Skessuhorn - 23.11.2016, Page 51
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 51
Hún kveðst vera mikil áhuga-
manneskja um forystufé en er sjálf
ein skipulögð óreiða og bókaorm-
ur sem þó sé almennt glaðvær og
með húmor fyrir lífinu. Þannig lýs-
ir Guðlaug Guðmunda Ingibjörg
Bergsveinsdóttir, 25 ára þjóðfræð-
ingur frá Gróustöðum í Gilsfirði,
sjálfri sér þegar hún er spurð út í
eigin hagi og áhugamálin. Skessu-
horn ræddi við þennan hressa þjóð-
fræðing á dögunum sem nú starf-
ar að eigin sögn í hjarta skagfirska
efnahagssvæðisins, nánar tiltekið í
Kjötafurðastöð Kaupfélags Skag-
firðinga á Sauðárkróki.
Málabraut og rafmagn
Líkt og í tilfelli margra Vestlend-
inga lá leið Guðlaugar eftir grunn-
skóla í Fjölbrautaskóla Vesturlands
á Akranesi. „Ég fór á málabraut í
FVA af því að mér fannst félags-
fræðabraut of mainstream. Eftir að
hafa lokið stúdentinum þar hélt ég
áfram í skólanum og tók eina önn í
grunndeild rafiðna. Lærði meira á
þessari einu önn þar heldur en öll
hin árin í framhaldsskóla. Þurfti
svo að hætta eftir þessa einu önn
því ég átti engan pening eftir, vann
í rækjuvinnslu í nokkra mánuði og
skráði mig svo í BA nám í þjóðfræði
við Háskóla Íslands,” segir Guðlaug
sem hefur ekki rifjað upp kynni sín
af rafmagninu síðan.
Allur andskotinn í
þjóðfræðinni
Guðlaug lauk þjóðfræðináminu í
fyrra en hún segir það spennandi
og fjölbreytt. „Ég þjáist af miklum
valkvíða í lífinu og þjóðfræði virt-
ist ná yfir nógu breytt svið. Það er
hægt að taka allan andskotann fyr-
ir þar. Norræna trú, þjóðsögur, nú-
tíma flökkusagnir, pælingar um
þjóðbúninginn, pönkara, brandara
og meira segja andskotann sjálfan,”
segir hún.
„Þetta nám er góður grunnur
fyrir ýmislegt tengt kennslu, listum
eða ferðaþjónustu. Þess utan voru
bæði kennararnir og samnemendur
mínir æðislegasta fólk sem ég hef
kynnst,” bætir Guðlaug við og rifj-
ar upp að á samkomum nemenda
hafi hún fengið útrás fyrir áhuga
sinn á rímum. „Ég fékk líka að stýra
hringdansi á sameiginlegu þorra-
blóti þjóðfræðinema og þjóðfræð-
inga. Það er líf í þjóðfræðinni.”
Ræddi forystufé
á Rás 1
Einlægur áhugi Guðlaugar á
forystufé setti svip á námið og
að endingu fjallaði hún um þessi
merku dýr í lokaverkefni sínu. „Ég
tók fyrir sögu forystufjár ásamt því
að greina viðtöl við bændur. Ég tók
nokkur viðtalanna sjálf en svo fékk
ég aðgang að viðtölum gegnum
Fræðasetur um forystufé á Þórs-
höfn. Reyndar var langur aðdrag-
andi að ritgerðinni. Fyrsta verk-
efnið sem ég gerði í þjóðfræði var
örstuttur útvarpsþáttur þar sem ég
tók viðtal við pabba minn, Berg-
svein Reynisson, um forystufé.
Þættinum var svo útvarpað á Rás
1. Svo tókst mér einhvern veginn
að troða forystufé inn í a.m.k. eitt
verkefni á hverri önn eftir það svo
ég var komin með góðan grunn
fyrir lokaverkefnið,” segir Guðlaug
sem vonast til að geta haldið áfram
að fjalla um forystuféð í framtíð-
inni.
„Það er stórskemmtilegt að
spjalla við fólk um þessa tegund því
flestum finnst svo gaman að lýsa
hegðun þess og segja frá því sem
þetta fé gerir.”
Efni í fínustu
þjóðsögur
Síðustu misseri hefur Guðlaug
starfað í Kjötafurðastöð KS á Sauð-
arkróki. Ekki er annað hægt en að
spyrja hana hvort það starf hafi ein-
hverja þjóðfræðilega vídd. „Klár-
lega,” svarar hún að bragði. „Skag-
firska efnahagssvæðið og KS mafí-
an eru efni í fínustu þjóðsögur. Þess
utan er stórkostlegt að sjá Fram-
sóknarmenn í sínu náttúrulega um-
hverfi, sérstaklega gallharða stuðn-
ingsmenn Sigmundar Davíðs,” seg-
ir Guðlaug sem segir vinnustaðinn
góðan og skemmtilegan.
Endar örugglega í
nýsköpunarfyrirtæki
Þrátt fyrir áhuga á forystufé þá
kveðst Guðlaug ekki hafa á prjón-
unum að fara í búskap í framtíðinni.
„Ég læt mér nægja að sinni að vera
sjálfskipaður þræll foreldra minna
í sauðburði og smalamennskum.
Mér líkar of vel við helgarfrí og
útborgað orlof til að vilja gerast
bóndi. Síðan hef ég lítinn áhuga á
hefðbundnum 9-5 störfum, mögu-
lega af því að foreldrar mínir eru
sauðfjárbændur. Ég enda áreiðan-
lega í nokkrum hlutastörfum, ný-
sköpunarfyrirtæki eða einhverju
öðruvísi,” segir hún. „Annars er ég
nokkuð sátt með kjötafurðastöðina,
þó að það hafi meira með stórbrjál-
uðu vinnufélaga mína að gera held-
ur en vinnuna sjálfa.”
hlh
„Stórkostlegt að sjá Framsóknarmenn í
sínu náttúrulega umhverfi“
-rættu við Guðlaugu Guðmundu Ingi-
björgu Bergsveinsdóttur þjóðfræðing
frá Gróustöðum í Gilsfirði
Guðlaug Guðmunda Ingibjörg Bergsveinsdóttir ásamt forystuánni Freyju og forystugimbrinni hennar Hnoss í fjárhúsunum á
Gróustöðum.
Í Kjötiðnarstöð KS á Sauðárkróki,
tilbúin í slaginn.
Heyrðu umskiptin -fáðu heyrnartæki
til reynslu
heyrnartækja. Fagleg heyrnarþjónusta.
Heyrnarþjónustan Heyrn • Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur • s:534-9600 • www.heyrn.is •
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6