Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Blaðsíða 74
72
Hinn 14. febrúar ákvað yfirnefnd Verðlagsráðs nýtt almennt fisk-
verð fyrir tímabilið 1. janúar—31. maí, sem fól í sér verulega breyt-
ingu á stærðarflokkum og verðlagningu stærðarflokka þannig að
verð á stórum fiski hækkaði mun meira en verð á smáum fiski.
Fiskverðsákvörðun þessi var áætluð fela í sér um 14—15% meðal-
hækkun skiptaverðs.
Viðmiðunarverð Verðjöfnunarsjóðs á freðfiski fyrir tímabilið janúar-
mai var hækkað þannig, að gert var ráð fyrir verulegum útgreiðsl-
um vegna freðfisks eða um 1 100 m.kr. á heilu ári. Við álcvörðun við-
rniðunarverðs á saltfiski var hins vegar gert ráð fyrir um 400 m.kr.
inngreiðslum.
Hinn 20. febrúar ákvað Yfirnefnd Verðlagsráðs nýtt verð á loðnu til
bræðslu frá 16. febrúar og hækkaði verðið um 25% frá fyrri ákvörð-
un. Ákvörðun viðmiðunarverðs Verðjöfnunarsjóðs var sem fyrr mið-
uð við, að innstæður Vegna loðnumjöls yrðu notaðar til fulls vegna
loðnumjölsframleiðslunnar 1975.
Maí.
Lög um ráðstöfun gengismunar í þágu sjávarútvegsins, samkvæmt
lögum nr. 2/1975, og um ráðstafanir vegna hækkunar brennsluolíu-
verðs til fiskiskipa voru gefin út 27. maí (nr. 55/1975).
1) 1 lögunum er gert ráð fyrir ráðstöfun gengismunar af birgðum
sjávarafurða að fjárhæð rúmlega 1 600 m.lcr. til ýmissa þarfa í
sjávarútvegi, í meginatriðum sem hér segir: a) Til að létta stofn-
kostnaðarbyrði eigenda fiskiskipa vegna gengistaps af erlendum
og gengistryggðum skuldum, 950 m.kr. b) Til Fiskveiðasjóðs til
lánveitinga, 300 m.kr. c) Til að mæta greiðsluhalla Olíusjóðs til
15. febrúar 1975, 80 m.kr. d) Til Tryggingasjóðs, 100 m.kr. e) Til
lífeyrissjóða sjómanna, 75 m.kr. f) Til ýmissa annarra þarfa, um
120 m.kr.
2) Með lögunum voru útflutningsgjöld til Olíusjóðs fiskiskipa hækk-
uð sem hér segir: a) Úr 5,5% i 11,5% af f. o. b.-verðmæti saltfisks
en í 9,5% af verðmæti skreiðar. b) Úr 4% í 6% af f. o. b.-verð-
mæti mjöls og lýsis. c) tír 4% í 8% af f. o. b.-verðmæti annars
sjávarafurðaútflutnings. Tekjuauki Olíusjóðs áætlaður 1 400 m.kr.
á heilu ári.
Júni.
Hinn 20. júní ákvað yfirnefnd Verðlagsráðs um 11% hækkun al-
menns fiskverðs fyrir tímabilið júní-september. Viðmiðunarverð