Morgunblaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Kragar fyrir
öll tækifæri
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
Dómgæslan í úrvalsdeild
kvenna í fótbolta hefur verið
talsvert til umræðu í sumar og
tveir íþróttafréttamanna okkar
hafa meðal annars gert hana að
umtalsefni á þessum vettvangi.
Okkar bestu dómarar koma
allajafna ekki við sögu hjá kon-
unum. Nokkrir af reynslu-
minnstu A-dómurunum dæma
jafnan nokkra leiki í deildinni. Á
síðasta ári dæmdi aðeins einn
karlkyns alþjóðlegur dómari einn
kvennaleik.
Víðast hvar hefur þróunin
verið sú á undanförnum árum að
konur dæma kvennaleiki og karl-
ar dæma karlaleiki. Þetta höfum
við séð á öllum stórmótum
kvenna á seinni árum. Meðal
annars á HM sem nú stendur yfir
í Frakklandi. Þar eru konur í öll-
um dómarastörfunum.
Ég minnist reyndar gríðar-
legrar óánægju í röðum íslenska
kvennalandsliðsins á EM 2009
með frammistöðu kvendómara
þar sem kallað var eftir því að
karlar væru frekar látnir dæma.
En mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan.
Hér á landi hefur hinsvegar
ekkert gengið að fá konur til að
dæma knattspyrnuleiki. Bríet
Bragadóttir hefur verið eini
fulltrúi þeirra í dómarastéttinni
síðustu ár. Nokkrar hafa komið
aðeins við sögu en helst fljótlega
úr lestinni.
Í fyrra dæmdi Bríet 14 af 90
leikjum úrvalsdeildar kvenna og
karlar hina 76 leikina. Í ár hefur
hún aðeins dæmt þrjá leiki af
þeim 35 sem lokið er á Íslands-
mótinu. Engan í síðustu þremur
umferðunum.
Ein kona er aðstoðardómari í
deildinni í ár en öll önnur dóm-
arastörf eru mönnuð af körlum.
Þetta er hluti af vandamálinu.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
EM 2020
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í handbolta
mun leika í Malmö í Svíþjóð, að
minnsta kosti þrjá leiki en vonandi
sex, á Evrópumótinu sem hefst 10.
janúar. Ísland dróst í gær í E-riðil
með heimsmeisturum Danmörku,
Ungverjalandi og Rússlandi. Tvö
efstu lið hvers riðils komast áfram í
milliriðla og munu liðin tvö sem kom-
ast upp úr E-riðli halda kyrru fyrir í
Malmö og mæta þar liðum úr D- og F-
riðli.
Í fyrsta sinn munu nú 24 þjóðir
leika á EM en þeim var fjölgað úr 16
eftir EM í Króatíu 2018. Mótið fer auk
þess fram í fleiri en einu landi í fyrsta
sinn, eða í Svíþjóð, Noregi og Aust-
urríki.
Ísland hefði bæði getað lent í erf-
iðari og léttari riðli. Austurríki, sem
var í 3. styrkleikaflokki líkt og Ísland,
hafði til að mynda mun meiri heppni
með sér, en Portúgal lenti til dæmis í
riðli með tveimur af þremur efstu lið-
unum af HM í janúar. Vel raunhæfur
möguleiki er á að ná 2. sæti og komast
í milliriðla en keppnin um það verður
mjög hörð.
Ísland þekkir danska liðið vel og
sjálfsagt enginn betur en Guðmundur
Guðmundsson sem nú mætir Dan-
mörku á stórmóti í fyrsta sinn eftir
viðskilnaðinn dramatíska 2017. Hann
stýrði Íslandi reyndar einnig gegn
Danmörku á móti í Noregi í fyrra, í
sínum öðrum landsleik eftir að hafa
tekið að nýju við íslenska landsliðinu.
Guðmundur gerði Dani að ólympíu-
meisturum í fyrsta sinn 2016 og þeir
urðu heimsmeistarar í fyrsta sinn í
janúar síðastliðnum, en EM hafa Dan-
ir unnið tvisvar og vanalega komist í
undanúrslitin. Þeir verða dyggilega
studdir í Malmö enda var fyrirfram
ákveðið að danska liðið myndi leika í
borginni, alveg við Kaupmannahöfn.
Viðureign við Ungverja vekur upp
sárar minningar frá Ólympíu-
leikunum 2012. Ungverjaland endaði
á svipuðum slóðum og Ísland á HM í
janúar, þar sem liðin urðu í 10. og 11.
sæti, og féll út strax í riðlakeppninni
á EM 2018 líkt og Ísland. Ungverjar
hafa einu sinni unnið til verðlauna á
stórmóti, silfur á HM 1986.
Rússar áttu eitt albesta landslið
heims um síðustu aldamót en hafa
síðasta áratuginn bestum árangri náð
á HM 2013, 7. sæti. Rússar komust
ekki inn á EM fyrir tveimur árum og
féllu úr leik í riðlakeppninni á HM í
janúar, þar sem þeir náðu þó að gera
jafntefli við Þjóðverja, sem og Serba,
og vinna Suður-Kóreu.
A-RIÐILL í Graz:
Króatía
Hvíta-Rússland
Svartfjallaland
Serbía
B-RIÐILL í Vín:
Tékkland
Norður-Makedónía
Austurríki
Úkraína
C-RIÐILL í Þrándheimi:
Spánn
Þýskaland
Lettland
Holland
D-RIÐILL í Þrándheimi:
Frakkland
Noregur
Portúgal
Bosnía
E-RIÐILL í Malmö:
Danmörk
Ungverjaland
ÍSLAND
Rússland
F-RIÐILL í Gautaborg:
Svíþjóð
Slóvenía
Sviss
Pólland
Hörð barátta um að fylgja
heimsmeisturunum
Danir sigurstranglegir í riðli Íslands, á „heimavelli“ Milliriðill einnig í Malmö
Morgunblaðið/Golli
Gamlir lærisveinar Guðmundur Guðmundsson stýrði Danmörku til 30:25-sigurs á Íslandi í 16-liða úrslitum á HM
2015 í Katar, síðast þegar þjóðirnar mættust á stórmóti. Nikolaj Jacobsen tók við Danmörku af Guðmundi árið 2017.
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari karla í handbolta segir
ljóst að Ísland hafi lent í svakalega
sterkum riðli á EM. Keppnin fer
fram í janúar á næsta ári og leikur
Ísland með Danmörku, Ungverja-
landi og Rússlandi í riðli sem leik-
inn verður í Malmö í Svíþjóð.
„Við erum að fara að mæta
heims- og Ólympíumeisturum Dana
nánast á heimavelli og það er mjög
erfitt verkefni. Hin liðin tvö eru svo
bæði frábær. Rússar eru ekki búnir
að vera áberandi undanfarið en
þeir stóðu sig vel í undankeppninni
og eru með sterkasta liðið í fjórða
styrkleika. Það er ekkert lið í þess-
um riðli sem er þægilegt að mæta.
Ungverjar eru með gríðarlega
sterkt lið. Það er ekkert lið sem er
slakara en annað í þessum riðli, fyr-
ir utan að Danir eru í sérflokki. Ég
veit ekki alveg hvar við stöndum á
móti Ungverjum og Rússum. Við
erum með það ungt lið og það er
erfitt að meta hvar við stöndum í
dag í alþjóðlegum samanburði. Við
þurfum að sýna okkur og sanna,“
sagði Guðmundur við mbl.is, og
kvaðst fagna því að leika í Malmö
þar sem auðvelt yrði fyrir íslenska
stuðningsmenn að mæta.
Hann viðurkennir að það verði
sérstakt fyrir sig að mæta danska
landsliðinu, en hann var lands-
liðþjálfari Dana 2014-2017.
„Það er sérstök tilfinning fyrir
mig að spila á móti Dönum. Ég
þjálfaði þá í þrjú ár og varð Ólymp-
íumeistari með þeim. Það er eins og
það er og þannig er þessi heimur.
Það verður skrítið að hitta þá
þarna. Ég á ekki von á öðru en
ánægjulegum viðtökum frá stuðn-
ingsmönnum Dana.“
Sérstök tilfinning
að mæta Dönum
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
EM Bjarki Elísson skorar gegn
Tyrkjum þegar Ísland náði EM-sæti.