Skessuhorn - 25.11.2015, Side 62
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201562
Bjarni Þór
Gallerí vinnustofa
Kirkjubraut 1
Akranesi
Símar 431-1964,
857-2648, 849-6977
listamadur@simnet.is
www.listamadur.com
Málverk, vatnslitamyndir, skopteikningar, bókaskreytingar, skúlptúrar
Jólakveðja frá listamanninum og konu hans
Opið alla laugardaga til jóla
Tvær frábærar bækur sem ÞÚ ættir að lesa!
Bókaútgáfan Hólar • holabok.is • holar@holabok.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Ævisagan og Hersetan!
Jón skipstjóri Magnússon á Patreksrði
fer hér á kostum í ævisögu sinni,
ÞETTA VAR NÚ BARA SVONA.
Fróðleg bók og skemmtileg, þar sem
orðalag Jóns fær sín notið til fulls.
HERSETAN Á STRÖNDUM OG
NORÐURLANDI VESTRA greinir frá
mörgum athyglisverðum atburðum,
s.s. loftárusum og mannskæðu
sjóslysi á Hrútarði.
Það er alltaf eitthvað nýtt á prjón-
unum hjá Agnesi Óskarsdóttur á
Hundastapa. Á búinu eru bæði ær
og kýr og fjölskyldan á bænum er
stór. Þau Agnes og Halldór Gunn-
laugsson eiga fjóra drengi; Jóhann-
es sem er tólf ára, Óskar sem er tíu
ára, Ólaf sem er átta ára og Sigur-
þór sem er fjögurra ára. „Ég er fyrst
og fremst bóndi og móðir en fyrir
utan það vinn ég í Ljómalind, þar
sem ég er að selja vörur frá mér og
hópi annarra. Matargerð er helsta
áhugamálið mitt og ég er alltaf að
prófa eitthvað nýtt. Ég er kom-
in með 25 matvörutegundir núna;
sultur, saft, brauð, kálfakjöt, svína-
kjöt, grafið ærfilé og fleira. Ég fór
á pylsugerðanámskeið núna fyrir
stuttu, sem var mjög skemmtilegt.
Núna er ég búin að vera að prófa
mig áfram í pylsugerð og stefnir
allt í að ég komi með kálfapylsur á
næstu dögum,” segir Agnes þegar
við hittum hana í Ljómalind fyrr í
mánuðinum.
Hafa svín á sumrin
Á Hundastapa eru 55 mjólkandi kýr
og um 90 kindur, ásamt því að þau
hjónin hafa einnig verið með svín
yfir sumartímann. „Við höfum mjög
gaman að öllu svona nýju og höfum
síðustu ár verið með svín á sumr-
in, svona til gamans. Svo hef ég ver-
ið að selja svínakjötið hér í Ljómal-
ind. Þetta kjöt er sniðugt fyrir jólin,
sérstaklega fyrir þá sem ekki þola
reyktan mat. Svínakjötið frá okkur
er sykursaltað, sem er aðeins önnur
meðhöndlun en við erum vön, en
bragðast mjög vel. Kjötið er ekki
reykt heldur látið liggja í sykursalt-
blöndu og það verður ekki ósvip-
að á bragðið og reykta kjötið,” seg-
ir Agnes og bætir því við að sykur-
saltaða svínakjötið sé komið í sölu í
Ljómalind.
Fór til London á
matarkynningu
Sulturnar hennar Agnesar hafa ver-
ið mjög vinsælar í Ljómalind og er
úrvalið æði fjölbreytt. Enda hef-
ur hún lagt mikið upp úr sultu-
gerðinni og eru uppskriftirnar allar
búnar til af henni sjálfri. Grafna ær-
filé-ið hefur einnig verið mjög vin-
sælt og núna fyrr í haust fór Agnes
á matarkynningu úti í London þar
sem hún kynnti það á einni stærstu
matarkynningu í Evrópu. „Þetta
var mjög gaman en við fórum tvær
saman, ég og Eva Hlín sem vinnur
líka hér í Ljómalind. Ég hef farið
á matarmarkaðinn í Hörpunni síð-
ustu fjögur ár, var einmitt þar núna
um síðustu helgi. En kynningin
úti í London var allt öðruvísi. Það
var rosalega mikið af fólki og fjöl-
breytt stemning. Þetta var virkilega
skemmtileg ferð og svo fékk mað-
ur að prófa alls konar nýjan og fjöl-
breyttan mat,” segir Agnes.
Seldi ærfilé með
forsetafrúnni
Sjálf forsetafrúin, Dorrit Moussa-
ieff, kíkti á þær Agnesi og Evu Hlín
á matarkynningunni í London. Þar
lét hún hendur standa fram úr erm-
um og prófaði að selja filé. „Hún
var alveg yndisleg og tók okkur upp
á sína arma þarna úti. Íslendingar í
London voru líka duglegir að kíkja
við hjá okkur. Það var nú eiginlega
þannig að maður vissi ekki alltaf
hvort maður ætti að tala íslensku
eða ensku, það komu svo margir Ís-
lendingar,” segir Agnes og hlær. Ís-
lendingar mega eiga það að þjóðar-
stoltið er mikið og flestir eru dug-
legir að styðja alla þá sem fara út
fyrir landsteinana og kynna land-
ið okkar. „Það er hópur á Facebo-
ok fyrir Íslendinga í London og það
eru um þúsund einstaklingar í þeim
hópi. Við ákváðum því að auglýsa
þetta þar en það kom okkur samt
á óvart hversu margir Íslendingar
komu,” segir Agnes.
Foreldrafulltrúi í
þremur bekkjum
Ásamt því að vera móðir fjögurra
drengja, bóndi og að vinna í Ljó-
malind er Agnes einnig formað-
ur í Kvenfélagi Hraunhrepps og
foreldrafulltrúi í þremur bekkj-
um í Grunnskólanum í Borgar-
nesi. „Ég hef alltaf nóg að gera en
ég veit ekki alveg hvernig ég end-
aði með svona mikið að gera,” seg-
ir Agnes og hlær. „Ég er foreldra-
fulltrúi í öllum þeim bekkjum sem
ég á barn í, fjórða barnið er nefni-
lega enn á leikskóla. Mér þykir bara
alltaf best að hafa nóg að gera. Við
erum reyndar með vinnukonu sem
hjálpar okkur mikið. Halldór sér
líka um að mjólka og ég tek að mér
eldamennskuna í staðinn, enda er
matargerð áhugamálið mitt. Ég er
bara alltaf að púsla saman lífinu og
þannig líður mér vel,” segir Agnes
Óskarsdóttir.
arg
Kálfapylsur eru næsta nýjung í
framleiðslunni á Hundastapa
Agnes Óskarsdóttir í Ljómalind þar sem hún vinnur og selur matvörur sem hún framleiðir sjálf.
Þær Agnes og Eva Hlín í Ljómalind hafa víða farið til að kynna matinn úr héraði.
Meðal annars til London þar sem forsetafrúin hjálpaði þeim við kynninguna.