Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201644
að eyða peningum í loforðabækling.
Ég hafði það líka á tilfinningunni að
fólk tryði ekki að mér væri alvara og
ekki hafði ég tíma né peninga til þess
að hringja í þúsund manns og biðja
þá um að kjósa mig,“ segir Rúnar.
„Í staðinn fór ég þá leið að sýna að
ég væri tilbúinn að leggja mikið á mig
til þess að verða í einu af efstu sæt-
unum. Til að sýna fram á það ákvað
ég að burðast með skrifborðsstól á
hæsta tind sem ég þekkti, Hafnar-
fjall. Og vegna þess hve umhverfis-
vænn VG er þá að sjálfsögðu drösl-
aðist ég með hann niður aftur,“ segir
Rúnar sem naut aðstoðar Kára bróð-
ur síns í göngunni sem tók hana upp
á filmu. Niðurstaða forvalsins var sú
að Rúnar hafnaði í 4. sæti sem verður
að teljast góður árangur fyrir tvítug-
an nýliða í stjórnmálum.
Stemning í kosninga-
baráttunni
Rúnar segir kosningabaráttuna hafa
verið líflega og skemmtilega. „Kjör-
dæmið er víðfeðmt og ég gat ekki
gert mér í hugarlund hvað brynni
á hverjum og einum kjósanda. Þess
vegna ákvað ég að fara útum allt með
leiðtogum listans, jafnvel þó ég væri
ekki beint í baráttusæti. Síðan var
mér bara vel tekið þrátt fyrir að vera
bara einhver tittur úr Borgarfirði,“
bætir hann við.
Rúnar segir góða stemningu hafi
einkennt kosningabaráttu VG en
flokkurinn bætti við sig miklu fylgi
og var hársbreidd frá því að bæta við
sig manni. „Eftirminnilegasti hluti
kosningabaráttunnar var að fara um
Vestfirði. Heiðurshjónin Hilmar og
Lilja Rafney buðu mér heim til sín og
sýndu mér um allan fjörðinn og það
er eitt af mörgum atriðum sem gefa
mér mjög heilbrigða mynd af póli-
tík. Skoðanabræðurnir og ungstirnin
Ingi Hans og Lárus Ástmar urðu líka
miklir vinir mínir og framsögur Inga
og hreinskilnin á fundum eru akkúrat
ástæðan fyrir því að mér finnst póli-
tík skemmtileg.“
Gestirnir halda aftur af
Ísraelsmönnum
Strax eftir kosningarnar vatt Rúnar
kvæði sínu í kross og hélt til Palest-
ínu sem hann hefur haft á döfinni um
langa hríð. „Það má kannski segja að
áhuginn hafi kviknað þegar að Ásta
Heiðrún frænka mín var sjálfboða-
liði í Ghana í Afríku fyrir mörg-
um árum. Þá fannst mér ég þurfa að
skoða þann hluta heimsins sem nýtur
engan veginn þeirra forréttinda sem
við þekkjum á Íslandi. Það var mér
óskiljanlegt þá og er enn hvers vegna
illa er komið fyrir svona stórum hluta
mannkyns og oft af völdum okkar
sem búum á Vesturlöndum.“
Rúnar hugðist halda til Afríku og
gerast sjálfboðaliði í hjálparstarfi
eftir stúdentspróf en síðar komst á
dagskrá að fara frekar til hinnar um-
setnu Palestínu. Það var ekki síst að
þakka kynnum sínum af hugsjóna-
fólki innan félagsins Ísland-Palest-
ína. „Um leið og síðustu kosninga-
tölur komu í hús þá dreif ég mig að
kaupa miða. Þar hef ég starfað á veg-
um ISM (International Solidarity
Movement) sem ég komst í sam-
band við í gegnum Ísland-Palest-
ína. Starfið hérna úti er fjölbreytt en
markmið þess er að styðja við bak-
ið á Palestínumönnum gegn yfir-
gangi Ísraelsmanna. Markmið ísra-
elska hersins er að taka yfir Palest-
ínu og þurrka þjóðina út en það vilja
þeir helst gera fyrir luktum dyrum.
Því er nærvera erlendra gesta mik-
ilvæg, sérstaklega með myndavél-
ar að vopni enda eru þeir feimnir að
gera okkur mein vegna stöðu okk-
ar,“ segir Rúnar.
Hjálpar börnum og
bændum
Sjálfboðaliðarnir hjá ISM koma
að ýmsum verkefnum, m.a. að að-
stoða palestínska bændur. „Við höf-
um verið að hjálpa bændum að tína
ólífur en með nærveru okkar þá fæl-
um við frá landtöku- og hermenn úr
hópi Ísraela sem annars eru ófeimn-
ir að gera þeim mein. Þeir eiga til
að kveikja jafnvel í trjánum þeirra,“
segir Rúnar.
„Við fylgjum einnig börnum í
skólann sem þurfa að fara í gegn-
um eftirlitsstöðvar Ísraelsmanna
(check points) á leið sinni í skól-
ann. Þau eiga það á hættu á hverj-
um degi að vera handtekin eða verða
fyrir barðinu á táragasi. Á föstudög-
um, sem eru frídagar hjá Palest-
ínumönnum, þá tökum við þátt í
mótmælum gegn ástandinu ásamt
heimafólki. Á fyrstu mótmælunum
sem ég mætti á voru tveir handtekn-
ir en við náðum að semja um að fá
þeim sleppt,“ segir Rúnar sem seg-
ir ótrúlegt að upplifa þær aðstæður
sem Palestínumenn búa við.
Magnað viðhorf þrátt
fyrir harðræði
„Hingað til hef ég verið heppinn í
þessum átökum. Ég vaknaði þó við
sprengju frá ísraelska hernum einn
morguninn. Þeir „vöruðu“ íbúa við
eins og ISIS væri að verki, til að
hræða þá. Sjálfur verð ég oft fyr-
ir áreiti frá hermönnum sem spyrja
mig spjörunum úr af hverju ég er að
dvelja hérna. Ég þarf því alltaf að hafa
vegabréfið á mér til að komast leið-
ar minnar í gegnum eftirlitið,“ segir
hann. „En ég er ekki í nærri því sömu
hættu og þeir sem hér búa og ég dvel
aðeins hér í rúman mánuð. Eftir það
þá fer ég heim og fer í Geirabakarí
og spinning til Gunnu Dan og hetju-
skapurinn er því lítill.“
Rúnar telur mikilvægt að halda
umræðunni um stöðu Palestínu-
manna áberandi og lifandi. „Palest-
ínubúar eru frábærir og með glatt og
gestrisið viðmót þrátt fyrir að búa í
reynd í stærsta fangelsi í heimi. Ég
verð að segja að viðhorf þeirra til
lífsins er magnað þrátt fyrir að þess-
ar aðstæður. Þetta er fólk sem býr við
það að geta verið fangelsað eða jafn-
vel drepið fyrir engar sakir líkt og
hendi væri veifað. Saga þeirra þarf
að heyrast og þetta fólk eru hetjurn-
ar - stelpurnar og strákarnir okkar.
Við megum ekki gleyma þeim sem
minna mega sín þó vandamálin séu
okkur ekki bersýnileg í póstnúm-
erinu okkar heima á Íslandi.“
Fer allt eftir veðri
Rúnar er fljótlega á förum frá Pal-
estínu og er stefnan sett aftur heim
til Íslands. „Ég ætla þó að byrja á því
að fara til Egyptalands í nokkra daga
áður en ég kem heim. Eftir það er allt
frekar laust í reipunum. Ég er líkleg-
ast búinn að landa spennandi tíma-
bundnu starfi en ég þarf að finna
eitthvað annað að því loknu og síðan
stefni ég á háskólanám næsta haust.
Fer allt eftir veðri.“ hlh
Rúnar Gíslason í Borgarnesi hefur
verið iðinn á félags- og stjórnmála-
sviðinu á undanförnum misserum.
Rúnar ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur, þrátt fyrir ungan ald-
ur, og nýverið í aðdraganda alþing-
iskosninga sóttist hann eftir sjálfu
oddvitasætinu á lista Vinstri grænna í
Norðvesturkjördæmi. Forvalsbarátt-
an hans vakti nokkra athygli, ekki síst
það uppátæki þegar hann gekk með
skrifborðsstól upp og niður Hafnar-
fjall, sýndi þar með táknrænum hætti
að hann stefndi á efsta sætið. Skessu-
horn setti sig í samband við þennan
uppátækjasama og líflega Borgnesing
sem dvalið hefur í Palestínu frá lok-
um alþingiskosninga við sjálfboða-
störf.
Með ríka réttlætiskennd
Rúnar segir að framboð sitt til met-
orða í VG hafi haft skamman aðdrag-
anda. „Ég hef alltaf fylgst með póli-
tík en fyrst af alvöru þegar ég smit-
aðist af góðum vini mínum Bjarka
Grönfeldt. Fljótlega komst ég að því
að Vinstri grænir áttu best við mig
þó ég hefði enga tengingu við þann
flokk. Bjarki var örugglega eini með-
limurinn sem ég þekkti áður en ég
gekk í flokkinn. Ég hef alltaf verið
áhugasamur um umhverfi mitt og
haft sterkar skoðanir á hlutunum. Ég
er einnig með ríka réttlætiskennd og
því átti VG vel við mig.“
Eftir að hafa mætt á kjördæmis-
ráðsfund á Hvanneyri blossaði upp
áhugi að taka þátt af krafti í alþing-
iskosningum. Í fyrstu hafði Rún-
ar áhuga á að taka sæti neðarlega á
væntanlegum lista VG. „Eftir fund-
inn þá velti ég því fyrir mér af hverju
ég hefði áhuga á sæti sem gerði lítið
annað en að prýða nafnið mitt. Fyrst
ég var kominn í þær hugleiðingar þá
áttaði ég mig á því að ég var tilbúinn
að leggja mikið á mig. Þá ákvað ég
að gera atlögu að efsta sætinu,“ seg-
ir Rúnar og beið hans ærið verkefni
að ná til félaga í nýja flokknum og
kynna sig.
Vildi sýna fordæmi
Rúnar þurfti að vera frumlegur til
að koma sér á framfæri enda hafði
hann takmarkaða reynslu og fjárráð
til að fara um kjördæmið og kynna
sig. „Forvalið var líka á óvenjuleg-
um tíma, fólk í heyskap eða sumar-
fríi og lítill áhugi á pólitísku starfi.
Ég vissi að mótframbjóðendurnir
voru þaulreyndir, margir og sterkir
og ég óþekktur. Þess vegna þurfti ég
að reyna að finna upp á leiðum til að
vekja athygli á framboði mínu án þess
Laugardaginn 3. desember er
stefnt að árlegum jólamarkaði í
hlöðunni í Nesi í Reykholtsdal.
Opið verður frá klukkan 13 til
17. Á boðstólnum verður m.a.
Erpsstaða-ís, nautakjöt, lamba-
kjöt beint frá býli, ilmkjarnaolí-
ur, náttúrulegar sápur, ýmis mat-
vara, smákökur og tertur, hand-
verk úr tré, kósýföt, jarðaberja-
sýróp, flottir límmiðar, sinnep,
mysudrykkur, gærur, leðurtösk-
ur og glerlampar. Ungmenna-
félag Reykdæla verður með til
sölu kaffi og vöfflur. Íslensk
jólatré verða auk þess til sölu.
Allir eru velkomnir og sem fyrr
er það Framfarafélag Borgfirð-
inga sem stendur fyrir markað-
inum. -fréttatilkynning
Jólamarkaður í Nesi
verður 3. desember
Upp á Hafnarfjall og til Palestínu
-rætt við eldhugann Rúnar Gíslason úr Borgarnesi
Rúnar Gíslason að störfum á ólífuakri
í Palestínu.
Rúnar ásamt
hressum palest-
ínskum krakkahópi
í borginni Hebron.
Palestínumenn búa við
stöðugt eftirlit. Hér er
bakpoki Rúnars skoðaður af
ísraelskum hermanni á einni
af mörgum eftirlitsstöðvum
(check points) ísraelska
hersins í Palestínu.
Andstæðurnar eru miklar fyrir botni Miðjarðarhafs.
Ísraelskir hermenn, gráir fyrir járnum, ræða við
palestínska konu.