Skessuhorn - 25.11.2015, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201538
Það er ekki óalgengt að íslensk-
ar stelpur eignist börn ungar. Lilja
Bjarklind Garðarsdóttir og Oliver
Bergmann voru rétt að verða 19 ára
þegar þau eignuðustu tvíburadreng-
ina Ólaf Darra Bergmann og Vikt-
or Leví Bermann, núna í septem-
ber. Lilja er fædd og uppalin Skaga-
stúlka og hefur undanfarið stundað
nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands
á Akranesi. Koma Ólafs Darra og
Viktors Leví hafði ekki mikil áhrif á
nám Lilju og stefnir hún á að útskrif-
ast með stúdentspróf á fjórum árum.
„Ég ætlaði að útskrifast núna um jól-
in en það gekk ekki alveg upp en ég
stefni á að útskrifast í vor,“ segir Lilja
þegar blaðamaður kom við hjá henni
í heimsókn. „Ég er í þremur áföng-
um núna og það gengur allt mjög vel.
Það er þó erfitt að fara frá strákunum
til að mæta í tímana en það verður
vonandi auðveldara þegar meiri rút-
ína er komin á þá,“ segir Lilja.
Mætir bara góðu við-
móti
Lilja er hörkudugleg ung móðir sem
er einnig mjög jákvæð fyrir lífinu.
Á meðan hún gekk með drengina
tvo sinnti hún bæði námi og vinnu.
„Þetta er alveg erfitt en samt svo
skemmtilegt. Við erum líka rosalega
heppin því þeir eru báðir svo vær-
ir og góðir strákarnir og allt fólkið í
kringum okkur er tilbúið að hjálpa.
Við mætum bara jákvæðni og góðu
viðmóti frá öllum, bæði fjölskyldu
og svo kennurum í skólanum. Við
búum hjá mömmu minni og hún
hefur hjálpað okkur mjög mikið og
er eins mikið til staðar og hún get-
ur. Í skólanum hef ég fengið frjálsa
mætingu og það eru allir tilbúnir til
að aðstoða. Það gerir þetta svo mik-
ið auðveldara að hafa þennan stuðn-
ing,“ segir Lilja.
Langar að verða
ljósmóðir
Báðir foreldrarnir, Lilja og Oliver,
eru í námi og í vor stefnir Lilja á
útskrift af náttúrufræðibraut. Hún
stefnir einnig á að halda áfram í
námi næsta haust. „Ég stefni á að
fara beint í háskólann næsta haust,
það fer samt allt eftir því hvernig
gengur fram að því. Það gæti alveg
breyst en þetta er stefnan. Mig lang-
ar mest að verða ljósmóðir, sérstak-
lega eftir að ég átti strákana mína.
Ég er viss um að það sé mjög gef-
andi starf,“ segir Lilja. Hún er ekki
eingöngu dugleg og metnaðarfull
ung móðir heldur einnig hógvær
og einstaklega jákvæð. „Mér finnst
þetta ekkert mikið mál, ekki ennþá
allavega. Ég veit að hlutirnir gætu
breyst en eins og er finnst mér þetta
bara frábært,“ segir Lilja um móð-
urhlutverkið. arg
Dugleg ung móðir á Akranesi
Lilja Bjarklind Garðardsóttir með syni sína tvo, þá Ólaf Darra og Viktor Leví.
Í síðustu viku var tilkynnt að
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefði verið
valinn besti lífeyrissjóður Evrópu
í sínum stærðarflokki. Í umsögn
dómnefndar fagtímaritsins Invest-
ment Pension Europe (IPE), sem
veitir verðlaunin árlega, kom með-
al annars fram að samhliða öflugri
áhættustýringu hafi Frjálsi lífeyris-
sjóðurinn sýnt framsýni í fjárfest-
ingarákvörðunum sem hefur skil-
að sér í góðri ávöxtun og ánægðum
sjóðfélögum. Þetta er þriðja árið í
röð sem Frjálsi lífeyrissjóðurinn
vinnur verðlaun IPE.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í
rekstri hjá Arion banka, er með um
51 þúsund sjóðfélaga og eru eignir
sjóðsins um 165 milljarðar. Sjóð-
urinn er einn fárra lífeyrissjóða
sem býður sjóðfélögum að ráðstafa
hluta af 12% skylduiðgjaldi sínu í
séreignarsjóð. Hann hentar þeim
sem hafa frjálst val um í hvaða líf-
eyrissjóð þeir greiða skylduiðgjald
og jafnframt þeim sem leggja fyrir
í viðbótarlífeyrissparnað.
mm
Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, með verðlauna-
gripinn sem hann fékk afhentan.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
valinn besti lífeyris-
sjóður Evrópu
-Greni
-Strákransar
-Bindivír
-Kerti
-Borðar
-Jólakúlur
-Jólastyttur
-Skrautkúlur
-Skrautnálar
-Oasis
-Epli
-Sveppir
-Kirsuber
-Skrautgreinar
-Berjagreinar
Allt í aðventukransinn
-Greni
-Strákransar
-Bindivír
-Kerti
-Borðar
-Jólakúlur
-Jólastyttur
-Skrautkúlur
-Skrautnálar
-Oasis
-Epli
-Sveppir
-Kirsuber
-Skrautgreinar
Gjafavara í úrvali
Kynnið ykkur úrvalið