Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Page 35
33
er mjög svipaöur aukningu afkastagetu á árinu. Samkvæmt þessari
spá mun þjóðarframleiðslan á mann á ný hafa náð fyrra hámarki,
sem varð árið 1974.
Yiðskiptakjarabatinn, sem hófst á fyrsta fjórðungi ársins 1976,
liefur haldið áfram á þessu ári. Viðskiptakjörin verða sennilega
um 9—10% betri að meðaltali í ár en í f'/rra og verða því einungis
5% lakari en þau hafa orðið hæst nokkurt eitt ár, árið 1973. Þegar
áhrifum viðskiptakjarabatans er bætt við breytingu þjóðarfram-
leiðslunnar á árinu verður niðurstaðan sú, að þjóðartekjur í heild
aukast um nálægt 7%%. Samkvæmt þessu yrðu þjóðartekjur á mann
um 3% meiri en þær urðu 1973, áður en samdráttaráhrifanna 1974
og 1975 fór að gæta.
1972 1973 1974 1975 1976 Spá 1977
Þjóðarframleiðsla Vísitölur 100.0 105,7 109,2 106,9 109,5 114,1
Breyting frá fyrra ári, % 6,0 5,7 3,3 4-2,1 2,4 4,2
Viðskiptakjör Vísitölur 100,0 115,3 104,0 88,8 100,1 109,6
Breyting frá fyrra ári, % .. . -;-0,9 15,3 -1-9,8 14,6 12,7 9,5
Þjóðartekjur Vísitölur 100,0 109,6 110,5 103,8 109,9 117,9
Breyting frá fyrra ári, % .. . 5,4 9,6 0,8 4-6,0 5,9 7,3
Niðurstaða þjóðhagsspárinnar, sem hér hefui ■ verið rakin, nm
breytingu heildarframleiðslunnar á árinu, er reist á mati á þjóðar-
útgjöldum og viðskiptajöfnuðinum við útlönd. Spár eða vísbend-
ingar um framleiðslubreytingar í einstökum greinum eru hins vegar
enn sem komið er reistar á takmörkuðum upplýsingum, en sú
vitneslcja, sem fyrir hendi er um framleiðslu í hinum ýmsu atvinnu-
greinum, virðist þó í samræmi við þjóðhagsspána og styðja niður-
stöður hennar um 4% aukningu heildarframleiðslunnar árið 1977.
Sjávarvöruframleiðslan er talin aukast um 13—14% á þessu ári
eins og fram hefur komið í kaflanum um útflutningsframleiðslu
hér á undan. Búist er við, að iðnaðarframleiðslan í lieild aulcist um
svipað hlutfali og árið 1976 eða um 4—5%.Álframleiðslan mun að
líkindum aukast um 9% frá fyrra ári, enda liefur álverksmiðjan
verið rekin með fullum afköstum árið 1977, en dregið var úr fram-
leiðslu árin 1974—1976. Framleiðsla iðnaðarvöru annarrar en áls fór
vaxandi fyrsta fjórðung þessa árs, en dróst síðan saman á öðrum