Skessuhorn - 25.11.2015, Page 54
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201554
Hjónin Vilborg Ása Fossdal og
Reynir Þór Róbertsson opnuðu
verslunina Hólabúð á Reykhól-
um í lok marsmánaðar á þessu ári,
en þá hafði verslunin verið lok-
uð um tíma eftir að fyrri eigend-
ur hættu rekstri. Segja má að Hóla-
búð minni á kaupmanninn á horn-
inu, lítil og vinaleg verslun þar sem
hægt er að fá allt mögulegt. Hjón-
unum líkar mjög vel á Reykhólum,
þau segja fólkið í hreppnum yndis-
legt og að allt standi undir vænt-
ingum. „Við erum búin að aðlagast
þessum breytingum, það er nefni-
lega allt til alls hér. Það er ekkert
sem vantar hérna þó það sé ekki
bíó á Reykhólum,“ segja þau í sam-
tali við Skessuhorn.
Vekur kátínu
Ása og Reynir eru mikil jólabörn.
Það sýndi sig fljótt í haust, þegar
þau voru búin að skreyta Hólabúð
hátt og lágt í október. Þau segja
viðskiptavinina hafa verið ánægða
með að fá jólastemninguna snemma
í bæinn. „Þetta vekur kátínu. En
við höfum líka fengið að heyra að
við séum kolklikkuð. Reynir hafði
nú á orði að þau væru bara hepp-
in með það, annars hefðum við
kannski aldrei flutt hingað,“ segir
Ása hlæjandi. „En krakkarnir eru
alveg í skýjunum, ég held að flestir
séu sáttir við þetta.“ Hjónin bjuggu
áður í Reykjanesbæ og sáu um dag-
legan rekstur húsgagnaverslunar-
innar Bústoðar. Í Reykjanesbæ er
mikil hefð fyrir jólaskreytingum
og sjást þær víða, bæði á heimilum
og fyrirtækjum. „Það var mikilvægt
að ná að vera fyrstur í bæjarfélag-
inu til að skreyta búðina. Þetta var
stór verslun, um 1600 fermetrar
sem ég þurfti að skreyta þannig að
ég byrjaði að fara í gegnum dótið í
október,“ segir Ása. Það var kapps-
mál hjá Ástu að hafa verslunina
vel skreytta. „Í gamla daga var líka
nokkurs konar eldhús-jólagardínu
samkeppni hjá konunum í bænum.
Það hefur verið hefð fyrir miklum
skreytingum í Keflavík og þar má
meðal annars finna jólahús.“
Skreyttu jólatréð
í nóvember
Ása og Reynir skreyttu ekki einung-
is verslunina snemma. Þau tóku sig
til og skreyttu heimilið líka, langt
á undan flestum öðrum. „Ég hef
alltaf verið jólabarn og hef alltaf
hlakkað mikið til þessa tíma ársins.
Þegar ég var níu eða tíu ára skreytti
ég allt húsið í október á meðan
mamma var í vinnunni. Mamma
missti hökuna niður í gólf þeg-
ar hún kom heim en leyfði mér að
hafa skrautið uppi fram í endaðan
mars,“ segir Ása og hlær. „En hún
tók af mér loforð um að gera þetta
ekki aftur svona snemma,“ bætir
hún við. Hún segir þau hjón bæði
hafa alist upp við þá hefð að jóla-
tréð væri skreytt á Þorláksmessu en
það breyttist þegar þau fóru að búa
saman. „Við höfum alltaf unnið
við afgreiðslustörf og smám sam-
an fór maður að skreyta fyrr.“ Í ár
skreyttu þau því heimilið að innan í
byrjun nóvember, þar á meðal jóla-
tréð sjálft. „Við ákváðum að gera
það bara, vorum komin í gírinn og
full tilhlökkunar. Við erum vana-
lega búin að skreyta snemma. Við
eigum bara eftir að klára að skreyta
fyrir utan. Það vantaði bara per-
ur og annað í seríurnar til að hægt
væri að klára það.“
Fyrirhuguð stækkun
Í Hólabúð óma jólalögin og um
helgar er diskókúlan í gangi. „Þetta
er svo skemmtilegt svona þegar fer
að rökkva, krakkarnir koma dans-
andi hingað inn,“ segir Ása. Hún
segist þó ekki ætla að baka mik-
ið fyrir jólin. „Ég dró úr því eft-
ir að stelpurnar fluttu að heiman,
það eru þær sem eru sykursnúð-
arnir í fjölskyldunni. Strákarnir eru
minna hrifnir af þessu og vilja bara
piparkökur. En í ár ætla ég að baka
sörur og smotterí sem við munum
bjóða upp á með jólaglögginu sem
verður í boði í Hólabúð á Þorláks-
messu á milli klukkan 20 og 22,“
segir hún. Það verður því áfram-
haldandi jólastemning í Hóla-
búð og hægt að fá sér sæti í hlý-
legu jólahorninu og panta sér vefju
eða Hólabúðarhammara. „Við vor-
um líka með súpur í sumar og nú
er fyrirhugað að byggja yfir ver-
öndina og stækka. Ferðamennirn-
ir koma við hjá okkur og það veitir
ekki af því að stækka. Ætli við setj-
um ekki auglýsingu við vegamótin
líka til að minna betur á okkur.“
grþ / Ljósm. úr einkasafni
Jólabörnin í Hólabúð á Reykhólum
Reynir og Ása í Hólabúð eru mikil jólabörn.
Það er jólalegt um að litast heima hjá Ásu og Reyni sem skreyttu heima hjá sér í
byrjun nóvember.
Hjónin Reynir og Ása á brúðkaupsdaginn ásamt börnum sínum, en þau giftu sig
um jólin 2013.
Jólaskrautið var komið snemma upp í Hólabúð og jafnvel stólarnir klæddir í jólaföt. Hólabúð er jólaskreytt hátt og lágt.