Skessuhorn - 25.11.2015, Page 50
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201550
A!ventukvöld 27.nóvember
Lifandi tónlist
Léttar veitingar
OPI! 19:30 - 22:00 Gó"ger"aruppbo" byrjar kl 20:00!
Gó!ger!aruppbo! - Gott málefni
"msar kynningar í matarbúri Kaju
Frí hársvar!ar greining hjá Flóka
"mis tilbo! #etta kvöld!
10-50% afsláttur *
*mismunandi tilbo! hjá hverju fyrirtæki
Gja
fab
ré
f
íslenskt handverk og hönnun!
Lífræn matvara
seld eftir vigt.
Jólasúkkula!i
Ljúffengt kaffi
Kirkjubraut 54 Akranesi
Matarbúr
Sumarið 2015 fóru þau Hjalti Stef-
ánsson og Heiður Ósk Helgadótt-
ir um landið og ræddu við áhuga-
fólk um eldri dráttarvélar. Afrakst-
urinn má finna á fjórða DVD disk-
inum um dráttarvélar á Íslandi sem
nýverið var gefinn út. Á ferðum sín-
um hittu þau m.a. eldri herramann
á Dalvík sem fer allra sinna ferða á
Ford 3600. Í Hippakoti eiga bræður
tveir athvarf fyrir sig og sínar vélar
og í smáíbúðarhverfinu í Reykjavík
má finna nýuppgerðan Bautz. Á bæ
einum í Vatnsdal má finna MF100
línuna og í Svínadal er Zetor í háveg-
um hafður.
„Safnararnir í Seljanesi skipa stór-
an sess í hugum áhugamanna um
dráttarvélar. Loksins náðist í þá alla
saman og komum við ekki að tóm-
um kofanum þar. Nýjasta búvélasafn
landsins var opnað með viðhöfn hjá
Sigmari í Lindabæ í Skagafirði og
fylgst var með þegar gömlum drátt-
arvélum var ekið hringinn í kringum
landið, annars vegar Ferguson vinir
og hins vegar hjónin Júlía og Helgi á
Farmall Cub. Í Leiðarhöfn í Vopna-
firði er Ferguson búinn að vera í
notkun í 62 ár og litið er á gömlu vél-
arnar sem eru í Svínafelli í Nesjum. Í
Dragasetrinu er Kristján Bjartmars-
son að gera upp Centaur frá 1934
sem er í eigu Þjóðminjasafnsins og
á Egilsstöðum er Scania Vabis vöru-
bíll nýuppgerður sem bara varð að fá
að vera með. Við heyrum söguna af
því hvernig Vigdís í Eyjafirði endur-
heimti Porche vélina sem faðir henn-
ar keypti fyrir hálfri öld,“ segir í til-
kynningu frá útgefendum.
Á diskinum eru 20 innslög og 29
viðmælendur. Á upptalningunni hér
að framan má sjá að þarna kenn-
ir ýmissa grasa og flestum tegund-
um dráttarvéla bregður fyrir við fjöl-
breyttar aðstæður. Verðið á diskin-
um er 4.000 kr. og mun salan fyrst
og fremst fara fram í beinni sölu
frá framleiðanda með tölvupósti á
tokataekni@gmail.com og í síma
471-3898.
HS Tókatækni er fyrirtæki Hjalta
Stefánssonar og Heiðar Óskar
Helgadóttur. Hjalti er landsmönn-
um að góðu kunnur sem myndatöku-
maður RÚV-Sjónvarpsins á Austur-
landi á árunum 1999 – 2012 þar sem
hann sá að mestu leyti um mynda-
tökur og klippingar. Frá 2012 hefur
hann m.a. myndað með Gísla Sigur-
geirssyni fyrir þáttinn Glettur á Aust-
urlandi fyrir N4. Heiður Ósk Helga-
dóttir, einnig kunn af störfum sín-
um fyrir Sjónvarpið í áratugi, sér um
hljóðvinnslu og grafík. Dagskrárgerð
disksins er alfarið í þeirra höndum.
Sem fyrr er það Jens Kr. Þorsteins-
son hjá Jennafilm í Kópavogi sem sér
um að koma efninu á diska og fjöl-
földun þeirra. mm
Áfram veginn – mynddiskur um dráttarvélar á Íslandi
Nýjasti diskurinn hefur að geyma 20 innslög við 29 viðmælendur.
Bræðurnir í Hippakoti.
Porche dráttarvél glansandi fín.