkonum samtímis, þeim Ást-
hildi Úu Sigurðardóttur, Berglindi
Höllu Elíasdóttur og Þórdísi Björgu
Þorfinnsdóttur. Ekki er hægt að
gera upp á milli þeirra. Mutter
Courage er aðalhlutverk verksins og
kallar á leikkonu sem stendur undir
þeirri ábyrgð að bera uppi heila sýn-
ingu. Allar stóðu þær undir því.
Ákvörðunin að láta þrjár leikkonur
fara með þetta hlutverk hefur mögu-
lega frekar verið praktísk en list-
ræn, til að gefa öllum leikhópnum
svipað vægi í sýningunni enda um
útskriftarverkefni þeirra allra að
ræða. Afleiðingin verður hins vegar
sú að persóna Mutter Courage
stækkar og þannig er ýtt undir vægi
hennar í verkinu. Hún getur ein síns
liðs bókstaflega umkringt aðrar per-
sónur sögunnar.
Gunnar Smári Jóhannesson leikur
Eilíf, eldri son Mutter Courage, og
herprestinn. Hlutverk Eilífs er ekki
mjög bitastætt þó Gunnar geri því
ágætis skil, en svo blómstrar hann
sem útsmogni og huglausi herprest-
urinn. Það hlutverk er nokkurs kon-
ar „comic relief“ verksins og þar er
Gunnar Smári augsýnilega á heima-
velli því tímasetningar hans, lát-
bragð og svipbrigði eru til fyrir-
myndar.
Yngri sonurinn gengur undir
nafninu Svissostur og er leikinn af
Hildi Völu Baldursdóttur. Í hlut-
verki hans dregur hún upp mynd af
hlédrægum og óframfærnum pilti
sem er einn fárra sem taka út ein-
hvern þroska í verkinu. Hæfileikar
Hildar fá þó frekar að njóta sín í
fjölda smærri hlutverka sem hún
leikur og nær að ljá hverju sinn ein-
staka karakter.
Við sögu kemur einnig hollenskur
herkokkur sem Jónas Alfreð Birkis-
son leikur. Þetta er lævís og lúmsk-
ur náungi, fullur persónutöfra þó
Jónasi takist að láta drullusokkinn
sem undir leynist skína í gegn á köfl-
um. Hann gerir þetta vel en á þó
ekki síðri leik sem liðþjálfinn í upp-
hafi verksins sem er lítið hlutverk en
bráðskemmtilegt.
Steinunn Arinbjarnardóttir í hlut-
verki Yvette á eina af áhrifaríkustu
stundum sögunnar þegar hún syng-
ur tregafullan söng sinn um svikna
ást. Hún leikur hina bitru og ör-
væntingarfullu Yvette frábærlega
og sýnir einnig góða takta í ýmsum
smærri hlutverkum.
Síðast en ekki síst er það Katrín,
hin mállausa dóttir Mutter Courage,
sem Rakel Ýr Stefánsdóttir leikur.
Þetta er mögulega mikilvægasta
persóna sögunnar þó hún segi aldrei
neitt. Hún er táknmynd allra fórnar-
lamba stríðsins sem hefur tekið frá
henni bæði röddina og sakleysið.
Það er hún sem finnur mest fyrir
sársauka stríðsins og sem hefur
mesta meðaumkun með öllum sem
þjást vegna þess. Þrátt fyrir það er
hún sú eina sem missir aldrei vonina,
samúðina eða kærleikann, sú eina
sem missir aldrei mennskuna. Í lok
sýningar verður ljóst að verkið er
fyrst og fremst saga Katrínar og þar
með saga allra þeirra sem eiga um
sárt að binda vegna stríðsátaka.
Þetta er verk sem lifir áfram í
huga manns í langan tíma og vekur
til umhugsunar. Leikstjóri og leik-
hópur taka margar djarfar ákvarð-
anir í uppsetningunni sem opna
verkið, draga áhorfendur jafnvel inn
í handritið sjálft og gera sýninguna
jafn berskjaldaða og fólkið sem hún
fjallar um. Hér ber þessi djörfung
ávöxt sem er áhrifamikið og magnað
útskriftarverkefni. Listaháskóli
Íslands getur verið stoltur af þess-
um hópi.
Berskjölduð mennska
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Hugvekjandi „Þetta er verk sem lifir áfram í huga manns í langan tíma og vekur til umhugsunar,“ segir gagnrýnandi m.a. um Mutter Courage.
Samkomuhúsið á Akureyri
og Kassinn í Reykjavík
Mutter Courage bbbbm
Eftir Bertolt Brecht. Íslensk þýðing:
Ólafur Stefánsson. Leikstjórn: Marta
Nordal. Tónlist: Sævar Helgi Jóhanns-
son. Leikmynd og búningar: Auður Ösp
Guðmundsdóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst
Stefánsson. Leikmyndasmíði og tækni:
Egill Ingibergsson. Leikarar: Ásthildur
Úa Sigurðardóttir, Berglind Halla Elías-
dóttir, Þórdís Björg Þorfinnsdóttir,
Gunnar Smári Jóhannesson, Hildur Vala
Baldursdóttir, Jónas Alfreð Birkisson,
Rakel Ýr Stefánsdóttir og Steinunn
Arinbjarnardóttir. Listaháskóli Íslands í
samstarfi við Leikfélag Akureyrar og
Þjóðleikhúsið frumsýndi í Samkomu-
húsinu á Akureyri 9. maí 2019, en rýnt í
sýningu á sama stað 10. maí 2019.
DANÍEL FREYR
JÓNSSON
LEIKLIST