Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 46

Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 46
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201646 „Ég er fæddur og uppalinn í Hólmin- um og komin af ágætis fólki. Mamma er Hólmari og pabbi fellur eflaust undir þann flokk líka í dag þó hann komi að norðan,” segir Hólmarinn Jón Sindri Emilsson, fjölmiðlafræð- ingur og matgæðingur með meiru í Stykkishólmi. Jón Sindri er 27 ára og býr í Hólminum ásamt unnustu sinni Heiðu Maríu Elfarsdóttur, sem einnig er þaðan, og tveimur börnum þeirra. Jón Sindri spilar á bassa og gítar í frístundum og hefur hugleitt að sameina fjölmiðlafræði og áhuga sinn á eldamennsku með því að ger- ast sjónvarpskokkur í anda Sigga Hall. Hafði áhuga á auglýsingagerð Jón Sindri lærði fjölmiðlafræði á Ak- ureyri sem er bær sem hann á sterkar rætur til. „Akureyri hefur alltaf verið mitt annað heimili, þar á ég ættingja og þar átti ég ömmu og afa. Fjöl- skylduferðirnar lágu því alltaf norð- ur á Akureyri þegar ég var lítill. Ég fór örsjaldan til Reykjavíkur og hef aldrei kunnað vel við mig þar.” Þegar Jón Sindri skráði sig í fjöl- miðlafræði hafði hann áhuga á aug- lýsingagerð og leit á fjölmiðlafræðina sem upphafspunkt þess að að læra það fag. „Eftir á að hyggja hefði kannski annað hentað betur, og þó. Þetta með auglýsingagerðina voru frek- ar getgátur en staðreyndir. Kannski hefði ég gaman af því en veit í sjálfu sér lítið um hvernig sú vinna gengur fyrir sig. En fjölmiðlar eru skemmti- legt fyrirbæri og náminu sé ég ekki eftir, það hefur oft komið sér vel og á eflaust eftir að halda því áfram,” seg- ir hann en geta má þess að Jón Sindri hefur í hjáverkum verið fréttaritari Skessuhorns í Stykkishólmi. „Námið fannst mér á heildina litið skemmtilegt og áhugavert. Auðvitað voru einhverjir áfangar sem ég hefði alveg mátt missa af og mér fannst koma fjölmiðlum lítið við. Ég hefði viljað meira af verklegum áföngum en verklegi hlutinn af náminu fannst mér bæði skemmtilegastur og gagn- legastur líka. Reynslan kennir manni mest.” Ferðamennirnir kenna ýmislegt „Fyrsta starf eftir að ég útskrifaðist sem fjölmiðlafræðingur var í eld- húsi, eðlilega,” svarar Jón Sindri í léttum tón þegar hann er spurður hvað hafi tekið við að námi loknu. „Þar kviknaði áhugi sem hefur lifað síðan. Ég hef nú grínast með það að læra kokkinn og gerast svo á end- anum sjónvarpskokkur og sameina þannig námin tvö. Siggi Hall, Jói Fel og Jón Sindri. Aldrei að vita!” „Í dag starfa ég á Hótel Egilsen og líkar vel,” heldur hann áfram. „Ferðamannabransinn er ekki bara skemmtilegur heldur líka fróðleg- ur. Samskipti við ferðamenn héðan og þaðan kenna manni ýmislegt, fólk getur frætt mann um sín lönd og sína menningu. Stundum hefur fólk meira að segja sagt mér hluti um Ísland sem ég hafði ekki hugmynd um.” Ágætt að framtíðin komi á óvart „Hólmurinn er fallegur bær og þar er gott að búa. Helsti kosturinn er fólkið. Við unnustan mín erum bæði Hólmarar og eigum hér fjöl- skyldu og vini. Auk þess finnst mér mjög gott að búa ekki í of stóru samfélagi. Því fylgir mikið frelsi og hér er gott að ala upp börn,” seg- ir Jón Sindri um kosti þess að búa í Stykkishólmi þar sem nóg er um að vera. Og ekki vantar áhugamál- in í Hólminum svarar hann spurð- ur um iðju utan vinnunnar. „Tvö áhugamál koma upp í hugann. Annars vegar er það tónlist, ég spila á bassa og gítar og geri mest af því bara heima við núna. Af og til hitti ég nú samt einhverja félaga mína og spila með þeim. Hitt áhugamálið er matur, bæði hef ég mikla ánægju af því að borða og elda.” Jón Sindri er sallarólegur í svörum þegar hann er spurður út í framtíð- arplön. „Í raun hef ég litla þörf fyrir að plana framtíðina. Framtíðin kem- ur og ágætt að hún komi bara á óvart, þetta kemur allt í ljós.” hlh „Við höfum verið á fullu síðan við opnuðum,“ segir Rúna Björg Sig- urðardóttir, einka- og styrktarþjálf- ari, sem opnaði líkamsræktarstöðina Metabolic Akranesi rétt eftir páska á þessu ári. „Við opnuðum eiginlega á versta tíma, að vori,“ segir Rúna, en aðsóknin hafi þó verið mjög góð. „Þetta hefur gengið vonum framar í allt sumar.“ Líkamsræktarstöðin er til húsa við Ægisbraut á Akranesi. Í hús- næðinu var áður rekin fiskverkun, en hefur nú algjörlega breytt um svip. Húsnæðið er lítið, eða um 130 fer- metrar, en Rúna segir að það sé alveg nógu stórt eins og er. Nú þegar eru um 120 manns í áskrift hjá Metabo- lic Akranesi. Sól í ræktinni og skynsamleg takmörk Húsnæðið við Ægisbraut býður upp á að hægt sé að opna bílskúrsdyr út. „Við vorum meira og minna með opið út í allt sumar. Ég held að fólk hafi ekki upplifað það þannig að það væri að koma inn á æfingu yfir há- sumarið. Sólin skein inn meirihlut- ann af deginum og við æfðum reglu- lega úti,“ segir Rúna. Hópurinn sem æfir hjá henni er mjög fjölbreyttur. „Við reynum að halda vel utan um fólk þegar það er að byrja,“ segir Rúna og viðurkenn- ir hlæjandi að hún og hinir þjálfar- arnir geti verið hálf pirrandi stund- um. „Við setjum fólki takmörk. Við vitum hvernig það er að byrja of geyst.“ Stundum gleymi byrjendur sér og hrífist með hópnum sem hefur æft lengur. Þjálfararnir reyni að hafa hemil á áköfum byrjendum til að þeir ofkeyri sig ekki. „Við reynum að gera fólki grein fyrir því að það er algjör óþarfi að taka þyngstu lóðin og klára fyrstur. Góð tækni og að líða vel eft- ir æfingar skiptir höfuðmáli.“ Mik- ilvægast sé að fólk taki æfingarnar á sínum hraða til að minnka hættu á meiðslum og ná sem bestum árangri. Nokkur ár í bígerð Kúnnahópurinn hjá Metabolic er að- allega frá Akranesi. „Hér er afslapp- að andrúmsloft, það þarf enginn að setja sig í neinar stellingar. Þú mæt- ir ekki einhverjum sem er að fara að gera eitthvað annað en þú hérna,“ segir Rúna. „Hérna er svo heimilisleg stemning, sem á kannski vel við fólk sem er að glíma við félagsfælni af ein- hverju tagi.“ Aðspurð segir Rúna að hún hafi fundið fyrir því að fólk komi frekar til hennar og líki betur í Me- tabolic Akranesi, en að fara í líkams- ræktarsalinn á Jaðarsbökkum. „Við reynum samt bara að hugsa vel um okkur og leiðum þá gagnrýni hjá okk- ur. Við reynum bara að gera vel hér.“ Rúna segir að hugmyndin að því að stofna einkarekna líkamsræktarstöð á Akranesi hafi gerjast með henni í nokkur ár, áður en hún og eigin- maður hennar létu til skarar skríða. Þau fóru þó varlega af stað og þegar þau duttu niður á húsnæðið þar sem líkamræktin er í dag hafi þau stokk- ið til og lagt allt í það. Rúna starf- aði áður sem einkaþjálfari í íþrótta- miðstöðinni á Jaðarsbökkum. „Mað- ur var orðinn svo vanur því að vera með stóra hópa, svo við vorum alltaf að leita að einhverju stóru.“ Fljótlega hafi hún þó séð að það væri kannski ekki rétta leiðin. „Lítið bil í iðnaðar- húsnæði virtist henta okkur betur en við héldum.“ Fullkomin stærð Á sama tíma og þau fundu húsnæðið var Rúna í fæðingarorlofi. Hún lýs- ir því svo að þá hafi orðið kaflaskil í huga hennar. „Ég bara gat ekki hugs- að mér að fara aftur í sama farið,“ segir Rúna og bætir við að hún hafi verið komin upp að vegg í starfi sínu á Jaðarsbökkum. „Það var rosalega gott að vera á Jaðarsbökkum. En að- staðan þarna er mjög heftandi.“ Hún hafi til dæmis ekki getað bætt við sig búnaði vegna plássleysis og þrátt fyrir mikla aðsókn í tímana var ekki hægt að fjölga þeim. Því stökk hún á tæki- færið að prófa eitthvað nýtt þegar það bauðst. Framtíðarsýn Rúnu er ekki endi- lega að stækka við sig. Hún starfar sem styrktarþjálfari hjá handknatt- leiksdeild Aftureldingar nokkra daga í viku sem heftir starf hennar hjá Me- tabolic. „Eftir þetta tímabil þarf ég svolítið að ákveða hvort ég ætla að halda áfram þar, eða ekki.“ Ef hún minnkar við sig hjá Aftureldingu eða hættir, er hún tilbúin til að gera meira úr Metabolic, en ekki endilega að stækka húsnæðið. „Stærðin er eigin- lega alveg fullkomin,“ segir Rúna þar sem hópastærðirnar verði fyrir vikið minni og öll þjónusta við hvern iðk- anda betri. „Þegar maður fer í svona minni hópa þá verður einhvern veg- inn stemningin í hópunum betri og mórallinn allt annar. Hóparnir eru þéttari og við þjálfararnir eigum auð- veldara með að veita persónulega og góða þjónustu. Ég er ekki tilbúin til að missa það.“ klj „Þetta hefur gengið vonum framar“ - segir Rúna Björg Sigurðardóttir um móttök- urnar við nýrri líkamsræktarstöð á Akranesi Rúna segir að hún vilji ekki stækka húsnæðið hjá Metabolic Akranesi eins og er, það sé passlega stórt. Aðstaðan er snyrtileg og falleg. Rúna segir að hún hafi lagt mikið í að hafa flæðið í salnum gott. „Siggi Hall, Jói Fel og Jón Sindri - Aldrei að vita!” - segir Jón Sindri Emilsson fjölmiðlafræðingur og matgæðingur í Stykkishólmi Jón Sindri Emilsson ásamt Hrafni Ágústi, yngri barni sínu. Matgæðingurinn hugar að pönnunni í eldhúsinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.