Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Page 6

Skessuhorn - 23.11.2016, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 20166 Vonskuveður á fimmtudaginn VESTURLAND: Slæmt veður gerði síðastliðinn fimmtudag og fóru sam- göngur úr lagi og rafmagn af hluta Snæfellsness. Mjög hvasst var um tíma víða um vestan- og norðanvert landið, hviður m.a. nálægt 40 m/sek á sunnanverðu Snæfellsnesi. Snæfellsnes- vegi var lokað um tíma um morguninn milli Haffjarð- arár og Vegamóta og varð að beina umferð um Heydal og Skógarströnd. Ástæðan var sú að staurar brotnuðu í flutningslínu rafmagns um morguninn eftir að eldingu laust niður. Á meðfylgjandi mynd má sjá þegar krana- bíll hélt raflínunni uppi í Eyja- og Miklaholtshreppi til að bílar kæmust undir og haldið áfram för. Viðgerð lauk síðdegis á fimmtudag- inn. Brattabrekka var ófær og þar geisaði vonskuveð- ur í morgunsárið. Þæfings- færð var á Holtavörðuheiði og mjög hvasst í Staðar- sveit. Lægðin gekk inn á landið aðfararnótt fimmtu- dags. Björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði var kölluð út um klukkan tvö um nóttina til að aðstoða fólk sem hafði fest fólksbíla sína í snjó á Bröttubrekku og stærri bílar komust ekki fram hjá þeim föstu og urðu því einnig tepptir. Björg- unaraðgerðum lauk um fimmleitið um morguninn og var þá búið að koma öll- um bílum niður af Bröttu- brekkunni og fólk gat hald- ið för sinni áfram. -mm/ Ljósm. Sigurjón Hilmarsson. Vetrarfærðin vegfarendum erfið VESTURLAND: Samtals urðu 13 minniháttar tilvik í vetrarfærðinni í liðinni viku sem ekki eru bók- færð sem umferðaróhöpp. Er þar um að ræða vand- ræði er bílar festast í snjó, renna út í kant eða út af án þess að velta eða skemm- ast. Í síðustu viku voru er- lendir ferðamenn í mikl- um meirihluta í þessum hópi enda sumir að reyna sig við Arnarvatnsheiði, Uxahryggi, Kaldadal og fleiri fjallvegi á litlum bíl- um. Vegi sem heimamenn og staðkunnugir láta vera að reyna á þessum árs- tíma. Lögreglan kallaði út dráttarbíla í flest þess- ara verkefna þar sem fólk var ekki talið vera í hættu. Tilkynnt var um erlenda ferðamenn sem hefðu fest jeppa úti í móa sunnan við Hafnarskóg við Hafnar- fjall. Í ljós kom að fólk- ið hafði ætlað að stytta sér leið fram hjá lokuðum vegi í sumarhúsahverfi en pikk- fest jeppann í mýrinni eftir um 500 metra akstur utan vegar. Jeppinn var spilaður upp og fólkið flutt á lög- reglustöðina til skýrslu- töku. Var ökumaðurinn kærður fyrir utanvega- akstur og greiddi hann 50 þúsund krónur í sekt fyrir verknaðinn. -kgk Víðtæk leit að rjúpnaskyttu A U S T U R L A N D : Rjúpnaveiðimaður, sem leitað var að á Austurlandi síðan á föstudag, fannst á sunnudagsmorgun klukk- an 10, heill á húfi. Björg- unarsveitamenn á vélsleð- um fundu manninn þar sem hann var á gangi með hundi sínum á austanverð- um Ketilsstaðahálsi. Mað- urinn var vel á sig kominn þegar hann fannst mið- að við aðstæður, en tals- vert kaldur. Björgunar- sveitamenn hlúðu að hon- um á staðnum þar til þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvang og flutti mann- inn til byggða. Leitin að manninum var gríðarlega fjölmenn og komu um 440 manns að leit og björgun frá því á föstudagskvöld og til sunnudagsmorguns. Meðal leitarfólks voru fé- lagar úr björgunarsveitum af Vesturlandi. -mm Grunnskólakennarar á Akranesi héldu í gær sameiginlegan fund á Jaðarsbökkum. Umræðuefnið var kjaramál og staða viðræðna Félags grunnskólakennara við sveitarfé- lögin. Fundurinn samþykkti álykt- un, sem send verður Kennarasam- bandi Íslands, stjórn FG og bæjar- yfirvöldum á Akranesi. Hún hljóð- ar svo: „Kennarar í Brekkubæjarskóla og Grundaskóla lögðu niður störf í dag klukkan 13:30 og fjölmenntu á samstöðufund til að ræða graf- alvarlega stöðu í kjarabaráttu grunnskólakennara. Við styðj- um samninganefnd FG í hennar störfum við að ná fram hærri laun- um. Við skorum á bæjaryfirvöld á Akranesi að beita sér fyrir því að laun grunnskólakennara verði hækkuð verulega. Við erum kenn- arar og erum stolt af því. Við erum kennarar í kjarabaráttu. Grunn- skólakennarar á Akranesi,“ segir í ályktun sem samþykkt var í gær, 22. nóvember. mm/ Ljósm. gg Kennarar á Akranesi héldu samstöðufund Grunnskólakennarar í Borgar- byggð afhentu sveitarstjórn á föstu- daginn yfirlýsingu vegna kjaradeilu kennara og viðsemjenda þeirra: „Nú er svo komið að kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga hefur verið vísað til ríkissáttasemj- ara og eru viðræður hafnar. Ef mið er tekið af viðbrögðum og afstöðu sveit- arfélaga í launaviðræðum þann tíma sem samningar hafa verið lausir ríkir ekki mikil bjartsýni um ásættanlegan árangur af þessum samningaviðræð- um. Kennurum hefur sýnst að samn- inganefnd sveitarfélaga hafi í raun ekkert umboð til alvöru, raunhæfra viðræðna sem gætu skilað raunveru- legum árangri. Því miður virðist vilji sveitarfélaga frekar snúast að því að draga kjaraviðræður á langinn og reyna að svæfa baráttuanda kennara- stéttarinnar með fálæti,“ segir í yfir- lýsingunni. Þá segir að innan raða kennara hafi verið rætt um verulegar launa- leiðréttingar sem mynda færa laun grunnskólakennara til samræmis við háskólamenntaða sérfræðinga og aðrar viðmiðunarstéttir. „Efasemd- arröddum um að þær launakröfur séu raunhæfar er ekki hægt að svara öðruvísi en svo að þær séu mun raun- hæfari en sú afstaða launagreiðenda okkar að skólastarf geti haldið áfram án þess að gengið verði að slíkum kröfum. Það álit hefur verið viðrað af ýmsum félögum okkar að ef sveitar- stjórnir geti ekki mætt svona hófleg- um launakröfum, auk þeirra útgjalda sem fylgja því að gera starfsumhverfi kennara mannsæmandi að öðru leyti, ættu þær annaðhvort að krefjast þess að í fjárlögum ríkisins verði eyrna- merkt útgjöld tengd endurmati á yf- irfærslu grunnskólanna til sveitar- félaga, þ.e. veruleg árleg greiðsla til reksturs skólanna, eða hreinlega að sveitarfélögin skili rekstri grunnskól- anna að öllu leyti aftur til ríkisins. Þetta er raunveruleiki sem sveitarfé- lögin geta ekki lengur skorast und- an og kallar á alvöru viðræður þeirra við ríkisstjórnina um óumflýjanlegar lausnir.“ Loks segir í ályktun grunnskóla- kennara að sveitarfélögin verða hreinlega að koma það heiðarlega fram að þau viðurkenni vanmátt sinn til að sjá um rekstur grunnskólanna. „Því að það er alveg á hreinu að ef ekki verður gerð umtalsverð bragar- bót á vinnuumhverfi og launakjörum grunnskólakennara þá verður grunn- skólakerfið rjúkandi rúst innan fárra ára.“ mm „Skólakerfið verður rjúkandi rúst ef ekki verður komið til móts við kennara“ Kennarar grunnskólanna í Borgarbyggð fjölmenntu og afhentu Gunnlaugi A. Júlíussyni sveitarstjóra bréf með ályktun sinni og undirskriftalista síðastliðinn föstudag. Ljósm. borgarbyggd.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.