Skessuhorn - 25.11.2015, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 20152
Í síðustu viku hófst árlegt eldvarnarátak
Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna. Er því ætla að vekja athygli á
þeim hættum sem geta fylgt opnum eldi
á heimilum, t.d. kertaljósi. Eldhætta eykst á
heimilum þegar hátíðirnar nálgast og fólk
er því hvatt til að fara varlega með eldinn og
grípa til viðeigandi varúðarráðstafana. Hægt
er að lesa nánar um brunavarnir á heimilum
í Skessuhorni í dag.
Suðvestanátt verður á morgun og síðar
vestan hvassviðri og él en hægari og úr-
komulítið austan til. Snýr í hvassa norða-
nátt með snjókomu á Norðvesturlandi um
kvöldið. Hiti í kringum frostmark. Norðan
10-18 m/s á föstudag, snjókoma á Norð-
urlandi en bjartviðri syðra. 2-12 stiga frost
og kaldast í innsveitum austanlands. Um
helgina er útlit fyrir áframhaldandi norð-
læga átt, hvassa á köflum. Éljagangur norð-
an til en bjartviðri syðra. Talsvert frost.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hversu margar bækur lest þú á ári?“ Flestir
lesa eina til fimm bækur, eða 27,87% þeirra
sem tóku afstöðu. Næstflestir, eða 16,72%,
eru miklir lestrarhestar og lesa fleiri en 25
bækur á ári. „6-10“ svöruðu 13,24%, „16-20“
sögðu 6,97% og 3,83% sögðu „21-25. Að
lokum sögðust 14,98% ekki lesa bækur.
Í næstu viku er spurt: Hversu margar
smákökusortir eru bakaðar á
þínu heimili fyrir jólin?
Í fyrra var stofnaður facebook-hópurinn
Jólakraftaverk, sem hefur það markmið að
aðstoða fjölskyldur sem lítið hafa milli hand-
anna fyrir jólin. Hópurinn safnar gjöfum,
fötum, mat og flestu því sem komið getur
öðrum til góða yfir hátíðarnar. Aðstandend-
ur þessa kraftaverkahóps eru Vestlending-
ar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Menningarpassi
Frystiklefans
RIF: Frystiklefinn, menningar-
miðstöð Snæfellinga, hefur haf-
ið kynningu og sölu á „Menn-
ingarpassanum 2016.“ Um sér-
stakt áskriftarkort er að ræða
sem gildir á alla viðburði húss-
ins í heilt ár. „Kortið er á mjög
sanngjörnu verði og er tilgang-
ur þess að gera Snæfellingum
auðveldara fyrir að taka þátt
í fleiri menningarviðburðum
yfir árið. Hér er um að ræða al-
gjöra nýbreytni á landsbyggð-
inni enda erum við Snæfelling-
ar alltaf skrefinu á undan,“ seg-
ir í tilkynningu frá Frystiklefan-
um. Eftirspurn eftir því að fá að
troða upp í Frystiklefanum hefur
aukist gríðarlega á þessu ári og
nú er ljóst að framboðið verð-
ur mikið á því næsta. Menning-
arpassinn er seldur í Frystiklef-
anum og einnig má panta sér
passa í síma 865-9432 (Kári),
í gegnum netfangið frystiklef-
inn@frystiklefinn.is eða í gegn-
um skilaboð á facebook.
–mm
Jólaúthlutun
verður hjá
Mæðrastyrks-
nefnd
AKRANES: Mæðrastyrks-
nefnd Akraness vill koma því á
framfæri að jólaúthlutun verð-
ur í desembermánuði. Nánari
upplýsingar munu liggja fyrir
í byrjun desember, bæði varð-
andi hvar og hvenær úthlut-
að verður. Úthlutunin verður í
formi gjafakorta í lágvöruversl-
unum og vörum frá fyrirtækj-
um. Tekið verður á móti beiðn-
um í byrjun desembermánað-
ar. María Ólafsdóttir formað-
ur Mæðrastyrksnefndar Akra-
ness bendir á að nefndin tek-
ur við beinum fjárframlögum á
reikning nefndarinnar, sem er
með kennitöluna 411276-0829,
banki 552, höfuðbók 14 og
reikningsnúmer 402048.
–grþ
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
Ú
lf
ar
Ö
rn
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n | Sk ipholt 50a S ími 581 4020 | www.gal ler i l i s t . i s
Útgerðarfyrirtækið Oddi á Patreks-
firði hefur fest kaup á fiskibátnum
Haukabergi SH frá Grundarfirði.
Útgerð Haukabergs var hætt fyrr á
árinu og skip og kvóti selt Loðnu-
vinnslunni á Fáskrúðsfirði. Nú hef-
ur Haukaberg síðan verið selt án
aflaheimilda yfir Breiðafjörðinn til
Patreksfjarðar. Það er sjávarútvegs-
vefurinn aflafrettir.is sem greinir
frá þessu. Haukaberg SH var smíð-
að á Akranesi árið 1974 og var gert
út frá Grundarfirði af sömu útgerð í
41 ár. Nýju eigendurnir á Patreks-
firði hyggjast láta setja beitningar-
vél í bátinn og gera hann út til línu-
veiða. Haukaberg mun þar með
leysa Brimnes BA af hólmi.
mþh
Haukaberg SH selt til Patreksfjarðar
Haukaberg SH við bryggju í Grundarfirði í októbermánuði síðastliðnum.
Skessuhorn gengst nú ellefta árið í
röð fyrir samkeppni meðal grunn-
skólabarna á Vesturlandi í gerð jóla-
mynda og jólasagna. Líkt og á síðasta
ári verður keppnin í þremur flokk-
um. Í fyrsta lagi býðst öllum börnum
á aldrinum 6-9 ára (1.-4. bekkur) að
senda inn teiknaðar og litaðar mynd-
ir (A4) þar sem þemað á að vera jólin.
Í öðru lagi býðst krökkum á aldrin-
um 10-12 ára (5.-7. bekkur) að senda
inn myndir og er þemað það sama.
Teikningakeppninni er því tvískipt
eftir aldri.
Loks býðst elstu grunnskólakrökk-
unum, á aldrinum 13-16 ára (8.-10.
bekkur), að senda inn jólasögur.
Lengd jólasagnanna má að hámarki
vera ein A4 síða með 12 punkta letri.
Valin verður besta myndin í hvor-
um flokki teikninga og besta jólasag-
an að mati dómnefndar. Verða verða-
launamyndir og verðlaunasagan birt
í Jólablaði Skessuhorns sem kem-
ur út miðvikudaginn 16. desember
nk. Stafræn myndavél er í verðlaun í
hverjum flokki.
Skilafrestur á sögum og myndum
í samkeppnina er til og með hádegis
fimmtudaginn 10. desember. Mynd-
ir skulu sendar í pósti á heimilisfang-
ið: Skessuhorn ehf., Kirkjubraut 56,
300 Akranes. Athugið að myndirnar
þurfa að hafa borist á hádegi 10. des-
ember! Munið að merkja vel mynd-
irnar á bakhlið þeirra (nafn, aldur,
símanúmer, heimili og skóli).
Jólasögurnar skulu sendar á raf-
rænu formi í tölvupósti á netfangið:
skessuhorn@skessuhorn.is í síðasta
lagi í hádeginu 10. desember nk. Þar
þarf einnig að koma fram nafn höf-
undar, aldur, símanúmer, heimili og
skóli, og skulu þær upplýsingar vera í
sama skjali neðan við söguna.
Skessuhorn hvetur alla krakka á
grunnskólaaldri á Vesturlandi til að
taka þátt í þessum skemmtilega leik,
senda okkur myndir og sögur.
Gangi ykkur vel!
Jólasamkeppni Skessuhorns meðal grunnskólanema
Jólasögur og jólamyndir óskast!
Góð stemning var á fundi Öryrkja-
bandalags Íslands um „Mannsæmandi
lífskjör fyrir alla“ sem haldinn var á
Gand hóteli síðastliðinn laugardag. Á
fundinum var álitsgerð Ólafs Ísleifs-
sonar um lífskjör í ljósi framfærslu-
viðmiða kynnt. Þar sem fram kom
meðal annars að barnlaus einstakling-
ur, sem býr einn í eigin húsnæði þarf
að hafa 348.537 kr. í ráðstöfunartekjur
á mánuði (eða 482.846 kr. fyrir skatt)
til að geta mætt eðlilegum útgjöldum.
Á þeim tíma (árið 2014) þegar álits-
gerðin var unnin voru mánaðarlegar
ráðstöfunartekjur örorkulífeyrisþega,
sem býr einn og fær greidda heim-
ilisuppbót um 187.507 kr. á mánuði
en 172.000 kr. hjá þeim sem bjó með
öðrum 18 ára eða eldri.
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ,
kynnti nýja könnun Gallup, þar sem
spurt var hvort fólk gæti lifað af fram-
færslu upp á kr. 172.000 á mánuði.
Ríflega 90% svarenda sögðust ekki
geta lifað af svo lágri framfærslu.
Einng töldu um 95% að lífeyrisþeg-
ar ættu að fá jafnháa eða hærri krónu-
töluhækkun en lægstu launþegar.
Í lok fundar var eftirfarandi ályktun
samþykkt samhljóða:
„Ágæti þingmaður viltu skapa sam-
félag fyrir alla, þar sem lífeyrisþegar
og börn þeirra hafa tækifæri til virk-
ar samfélagsþátttöku en ekki að þeim
séu settar þær kjaraskorður sem þeir
búa við nú? Þú hefur valdið til að
breyta! Opinn fundur Öryrkjabanda-
lagsins – Mannsæmandi lífskjör fyr-
ir alla sem haldinn er á Grand hót-
eli laugardaginn 21. nóvember 2015
skorar á þingmenn að hafa áhrif á fjár-
lagagerð ríkisins fyrir árið 2016 með
eftirfarandi hætti:
Lífeyrir almannatrygginga hækki
afturvirkt um sömu krónutölu og
lægstu laun hækkuðu 1. maí sl. (31.000
kr. fyrir skatt).
Lífeyrir almannatrygginga hækki
um 15.000 kr. frá 1. maí 2016 (sam-
hliða hækkun lágmarkslauna).
Þá er einnig farið fram á að krónu-
á-móti-krónu skerðing sérstakrar
framfærsluppbótar verði afnumin hið
fyrsta.
Þingmenn gerið okkur kleift að
vera með mannsæmandi framfærslu.“
mm
Bætur öryrkja helmingur
þess sem talið er þurfa