Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Page 19
Framvindan 1977
Útflutningsframleiðsla.
Sjávarafurðir.
Heildarþorskafli landsmanna fyrstu níu mánuði þessa árs var um
280 þús. tonn eða um 40 þúsund tonnum meiri en á sama tíma i
fyrra. Sem kunnugt er var gripið til sérstakra friðunaraðgerða við
þorskveiðar síðari hluta sumars, og voru allar þorskveiðar hannaðar
í eina viku og þorskveiðar togara voru bannaðar í einn mánuð, auk
þess sem ákveðnum svæðum var lokað og reglur um lágmarksstærð
möskva voru hertar. Þótt þessar ráðstafanir muni án efa draga
nokkuð úr þorskaflanum, má búast við, að hann verði svipaður síð-
ustu mánuði þessa árs og hann var á sama tíma í fyrra, þar sem
sókn á miðin hefur aukizt vegna fjölgunar togara. Á þessum for-
sendum er gert ráð fyrir, að lieildarþorskaflinn verði um 315 þús.
tonn á þessu ári. Þorskafli erlendra skipa á íslandsmiðum mun að
líkindum verða um eða yfir 10 þús. tonn, og heildarþorskaflinn við
ísland gæti því orðið um 325 þús. tonn. Þetta er 20—25 þús. tonnum
minna en í fyrra, en engu að siður talsvert meiri afli en fiskifræð-
ingar Hafrannsóknastofnunar mæltu með við upphaf ársins. Svo mik-
ill afli virðist engu að síður geta samræmzt áformum um að treysta
þorskstofninn smám saman á komandi árum, þegar bæði er litið
til fiskifræðilegra og efnahagslegra sjónarmiða, ef dregið verður
verulega úr sókninni í þorskinn í áföngum á næstu árum.
Heildarfiskafli landsmanna fyrstu níu mánuði ársins nam 1129
þús. tonnum samanborið við 825 þús. tonn á sama tíma í fyrra. Hinn
mikli loðnuafli á vetrarvertíð, sem nam 550 þús. tonnum, veldur
mestu um aukningu heildaraflans. Á vetrarvertíðinni 1976 veiddust
aðeins 338 þús. tonn af loðnu, en því olli meðal annars langvinnt
verkfall á bátaflotanum. Loðnuveiðarnar munu auk þess skipta mun
meira máli í ár en i fyrra, þar sem sókn á sumar- og haustvertíð
hefur nú aukizt að mun, og gæti heildaraflinn á sumri og hausti
orðið a. m. k. 250 þús. tonn, samanborið við 120 þús. tonn 1976. Afli
botnfisktegunda annarra en þorsks mun að líkindum verða svip-
aður í ár og í fyrra, og sama máli gegnir um flestar aðrar tegundir
nema síld. Aflakvótar við síldveiðar á haustvertið við Suður- og