Skessuhorn - 23.11.2016, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 20168
Sakfelldur
fyrir líkamsárás
VESTURLAND: Maður var
í Héraðsdómi Vesturlands í
byrjun mánaðarins sakfelld-
ur fyrir líkamsárás. Honum
var gefið að sök að hafa, að-
faranótt 27. desember 2015
við veitingahúsið Gamla
Kaupfélagið á Akranesi, sleg-
ið mann hnefahöggi í andlit-
ið með þeim afleiðingum að
hann féll í götuna. Hlaut fórn-
arlambið við það höfuðhögg,
varð rænulítill stutta stund og
bólgnaði á vinstri kinn, efri
vör og á enni. Niðurstaða hér-
aðsdóms var sú að ákærða var
gert að sæta fangelsi í einn
mánuð, en rétt þótti að fresta
fullnustu refsingar og falli hún
niður að tveimur árum liðn-
um gegn því að ákærði haldi
skilorð. Ákærða var einnig
gert að greiða málsvarnarlaun
og ferðakostnað verjanda síns
sem og annan sakarkostnað.
-kgk
Logi og Heiðar
setja ný viðmið
BORGARFJ: Á mánudags-
kvöldið var fjórða kvöld að-
altvímennings Briddsfélags
Borgarfjarðar en alls er spil-
að á fimm kvöldum. Ungst-
irnin Logi og Heiðar mættu
afar einbeittir til leiks og byrj-
uðu á því að knésetja þá sem
mótið leiddu. Áfram hélt djöf-
ulgangurinn í peyjunum allt
kvöldið og þegar pakkað var
saman kom i ljós að þeir voru
komnir á toppinn enda með
kvöldskor upp á 71,5%. Geri
aðrir betur! Jón og Baldur eru
í miklu stuði þessa dagana og
skoruðu næstmest eða 67,1%.
Stefán og Sigurður Már urðu
þriðju með 59,2% og Gylfi
og Kristján virðast vera bún-
ir að fínstilla kerfið og enduðu
með fjórða besta kvöldskorið.
Þegar eitt kvöld er eftir leiða
Heiðar og Logi með 651,4
stig en Jón og Baldur eru rétt
á eftir þeim með 649 stig. Því
má búast við mikilli spennu
næstkomandi mánudag. Fyrir
spilamennsku næsta mánudag,
eða klukkan 19:40, verður að-
alfundur félagsins haldinn.
-ij
Atvinnu-
leitendur fá
desemberuppbót
LANDIÐ: Félagsmála-
ráðherra hefur sett reglu-
gerð um greiðslu desemb-
eruppbótar til atvinnuleit-
enda sem tryggðir eru inn-
an atvinnuleysistrygginga-
kerfisins. Óskert desember-
uppbót er 60.616 kr. Nýmæli
er að atvinnuleitendur með
börn á framfæri fá jafnframt
sérstaka uppbót sem nemur
4% af óskertri desemberupp-
bót, eða rúmum 2.400 kr. fyr-
ir hvert barn yngra en 18 ára.
Greiðsla desemberuppbótar
til þeirra sem eiga ekki fullan
bótarétt reiknast í hlutfalli við
rétt þeirra til atvinnuleysis-
bóta á árinu og fjölda mánuða
sem viðkomandi hefur fengið
greiddar atvinnuleysisbætur.
Gert er ráð fyrir að desember-
uppbót verði greidd út eigi
síðar en 18. desember.
-mm
Fáklæddir á
fótgöngu
AKRANES: Tilkynnt var
í tvígang um nakta eða fá-
klædda menn á gangi utan-
dyra á Akranesi í liðinni viku.
Annar þeirra fannst á röltinu
og var honum komið til að-
stoðar en hinn er ófundinn. Sá
var að vísu bara ber að ofan.
„Höfðu menn á orði að þarna
væru hraustmenni á ferð þar
sem hitastigið var með lægra
móti og nokkur næðingur að
norðan,“ segir í dagbók lög-
reglunnar.
-kgk
Þörungaverk-
smiðjan vill
kaupa ljósmyndir
REYKHÓLAHR: Forsvars-
menn Þörungaverksmiðj-
unnar á Reykhólum hafa í
hyggju að endurgera heima-
síðu fyrirtækisins. Af því til-
efni er óskað eftir góðum ljós-
myndum (1-2 MB að stærð)
frá nágrenni verksmiðjunn-
ar og þeirri starfsemi sem þar
fer fram. Sérstaklega hafa for-
svarsmenn fyrirtækisins hug
á góðum myndum af fjör-
unni eða eyjunum. Þetta kem-
ur fram á Reykhólavefnum.
Þar er þess getið að fyrirtækið
hafi í hyggju að kaupa 15 góð-
ar myndir af mannlífi og nátt-
úru. Ljósmyndurum er bent
á að hafa samband við Finn
Árnason framkvæmdastjóra
eða Maríu Maack.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
12. - 18. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 1 bátur.
Heildarlöndun: 3.238 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 3.238
kg í einni löndun.
Arnarstapi: Engar landanir
voru á Arnarstapa.
Grundarfjörður 2 bátar.
Heildarlöndun: 50.016 kg.
Mestur afli: Helgi SH: 25.493
kg í einni löndun.
Ólafsvík 6 bátar.
Heildarlöndun: 27.397 kg.
Mestur afli: Brynja SH:
11.428 kg í tveimur löndun-
um.
Rif 3 bátar.
Heildarlöndun: 20.789 kg.
Mestur afli: Hamar SH:
15.253 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 4 bátar.
Heildarlöndun: 21.005 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 11.158
kg í fimm löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Helgi SH - GRU:
25.493 kg. 17. nóvember.
2. Hringur SH - GRU:
24.523 kg. 17. nóvember.
3. Hamar SH - RIF:
15.253 kg. 18. nóvember.
4. Brynja SH - ÓLA:
6.009 kg. 16. nóvember.
5. Hannes Andrésson - STY:
5.486 kg. 16. nóvember.
Eigendur Loftorku í Borgarnesi
ehf. hafa samþykkt kauptilboð í allt
hlutafé félagsins. Kaupandi er fé-
lag sem Pétur Guðmundsson fer
fyrir, en hann er alla jafnan kennd-
ur við byggingafélagið Eykt. Selj-
endur fyrirtækisins eru feðgarn-
ir Óli Jón Gunnarsson og Bergþór
Ólason framkvæmdastjóri, en þeir
hafa átt og rekið Loftorku Borg-
arnesi frá því vorið 2012. Bergþór
staðfesti þetta í samtali við Skessu-
horn síðastliðinn fimmtudag. Að-
spurður segir hann þá feðga ekki
hafa verið í söluhugleiðingum, en
þegar kaupaðili hafi nálgaðist þá af
þeirri alvöru sem gert var í þessu
tilfelli, hafi viðræður verið teknar
upp. Þeir Óli Jón og Bergþór sáu
jafnframt að kaupendurnir hefðu
burði og vilja til að styðja áfram við
uppbyggingu félagins í Borgarnesi.
„Það var í raun ekki forsvaran-
legt annað en að setjast niður með
bjóðendum og fara yfir hvort flötur
væri á að menn næðu saman,“ segir
Bergþór. „Það hefur mikið breyst á
undanförnum misserum í rekstar-
umhverfi Loftorku í Borgar-
nesi. Afkoman hefur verið ágæt af
rekstrinum og aðstæður á markaði
allar aðrar en fyrir nokkrum árum
síðan. Útlitið er sömuleiðis mjög
gott með verkefni næstu misserin,“
segir hann.
Bergþór segir jafnframt að sam-
komulagið sé enn bundið ýms-
um fyrirvörum, meðal annars af-
stöðu Samkeppniseftirlitsins. „En
ef þetta gengur eftir þá vitum við
líka að nýir eigendur þekkja fé-
lagið frá fyrri tíð. Við feðgar erum
sannfærðir um að viðgangur og
vöxtur félagsins verður góður á
næstu árum. Félagið jók veltu um
hartnær 60% árið 2015 og veru-
leg veltuaukning verður í ár og
áfram á næstu misserum ef áætl-
anir ganga eftir og staða efnahags-
mála helst viðunandi. Við reikn-
um ekki með miklum breytingum
á rekstri félagsins, en nýjum eig-
endum fylgja örugglega einhverj-
ar nýjar áherslur eins og geng-
ur,“ segir Bergþór. Aðspurður um
kaupverð segir hann það vera trún-
aðarmál. mm
Loftorka í Borgarnesi seld nýjum eigendum
Feðgarnir Bergþór Ólason og Óli Jón Gunnarsson hafa rekið fyrirtækið síðan í maí
2012.
Loftorka í Borgarnesi hvílir á gömlum merg en fyrirtækið var upphaflega stofnað í
apríl 1962 af þeim Konráð Andréssyni og Sigurði Sigurðssyni.
Á þriðjudaginn í liðinni viku komu
þrír einstaklingar á vegum Hug-
arafls ásamt starfsmanni félagsins
í heimsókn í FSN í Grundarfirði.
Tilgangur heimsóknarinnar var að
fræða nemendur um geðræn vanda-
mál. Þessir þrír einstaklingar miðl-
uðu af reynslu sinni í baráttunni við
geðsjúkdóma ásamt því að svara
nokkrum spurningum sem brunnu
á nemendum. Óhætt er að segja að
nemendur Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga hafi hlustað af mikilli athygli á
erindi krakkanna enda einlægar og
athyglisverðar frásagnir.
tfk
Geðfræðsla í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Ólsarinn Þorgrímur Þráinsson, rit-
höfundur, hlaut í síðustu viku við-
urkenningu Barnaheilla – Save the
Children á Íslandi árið 2016. Í til-
kynningu frá félagasamtökunum
segir að Þorgrímur sé landsþekkt-
ur rithöfundur og hafi um langt
skeið verið börnum góð fyrirmynd
með jákvæðri afstöðu sinni til lífs-
ins, heilbrigðu líferni og drifkrafti.
Bækur hans, sem nú telja 23, þekkja
velflestir íslenskir krakkar. Þær inni-
halda jákvæðan boðskap og and-
lega nærandi skilaboð og eru þannig
hvatning til yndislestrar.
Auk ritstarfa hefur Þorgrímur
unnið ötullega að lýðheilsumálum
og forvörnum og er góð fyrirmynd.
Hann hefur meðal annars heimsótt
skóla um allt land til að hvetja börn
til að lifa heilbrigðu og skemmti-
legu lífi. Þá hefur hann gegnt ýms-
um hlutverkum í forvarnarmálum,
meðal annars sem framkvæmda-
stjóri Tóbaksvarnarnefndar og nú
síðast með þátttöku við gerð nýrr-
ar lýðheilsustefnu og aðgerðaráætl-
unar á vegum ráðherranefndar um
lýðheilsu. mm
Þorgrímur hlaut viðurkenningu Barnaheilla
Afhending viðurkenningarinnar fór fram á veitingastaðnum Nauthól og var for-
seti Íslands meðal gesta. Hér má sjá Þorgrím, Guðna Th Jóhannesson forseta og
fulltrúa Barnaheilla.