Skessuhorn - 25.11.2015, Page 49
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2015 49
íslensk hönnun . íslensk framleiðsla
Ármúli 17a . Reykjavík . sími: 588 9933 . fax: 588 9940 | Miðás 9 . Egilsstaðir . sími: 470 1600 . fax: 471 1074 | www.brunas.is
* Flytjandi ytur vöruna á þá
stöð sem næst er viðskiptavini
FRÍR FLUTNINGUR
Hvert á land sem er*
Komdu í sýningarsali okkar og fáðu faglega þjónustu
og ráðgjöf innanhússarkitekta við val á Brúnás innréttingum
2015
14.
síðasta tölublaði þessa árs sem kemur
út miðvikudaginn 30. desember 2015.
sjá um salinn og bakstur um helg-
ar, en þá er hægt að koma og fá sér
kaffi og kökur. „Við ætluðum okk-
ur að sjá um þetta bara fjögur en
það varð svo aðeins of mikið. Við
erum því með einn starfsmann sem
er hér í eldhúsinu með strákunum
og svo eru nokkrar stelpur sem
hjálpa okkur í salnum,” segir Rósa
og bætir því við að einnig hafi fjöl-
skyldan hjálpað mikið.
Fyrst og fremst
veitingastaður
Nafnið á veitingastaðnum var val-
ið með nafnakeppni. Það var mág-
ur Þóru sem kom með hugmynd-
ina um Skúrinn en húsið var eins
og skúr áður en það var gert upp.
Þau eyddu öllum lausum tíma í
að gera upp húsið mánuðina fyrir
opnun. Meira að segja stóran hluta
húsgagnanna fengu þau notað og
gerðu upp. „Við fengum alla stól-
ana að gjöf eða keyptum þá í Góða
hirðinum. Stelpurnar sáu svo um
að pússa þá og mála,” segir Sveinn.
„Við sáum meira að segja sjálfir
um að hanna eldhúsið og við höf-
um ekki rekið okkur á neitt sem
ekki virkar nógu vel þar, það kom
eiginlega á óvart,” bætir Arnþór
við. Ætlunin er að halda áfram að
bjóða upp á fjölbreyttan mat fyr-
ir alla en um helgar hafa þau líka
verið að sýna fótboltaleiki og ætla
að sýna frá fleiri íþróttum. „Við
viljum að þetta sé staður fyrir alla.
Hér er að koma mjög breiður hóp-
ur fólks. Eldri borgarar, krakkar og
allt þar á milli. Það er líka vinsælt
hjá eldri borgurum að fá sér Eldri
borgara, en það er hamborgari á
matseðlinum okkar,” segir Arnþór
og hlær. „Þetta á fyrst og fremst að
vera veitingastaður, kannski gæt-
um við boðið upp á að fólk haldi
hér afmæli eða eitthvað slíkt, en
þetta á ekki að vera bar,” bætir
Sveinn við. „Við viljum svo bara
þakka öllum fyrir þessar frábæru
móttökur sem við höfum fengið,
þetta hefur algjörlega farið fram
úr okkar björtustu vonum,” segir
Arnþór að lokum.
arg
Skúrinn í Stykkishólmi.