Skessuhorn - 25.11.2015, Blaðsíða 59
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2015 59
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2015
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Mánudagur 7. desember
Þriðjudagur 8. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hið árlega Æskulýðsball var haldið í
25. sinn í Borgarnesi fimmtudaginn
19. nóvember síðastliðinn. Húsráð
félagsmiðstöðvarinnar Óðals stend-
ur fyrir ballinu, en það samanstend-
ur af nemendafélögum Grunnskól-
ans í Borgarnesi, Varmalandi og
Kleppjárnsreykjum. Um 350 krakk-
ar úr öllum skólum á Vesturlandi og
alveg norður til Hólmavíkur hittust í
Hjálmakletti og skemmtu sér saman
og að sögn aðstandenda voru gest-
irnir til fyrirmyndar, enda um vímu-
lausa forvarnarskemmtun að ræða.
„Ballið fór rosalega vel fram og er
alltaf að verða stærra og flottara,“
segir Rósa Hlín Sigfúsdóttir, deild-
arstjóri í Óðali, í samtali við Skessu-
horn. Vill hún koma sérstökum
þökkum til útskriftarhóps MB sem
sá um gæsluna á ballinu. „Krakkarn-
ir í útskriftarhópnum eru svo æstir
í að koma og sinna gæslunni í sjálf-
boðavinnu að það voru miklu fleiri
sem sóttu um en komust að. Þeir
eiga góðar minningar frá sínum
æskulýðsböllum og eru kannski að
reyna að endurupplifa stemninguna
frá öðru sjónarhorni,“ segir Rósa.
Nokkrir krakkar úr Óðali sáu um
tónlistina fyrst um sinn þar til Heiðar
Austmann tók við. Að lokum trylltu
Úlfur, úlfur og McGauti æsku-
lýðinn, bæði saman og í sitthvoru
lagi. Fær hljóðmaður úr Reykjavík
var ráðinn til að sjá um hljóðið, DJ
búrið hans Páls Óskars var leigt og
konfettíbombur sprengdar á með-
an dansleiknum stóð. Mikill metn-
aður var lagður í ljósabúnað, kastar-
ar færðir úr Óðali svo sýningin gæti
verið sem mest fyrir augað. „Þetta
heppnaðist allt eins og best verður á
kosið,“ segir Rósa Hlín.
kgk
Æskulýðsballið heppnaðist
eins og best verður á kosið
Um 350 krakkar úr öllum grunnskólum á Vesturlandi skemmtu sér saman á Æskulýðsballinu í Borgarnesi síðastliðinn
fimmtudag.
Nokkrir hressir krakkar bregða á leik í myndatöku í Hjálmakletti.