Skessuhorn - 23.11.2016, Qupperneq 43
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 43
- Reyktur lax, verði þér að góðu !
Snorrastofa í Reykholti hefur um
árabil nýtt sér og tekið þátt í sam-
starfi um Norrænu bókasafnavik-
una, sem haldin er ár hvert um
miðjan nóvember þegar skamm-
degið umvefur norðurhvel jarð-
ar. Þá hvetja bókasöfn um hinn
norræna heim til samverustunda
í ljósaskiptunum þar sem lesið er
upp úr norrænum bókmenntum
og hvers kyns viðburðir blómstra
þar sem fólk kemur saman og nýt-
ur lista og menningar í norræn-
um anda. Oftar en ekki ber Dag
íslenskrar tungu upp á einhvern
vikudag bókasafnavikunnar og
hvetur það til enn frekari athafna.
Vikuna nýtti Snorrastofa til að
bjóða samborgurunum til fjöl-
breyttrar dagskrár, sem höfðaði
til allra aldurshópa. Þegar litið er
yfir vikuna má með sanni segja að
vel hafi til tekist og að samfélagið
sé ríkara að henni lokinni. Fyrst
er að telja ljúft og gefandi sam-
starf við leikskólann á Hnoðrabóli
og Grunnskóla Borgarfjarðar þeg-
ar nemendur þeirra glöddu stofn-
unina með heimsókn á fyrsta degi
vikunnar, mánudaginn 14. nóvem-
ber. Í bókhlöðunni las Steinunn
Garðarsdóttir Sumarið hans Her-
manns eftir Stian Hole. Eftir lest-
urinn bauð Hönnubúð hressingu
og börnin áttu góða stund á safn-
inu.
Bjarni Guðmundsson á Hvann-
eyri hélt fyrirlestur þriðjudags-
kvöldið 15. nóvember um Mjólkur-
skólann á Hvanneyri og rjómabú-
in. Skólann taldi hann uppsprettu
þekkingar kvenna á störfum við
mjólkurvinnslu í upphafi 20. ald-
ar, og að sú þekking hafi haft þýð-
ingarmikil áhrif á búhætti í sveit-
um landsins. Ekki leikur vafi á að
Bjarni telst til fremstu merkisbera
íslenskrar tungu og því fór vel á
að fyrirlestur hans væri eins konar
upptaktur að degi hennar.
Þá rann upp Dagur íslenskr-
ar tungu en þar var Iðunn Steins-
dóttir rithöfundur í aðalhlutverki.
Hún heimsótti Grunnskóla Borg-
arfjarðar, allar deildir, las fyr-
ir nemendur og ræddi við þá. Ið-
unn hefur um árabil meðal ann-
ars skrifað bækur um margs kon-
ar málefni, sem ætlaðar eru börn-
um í skóla. Má þar nefna bækur
um norræna goðafræði. Nemend-
ur tóku henni fagnandi og skóla-
dagurinn var farsæll ræktunardag-
ur íslenskrar tungu. Að skólaheim-
sókn lokinni þáði Iðunn og nokkr-
ir nemendur grunnskólans heim-
boð aldraðra í Brún þar sem börn-
in lásu ljóð og rithöfundurinn las
úr eigin verki, Hrólfs sögu. Þetta
varð úrvals samverustund ungra og
aldinna með vel þáðum veitingum
og spjalli.
Miðvikudagskvöldið 17. nóvem-
ber hélt Kvæðamannafélagið
Snorri í Reykholti opinn fund og
æfingu í bókhlöðunni. Þar voru
bæði sungnar og fluttar vísur af
ýmsu tagi. Fundirnir eru þriðja
hvern miðvikudag í Snorrastofu
yfir vetraurinn og eru ánægjuleg-
ur sproti í menningarstarfi innan
Snorrastofu.
Prjóna-bóka-kaffið á fimmtu-
dagskvöldinu var lokaviðburð-
ur vikunnar en þar sagði Iðunn
Steinsdóttir frá langafa sínum og
las úr bók sinni um hann, Hrólfs
sögu. Páll S. Brynjarsson sagði
fréttir af starfi Norræna félags-
ins í Borgarfirði. Í Prjóna-bóka-
kaffi bókhlöðunnar, sem er ann-
an hvern fimmtudag yfir veturinn,
skapast góð og eftirsótt baðstofus-
temning, sem hefur notið vinsælda
og kvöldið að þessu sinni var hið
ánægjulegasta.
-fréttatilkynning
Norrænar bókmenntir og íslensk tunga lýsa upp skammdegið
Iðunn Steinsdóttir ásamt ungum ljóðelskendum. F.v.: Kristján Bjarni, Guðmundur
Bragi, Þórunn Tinna, Kristrún Anja, Iðunn og Elísabet Ýr.
Svipmynd frá bókakaffi á fimmtudagskvöldinu.