Þjóðarbúskapurinn

Tölublað

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Blaðsíða 37

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Blaðsíða 37
35 Hin örðugu rekstrarskilyrði útflutningsatvinnuveganna hafa enn sem komið er a. m. k. ekki haft nein merkjanleg áhrif á atvinnu. Atvinnuleysi hefur verið afar lítið á undanförnum árum og hefur jafnvel enn farið minnkandi á þessu ári. Fyrstu níu mánuði þessa árs voru 320 manns að meðaltali skráðir atvinnulausir, en það var um 0,4% af heildarmannafla, en á sama tíma í fyrra voru 550 manns að meðaltali á atvinnuleysisskrá eða 0,6% af mannafla. At- vinnuástandið hefur því lialdizt gott og má nú fremur teljast hætta á umframeftirspurn eftir vinnuafli. Peningamál. í lánsfjáráætlun ársins 1977 var að því stefnt, að heildaraukning peningamagns og sparifjár vrði ekki nema 19 milljarðar króna á árinu eða um 24%. Fyrstu sjö mánuði ársins jókst peningamagn hins vegar um 19,5 milljarða króna. Er því ástæða til að efast um, að unnt verði að lialda helztu peningastærðum innan marka láns- fjáráætlunar fyrir árið í heild, jafnvel þó að tekið sé með í reikn- inginn, að aukningin fyrri hluta árs er jafnan mun örari en síðari hlutann, einkum vegna árstíðarsveiflu útflutnings. Þá er ennfremur líklegt, að lánsfjáreftirspurn þjmgist verulega síðari hluta ársins af völdum mikillar Iiækkunar rekstrarkostnaðar atvinnuveganna í kjölfar kjarasamninganna í sumar. Fyrri helming ársins jukust endurkaup afurðalánavíxla mun meira en skýra má með venjulegri árstíðabreytingu og g'jaldeyris- kaup voru langt umfram gj aldeyrissölu, einkum vegna mikils inn- streymis erlends lánsfjár. Yfirdráttur ríkissjóðs í Seðlabankanum jókst einnig verulega eins og jafnan fyrri hluta ársins, enda eru útgjöld ríkissjóðs þá venjulega talsvert umfram tekjur, en þetta snýst svo við síðari hluta ársins. Allt þetta varð til þess, að lausa- fjárstaða innlánsstofnana batnaði að mun, þannig að grunnur var lagður að auknum útlánum bankanna. Siðari hluta þessa árs verða erlendar lántökur mun minni en þær voru fvrri hluta ársins, og hefur lausafjárstaða bankanna farið versnandi síðan um mitt sumar. Þá má einnig búast við, að síðustu mánuði ársins fari áhrifa vaxta- breytinganna í ágúst að gæta í vaxandi mæli, en nánari grein er gerð fyrir vaxtabreytingum þessum i annál efnahagsmála. Þessar vaxtabreytingar fólu meðal annars í sér, að innlánsvextir vaxta- aukareikninga voru hækkaðir í 26% og vextir rekstrarlána voru samræmdir og hækkaðir. Yaxtaákvörðun þessi var hins vegar mun mikilvægari að því leyti, að með henni var að því stefnt, að vextir breyttust með hliðsjón af almennum verðbreytingum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Þjóðarbúskapurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.