Þjóðarbúskapurinn

Issue

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Page 44

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Page 44
42 Þjónustuútflutningur nam 32 milljörðum króna á síðasta ári saman- borið við 24,8 milljarða 1975, en það er um 29% krónutöluaukning. Að raungildi er þjónustuútflutningur talinn hafa orðið um 8% meiri á síðasta ári en 1975, einkum vegna aukinna tekna af flutningum. lleildarútflutningur vöru og þjónustu óx um 46% að verðmæti á árinu 1976 en um 12% að magni. Kauplag, verðlag og neyzla. Kauplag. Þróun kauplags á árinu 1976 réðst einkum af ákvæðum nýrra kjara- samninga, sem gerðir voru á fyrsta fjórðungi ársins, vaxandi áhrifum launaskriðs og auknum vinnutíma. Kjarasamningar Alþýðusambands Islands og vinnuveitenda frá júní 1975 giltu aðeins til ársloka, en samkomulag um nýjan kjarasamning tókst ekki fyrr en í lok febrúar 1976, að loknu tæplega tveggja vikna allsherjarverkfalli. Ákvæði þessa nýja kjarasamnings, sem gilti frá 1. marz 1976 til 30. april 1977, fólu í sér um 8—9% almenna lcauptaxtahækkun ásamt sérstakri hækkun lægstu launa. Jafnframt skyldu laun hækka þrisvar á samningstímabilinu, auk þess sem samið var um greiðslu hlutfalls- legra verðbóta á laun, ef hækkun kaupgjaldsvisitölu á hverju þriggja mánaða tímabili færi fram vfir fyrirfram ákveðin þrep. Febrúar- samningarnir urðu síðan fyrirmynd kjarasamninga hinna ýmsu aðila á vinnumarkaðinum. Þótt þessir samningar fælu í sér verulega launa- og taxtahækkanir á síðasta ári, voru þeir engu að síður hóflegir í þeim skilningi, að þeir leiddu ekki til neinnar aukningar kaupmáttar, sem þó liafði verið skertur á árinu 1975. Ennfremur fólst það í vísi- töluákvæðum samninganna, að verðhækkanir voru ekki að fullu bættar með greiðslu verðbóta og rýrnaði kaupmáttur kauptaxta nokk- uð á árinu. Að meðaltali hækkuðu kauptaxtar um 26% milli 1975 og 1976 (27% 1974—1975) og var hækkunin nokkuð jöfn hjá ein- stökum hópum launþega. Á hinn bóginn jókst kaupmáttur tekna frá upphafi til loka ársins 1976, gagnstætt því, sem gilti um kaupmátt kauptaxta. Eins og raunar kom fram hér að framan tók að gæta vaxandi launaskriðs þegar í upphafi ársins, auk þess sem vinnutími lengdist miðað við 1975 og skýrir þetta þann mun, sem birtist í tölum um kaup- mátt kauptaxta annars vegar og tekna bins vegar. Tölur um vinnu- tíma í Reykjavík og nágrenni sýna, að á árinu 1976 hafi vinnu- stundum á viku fjölgað um 2% að meðaltali frá fyrra ári saman- borið við um 3% fækkun vinnustunda 1975. Síðari hluta ársins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðarbúskapurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.