Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Blaðsíða 72
70
22. júní 1977 ............................... kr. 18 000
1. desember 1977 .............................. — 5 000
1. júní 1978 .................................. — 5 000
1. september 1978 ............................. — 4 000
Samningarnir kváðu á um verðtryggingu launa m.v. breytingar verð-
bótavísitölu (1. maí = 100), en í grunni hennar eru öll útgjöld vísitölu
framfærslukostnaðar að frátöklum áfengis- og tóbaksútgjöldum og
þeirri hækkun, sem verða kann á vinnulið verðlagsgrundvallar bú-
vöru frá 1. maí. Yerðbótavísitalan skal reiknuð út á þriggja mánaða
fresti m. v. sömu daga og vísitala framfærslukostnaðar og veldur
hækkun frá næstliðnu tímabili launahækkun einum mánuði síðar. í
tvö fyrstu skiptin, sem komið gæti til vísitöluhækkunar, var um samið,
að öll mánaðarlaun hækkuðu um sömu krónutölu fyrir hvert vísitölu-
stig, 880 kr. á hvert stig 1. september og 930 kr. á hvert stig 1. des-
ember 1977, en frá 1. marz 1978 hækka laun hlutfallslega sem nemur
hækkun verðbótavísitölunnar. Samningarnir kveða einnig á um
greiðslu verðbótaauka á þriggja mánaða fresti, fyrst hinn 1. des-
ember 1977, ef áætluð meðalverðbótavísitala næstliðinna þriggja mán-
aða, m. v. að vísitalan hefði verið reiknuð út í hverjum mánuði,
reynist meiri en 1% hærri en sú verðbótavisitala, sem í gildi var þetta
tímabil. Hinn 1. desember skulu mánaðarlaun því hækka um 930 kr.
fyrir hvert stig umfram 1%-markið, en frá 1. marz reiknast verðbóta-
aukinn hlutfallslega eins og hinar venjulegu verðbætur. Komi til
greiðslu verðbótaauka skal hann greiddur mánaðarlega í þrjá mánuði
og fellur síðan niður, en þá gæti komið til greiðslu nýs verðbótaauka
næstu þrjá mánuði. 1 kjarasamningunum var jafnframt samkomulag
um, að sérkröfum einstakra landssambanda ASl skyldi mætt með
ígildi 2%% launahækkunar, sem landssamböndin ráðstöfuðu með
ýmsum hætti. Jafnframt var í júnímánuði gengið frá sérsamningum
ýmissa verkalýðsfélaga ASl.
í hinum almennu kjarasamningum í júní er talið, að kauptaxtar allra
ASl-félaga hafi að meðaltali hækkað um 25—26% í fyrsta áfanga
en kauptaxtar verkafólks hafi hækkað um 27—28%.
í tengslum við kjarasamningana tókst nýtt samkomulag milli ASl
og vinnuveitenda um málefni lifeyrissjóða, þar sem fyrra lifeyris-
samkomulag aðila frá febrúar 1976 var útvíkkað og framlengt.
Hinn 30. júní gekk aðalkjarasamningur BSRB og fjármálaráðherra
úr gildi; samningaviðræður liöfðu hafizt en var frestað til miðs
ágústmánaðar.