Morgunblaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hin árlega jaðarlistahátíð RVK
Fringe Festival hefst í dag, 29. júní,
er nú haldin í annað sinn og stend-
ur yfir til 6. júlí. Það eru engar ýkj-
ur að hátíðin hafi blásið út því hún
hefur tvöfaldast að umfangi frá
þeirri sem haldin var í fyrra og
verða nú um 100 viðburðir í boði og
alls 250 sýningar í heildina.
RVK Fringe er fjöllistahátíð,
rekin af sjálfboðaliðum og geta
gestir séð sýn-
ingar ólíkra list-
greina. Myndlist,
tónlist, leiklist,
dans, uppistand,
kabarett, drag og
stafræn list eru á
dagskrá hátíðar-
innar og verður
einnig boðið upp
á námskeið.
Tjarnarbíó verð-
ur aðalbækistöð
hátíðarinnar og eins og sjá má á
vefsíðu hennar, rvkfringe.is, er dag-
skráin þéttskipuð og sýningar-
staðirnir margir.
Miklu fleiri umsóknir
Nanna Gunnarsdóttir er fram-
kvæmdastjóri RVK Fringe og segir
hún ástæðuna fyrir því að hátíðin
hefur vaxið svo mjög að umfangi
milli ára þá að í fyrra hafi skipu-
lagning hafist í mars. „Við höfðum
bara þrjá mánuði þannig að þetta
var svolítið stundarbrjálæði en
núna erum við búin að hafa heilt ár
til að skipuleggja,“ segir hún.
Hátíðin eigi auk þess í samstarfi við
aðrar hátíðir í gegnum Nordic
Fringe Network. „Við vorum svo
sein í fyrra að við vorum bara með
umsóknir hér á landi en núna vor-
um við með í þeirra umsóknarferli
þannig að allir umsækjendur gátu
sótt um átta hátíðir í einni umsókn
sem send var inn á síðasta ári.
Þannig komu inn miklu fleiri um-
sóknir.“
Hátíðin fer fram á mörgum stöð-
um í borginni og eru sýningarstaðir
Aðventkirkjan, Bíó Paradís, Dans-
verkstæðið, Dillon, Gallerí Fold,
Hannesarholt, Hard Rock, Hlemm-
ur Square, Iðnó, Kaffi Lækur,
Listastofan, Norræna húsið, R6013,
sirkustjald Sirkuss Íslands, Tjarn-
arbíó og Þjóðleikhúskjallarinn.
Nanna hlær þegar blaðamaður spyr
hvernig skipuleggjendum hafi tek-
ist að finna húsnæði undir svo
marga viðburði. „Við höfum mætt
mjög miklum velvilja og bættum við
mörgum stöðum,“ svarar hún.
Margt forvitnilegt ber fyrir augu
þegar dagskráin er skoðuð og má
m.a. nefna sýningu sem sýnd var í
fyrra og snýr nú aftur, American
Single: A Live Dating Show! þar
sem bandaríska listakonan Olivia
Finnegan býður gestum að fylgjast
með sér á raunverulegu stefnumóti.
„Þetta er stórskemmtileg sýning
þar sem hún fer á Tinder-stefnumót
uppi á sviði og svo geta áhorfendur
kosið um hvernig þeim finnist það
ganga, hvort það sé vandræðalegt,
er hann eða hún vandræðalegri og
ættu þau að hittast aftur,“ segir
Nanna um verkið. Hún hafi séð eitt
slíkt stefnumót í fyrra sem hafi ver-
ið bráðskemmtilegt. Viðtal við Fin-
negan má lesa á næstu síðu.
Önnur sýning og ekki síður for-
vitnileg er sænska verðlaunasýn-
ingin Swan Woman sem byggð er á
raunverulegum atburði frá árinu
2011 en þá fundust 13 svanir á
heimili sænskrar konu. Sænska
leikkonan Rebecka Pershagen er
höfundur verksins sem er einleikur
og segist Nanna ekki hafa séð verk-
ið og því hlakka mikið til að sjá það.
„Hún las frétt um að 13 svanir
hefðu verið inni í 25 fermetra íbúð
og bjó til verk út frá því, hvernig er
að búa með 13 svönum,“ segir
Nanna kímin.
Námskeið fyrir ungmenni
Ógerningur er að telja upp öll
verk og viðburði á dagskránni en á
vef hátíðarinnar má finna upplýs-
ingar um þau öll og einnig má hala
niður í síma hátíðarsmáforriti. Þó
ber að nefna eina nýjung á hátíð-
inni í ár, Youth Fringe, dagskrá
ókeypis námskeiða fyrir 13-18 ára
ungmenni og fara þau ýmist fram í
Tjarnarbíói eða í tjaldi Sirkuss
Íslands. Námskeiðin eru haldin af
listamönnum sem koma fram á há-
tíðinni og spanna leikhús, dans,
uppistand, trúðleik, hönnun og
markaðssetningu. Í lok vikunnar
munu þátttakendur svo fá tækifæri
til að koma fram í atvinnuleikhúsi,
setja upp sína eigin fjöllistasýningu
í Tjarnarbíói.
Opnunarhóf hátíðarinnar verður
haldið á Hlemmi Square í kvöld
milli kl. 20 og 23 og annað kvöld
ganga listamenn fylktu liði frá
Hlemmi Square að Tjarnarbíói þar
sem sérstakt forsýningarkvöld fer
fram frá kl. 19:30. Þar verður hver
sýning hátíðarinnar kynnt og stend-
ur hver kynning yfir í tvær mínút-
ur. Aðgangur er ókeypis bæði að
opnunarhófinu og forsýningar-
kvöldinu.
Miðasala á hátíðina fer fram á
vefnum tix.is og er hægt að kaupa
hátíðararmband, dagpassa eða miða
á stakar sýningar.
Dauðvona Í Goodbye Gunther segir
af hinum dauðvona Gunther.
Hvernig er að búa með 13 svönum?
Um 100 viðburðir eru á dagskrá RVK Fringe í ár Kabarett, dans, sirkus, drag, spuni, leiklist og
tónlist meðal þess sem er í boði Kona sem hélt 13 svani á heimili sínu kveikjan að verðlaunaeinleik
Nanna
Gunnarsdóttir
Kabarett Laurie Black flytur kaba-
rettinn Space Cadette á Fringe.
Heilræði Drag-frænkan Samantha
veitir heilræði í Dear Samantha.
Svanakona Sænska leikkonan
Rebecka Pershagen í einleik sínum
Swan Woman, Svanakonunni.
Myndlistarsýningin Ljósvaki //
Æther verður opnuð í dag kl. 17 í
Dahlshúsi, Strandgötu 30a, á
Eskifirði. Íslenska silfurbergið og
mikilvægi þess í vísindasögu
heimsins er kveikja sýning-
arinnar sem unnin er af myndlist-
armönnunum Selmu Hreggviðs-
dóttur og Sirru Sigrúnu
Sigurðardóttur sem dvalið hafa á
Eskifirði undanfarnar vikur við
rannsóknarvinnu og gagnasöfnun
tengda Helgustaðanámu í
Reyðarfirði fyrir utan Eskifjörð,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu.
„Hugmyndin að sýningunni hef-
ur verið að þróast um nokkurt
skeið og kemur frá sameig-
inlegum áhuga á íslenska silf-
urberginu. Helgustaðanáma í
Reyðarfirði er eins og leynd-
armál á milli fjallanna, gleymd
og afskipt geymir hún afar
merkilega sögu. Silfurbergs-
náman að Helgustöðum var lengi
vel eini staðurinn þar sem þessi
merkilega steind fannst og ber
hún einmitt nafn Íslands á mörg-
um tungumálum, enska Iceland
spar, þýska Islandspat, franska
spath d’Islande og latína quan-
dam crystalli Islandicae. Verk
sýningarinnar eru öll unnin stað-
bundið,“ segir í tilkynningu.
Listamennirnir hafi meðal annars
starfrækt kristallaverksmiðju um
nokkurt skeið í heimahúsi á Eski-
firði, haldið námskeið fyrir börn,
tekið viðtöl við heimamenn til að
tengja og skilja þessa marglaga
sögu námunnar og áhrif silf-
urbergsins á svæðið og heiminn.
Á sýningunni verði hægt að sjá
afrakstur þessarar vinnu sem og
að skoða einstaka silfurbergskúlu
sem fengin hafi verið að láni frá
Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sýningin stendur yfir til 15.
júlí og verður opin fimmtudaga
til sunnudaga frá kl. 13 til 17.
Íslenska silfurbergið kveikjan
Silfurberg Kynningarmynd fyrir sýn-
ingu þeirra Selmu og Sirru á Eskifirði.