Skessuhorn - 25.11.2015, Qupperneq 72
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201572
Akurnesingurinn Páll Sindri Ein-
arsson þykir ansi liðtækur í tölvu-
leiknum Counter Strike. Í raun er
hann svo flinkur að hann var valinn
í íslenska landsliðið, sem keppir
reglulega í tölvuleiknum á heims-
vísu. Páll var fyrst valinn í landslið-
ið fyrir tveimur árum og hefur átt
fast pláss síðan. Skessuhorn heyrði í
Páli Sindra og forvitnaðist um leik-
inn. „Þetta er bara tölvuleikur sem
er spilaður af tveimur fimm manna
liðum. Þarna eru hryðjuverkamenn
á móti löggum og maður spilar 30
umferðir, 15 með hvoru liði,“ út-
skýrir Páll. Leikurinn sjálfur er
20 ára gamall en hefur breyst að-
eins frá því hann kom út fyrst. Páll
Sindri segist hafa spilað leikinn
síðan um fermingu, eða í átta ár.
Boltinn fór að rúlla hjá Páli þeg-
ar hann tók þátt í svokölluðu LAN
móti þegar hann var yngri. „Þetta
vatt bara upp á sig. Ég varð betri og
betri eftir því sem ég spilaði lengur,
ég vann mig bara upp.“
Talið sem
íþrótt erlendis
Páll segir leikinn vera mjög vin-
sælan og að vinsældirnar hafi auk-
ist með árunum. „Þetta er miklu
stærra en það var. Þetta kallast „E-
sport“ í dag og er talið sem íþrótt
erlendis. Mótin eru sýnd í sjón-
varpinu og það eru mörg hundruð
þúsund manns sem horfa á þetta.
Ég horfi til dæmis meira á þetta en
fótbolta, það er svo gaman að fylgj-
ast með þessu. Á síðasta móti, þar
sem öll bestu lið heims spiluðu á
einum stað, horfðu til dæmis 800
þúsund manns á leikinn,“ útskýrir
Páll. Hann segist þó ekki hafa spil-
að sjálfur á því móti. „Nei, við spil-
uðum í undankeppninni og kom-
umst langt í henni en töpuðum svo
á móti besta liði í heimi - sem vann
svo mótið. Þetta er annað svona
mótið sem ég spila á en í fyrsta
skipti sem ég náði svona langt.“
Stórmót sem þessi eru haldin fjór-
um sinnum á ári. Þar koma sext-
án bestu liðin saman og spila. „Svo
eru í raun mót hverja helgi úti. Þá
ferðast atvinnumennirnir á milli og
þar eru peningaverðlaun. Það er til
dæmis hægt að vinna 300 þúsund
dollara fyrir fyrsta sæti, sem eru
tæpar 40 milljónir íslenskar.“
Þarf mikla rökhugsun
Páll er einnig meðlimur í liðinu
Malefiq, sem er besta lið landsins í
leiknum. „Við unnum Íslandsmót-
ið fyrir tveimur vikum síðan, sem
er online keppni í hálft ár. Svo voru
úrslitin spiluð uppi í Tölvulista.
Framundan hjá okkur er svo mót í
janúar og ef þú vinnur það, þá ertu
bestur á Íslandi,“ segir Páll en liðið
hefur áður unnið slíkt mót. Hann
segir leikinn í eðli sínu vera auð-
veldan en þó þurfi að nota mikla
rökhugsun þegar spilað er. „Þú
þarft að vera alveg temmilega klár
til að verða góður í þessu.“ Páll
segir áhugamálið taka töluverðan
tíma og að liðið reyni að spila sem
mest saman fyrir mót. „Þetta snýst
nefnilega um samvinnu. Ég sjálfur
spila leikinn í um þrjá tíma á dag en
ég spila alls ekki alla daga. Það er
samt góður félagsskapur í þessu og
ég hef eignast marga vini í gegnum
þetta. Ég er alls ekki alltaf í tölv-
unni, ég geri alveg annað með,“
segir hann og hlær. „Ég spila til
dæmis FIFA annað slagið og spila
fótbolta,“ segir Páll sem hefur leik-
ið fótbolta frá barnsaldri, fyrst með
ÍA og Kára en með Tindastóli síð-
astliðið sumar.
grþ
Páll Sindri Einarsson er í
landsliðinu í Counter Strike
Páll Sindri Einarsson landsliðsmaður í Counter Strike.
Svipmynd af bardagamanni í Counter Strike.
Í fyrra stofnaði Akurnesingurinn
Védís Kara Reykdal síðuna Jóla-
kraftaverk á samskiptamiðlinum Fa-
cebook. Tilgangur síðunnar er að
fólk geti aðstoðað fjölskyldur með
gjöfum fyrir jólin eða beðið um að-
stoð. Í lýsingu hópsins er sagt frá því
að jólin séu mörgum erfiður tími
og þá sérstaklega foreldrum. „Því
miður eru allt of margar fjölskyldur
á Íslandi í dag sem eiga sárt um að
binda og það vilja allir geta gert sitt
besta fyrir fjölskylduna sína en eiga
ekki endilega alltaf til fjármagnið til
þess,“ segir á síðunni þar sem krafta-
verkin gerast. Skessuhorn heyrði í
Dalakonunni Anítu Rún Harðar-
dóttur sem er einn af stjórnendum
Jólakraftaverka, annað árið í röð.
Neyðin er mikil
Aðspurð um hvort neyðin sé mikil í
ár segir Aníta að svo sé. „Mun meiri
en í fyrra, það hafa mikið fleiri leitað
til okkar í ár. Ég finn allavega rosa-
legan mun milli ára en starfið er líka
þekktara núna en í fyrra. Kannski
er þetta líka vegna þess að það voru
fleiri sambærilegar síður í fyrra og
þar af leiðandi leita fleiri til okkar
núna. Við vorum samt skipulagðari
í ár og byrjuðum mun fyrr en í fyrra.
Við vorum byrjaðar að plana og
skipuleggja í september en byrjuð-
um að úthluta gjöfum í nóvember,“
segir hún. Aníta segist ekki hafa ná-
kvæma tölu á þeim sem leitað hafa
eftir aðstoð en segir aðstandendur
síðunnar hafa hjálpað í kringum 300
börnum með aðstoð af ýmsu tagi.
„Það eru líka alveg ótrúlega marg-
ir sem hafa veitt okkur hjálparhönd.
Ýmis fyrirtæki hafa til dæmis styrkt
okkur með gjöfum og einstakling-
ar líka. Við erum ennþá sömu sem
stjórnum síðunni og í fyrra en fleiri
yndislegar konur hafa bæst í hóp-
inn. Margar hendur vinna létt verk,“
segir Aníta.
Leikföng vinsælust
Aníta segir flesta sem óska eftir hjálp
í gegnum kraftaverkasíðuna vera að
biðja um leikföng og annað til að
gefa börnum sínum í jólagjöf. Þá eru
einnig einhverjir sem eru að leita að
jólafötum, jólamat og gjöfum fyr-
ir sveinka. „Leikföngin eru vinsæl-
ust til að gefa börnunum á jólunum
finnst mér, svo kannski bækur og
föt þar á eftir. En fyrir eldri krakk-
ana er helst óskað eftir snyrtidóti og
bara alls konar gjöfum.“ Hún segir
fólk alls staðar af landinu vera í þeim
sporum að þurfa aðstoð og að hægt
sé að leita til stjórnenda síðunnar í
gegnum Facebook eða með því að
senda tölvupóst á netfangið hatidar-
hjalp@gmail.com. Þá geta þeir sem
vilja rétta fram hjálparhönd einnig
haft samband. „Við tökum á móti
gjöfum, fötum, gjafabréfum og bara
öllu sem getur glatt aðra. Það eru
engin takmörk eða tímamörk, bara
að gjafirnar berist fyrir aðfangadag,“
segir Aníta Rún að endingu.
grþ
Deila jólakraftaverkum
til barnafjölskyldna
Aníta Rún Harðardóttir er ein þeirra deilir jólagjöfum til barnafjölskyldna sem hafa
lítið á milli handanna.
Einn liður í undirbúningi jólanna
er að láta hreinsa og þvo allt fyr-
ir heimilið, ekki síst sín betri föt
og kjóla en einnig dúka, gardínur
og annað. Á Akranesi, fjölmenn-
asta þéttbýliskjarna Vesturlands,
hefur um nokkurt skeið verið rætt
meðal bæjarbúa að hvimleitt sé að
geta ekki farið með föt í hreinsun
í bænum. Þær umræður eiga þó
ekki við rök að styðjast, því Fönn
starfrækir móttöku að Skagabraut
17. Móttakan er opin frá hádegi til
fimm alla virka daga og á því bili
geta bæjarbúar afhent og sótt föt til
hreinsunar. Tveir Skagamenn, þeir
Gulli og Erlingur, skipta vöktunum
á milli sín. Bílstjóri frá Fönn ekur
á hverjum degi til og frá Akranesi
og er afhendingartíminn alla jafnan
sá með sami og í Reykjavík. „Ein-
hvern veginn er eins og fáir hafi
vitað af okkur hingað til,“ segir Ari
Guðmundsson framkvæmdastjóri
Fannar í samtali við Skessuhorn.
„En eftir að við settum upp sérstaka
móttöku og létum aðeins vita af
okkur með gerð sér facebook-síðu
fyrir móttökuna á Akranesi höfum
við fundið fyrir því að vaxandi fjöldi
fólks skiptir við okkur. Starfsmenn
okkar segjast hafa upplifað að allt í
einu sé fólk að átta sig á að við séum
þarna,“ bætir hann við.
„Ég hef oft sagt að ef það er
hægt að þvo hlutinn þá getum við
gert það hvort sem það eru mottur,
sængur, dúkar eða sængurver. Hvað
er betra en að sofa með nýþvegin
og -straujuð sængurföt um jólin?“
segir Ari léttur í bragði.
kgk
Fönn minnir á sig
Efnalaugin Fönn er með móttöku að Skagabraut 17 á Akranesi.