Skessuhorn - 01.06.2016, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 25
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Michele Vieira Dos Santos er ung
stúlka frá Brasilíu. Hún flutti til Ís-
lands 14 ára og unir hag sínum vel
í Ólafsvík. Áður bjó hún í stórborg-
inni Rio de Janeiro, þar sem 17
milljónir manna búa. „Ég gekk í
skóla þar, átti góða vini og mér leið
vel þar. Alltaf sól og gott veður og
ég var mikið á ströndinni með vin-
um mínum. Mamma kynntist Ís-
lendingi sem var að vinna í Brasilíu
og þegar vinnu hans lauk þar fórum
við mamma með honum til Íslands.
Við komum hingað á dimmasta og
kaldasta tíma ársins, um miðjan des-
ember. Þegar við lentum í Keflavík
sá ég snjó í fyrsta sinn á ævinni og
það var kalt en mér líkaði strax vel
við kuldann og snjóinn,“ segir Mic-
hele. Hún segir móður sína hafa
farið að vinna við beitningu fljót-
lega eftir að mæðgurnar settust að í
Ólafsvík. „Ég fór fljótlega að hjálpa
henni, tók fáa bala til að byrja með
á meðan ég var að læra handbrögð-
in. Mér líkar þessi vinna mjög vel
og ég get varla sagt að ég hafi unnið
annað starf. Ég ræð mínum vinnu-
tíma sjálf, sem er mjög þægilegt,“
segir hún. Nú er Michele að beita á
línubátnum Álfi SH en alls eru þrír
sem sjá um beitninguna fyrir bátinn
í föstu starfi.
Auðveldara
að læra pólsku
Aðspurð um fjölskylduhagi seg-
ir Michel að hún sé í sambúð með
Prezemysxaw Uchanski. Hann er
frá Póllandi og vinnur einnig við
að beita. „Við keyptum nýverið
íbúð í Ólafsvík og erum virkilega
ánægð hér.“ Fréttaritari Skessu-
horns veitir því athygli að unga
parið talar pólsku sín á milli. Mic-
hele sagði Prezemysxaw hafa lært
portúgölsku og þau hafi fyrst talað
saman á því tungumáli. „Svo lang-
aði mig að læra að tala pólsku og
mér tókst það fljótlega.“ Preze-
mysxaw greip þarna inn í samtal-
ið og sagði hann Michele tala mjög
góða pólsku. Michele segir að það
taki lengri tíma að læra íslensku
en pólsku. „En eftir að ég fór ein-
göngu að vinna með Íslendingum
þá gengur mér betur að læra mál-
ið enda eru samstarfsmenn mínir
mjög duglegir að hjálpa mér og eru
fljótir að leiðrétta mig,“ segir Mic-
hele að lokum. af
Beitningarkona frá Brasilíu
Michele að beita.
Michele með unnusta sínum Prezemysxaw Uchanski og systur hans Adrianna, sem
einnig vinnur við beitningu. Michele er fyrir miðju.