Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 57
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 57
!"#$%&'#()*+,,-(./'(
!"#$0$1$(0$23456'0(7(08$#962*
Jólatónleikar
!$'5':8(;"'
<=>?@ABCD=;EFDCDC((
GHCFIC(<CDAJ(GECKELLMJ((
MK(ND@E(GECKELLMJ
OP*(N;L;!G;C((
C;QF<M=RLFECF>D((
F=(S,T,,
!"#$%&'(#)*+$%(#),(#'-.'/#)0+1'234%$'(#'-&5)6(7&#)8.79.:;$$3:5)
<&#&)!(=&)3*)>?:()@-A#*B(:$C
K&U#6(V:'(W651XYU$(8Z91&"/$([5(XZ1$08&29"956(\&"98(](WX$'8$08$#*
„Ég man ekki hvenær ég byrjaði í
kraftlyftingum,“ segir Einar Örn
Guðnason og hlær. „Það eina sem ég
man er að það var í nóvember, því ég
keppti á fyrsta mótinu mínu í janú-
ar árið eftir. Ég vann á því móti og
fékk bikar,“ bætir hann við. „Líklega
stendur ártalið á bikarnum sem er
uppi á hillu heima í sveitinni.“ Einar
tekur upp símann og hringir í móður
sína sem getur ekki orðið honum að
liði, þar sem hún er ekki heima við.
Því næst reynir hann föður sinn, en
hann ansar ekki. Síðar í samræðum
blaðamanns og Einars kemur í ljós
að árið týnda er 2009. En það gildir
einu. Síðan þá hefur Einar unnið til
fjölda Íslands- og bikarmeistaratitla í
kraftlyftingum og sett hvorki fleiri né
færri en 52 Íslandsmet. Hann kveðst
hins vegar hafa verið grunlaus um
hvað biði hans þegar hann byrjaði að
lyfta lóðum 18 ára gamall.
„Ég byrjaði ekki að lyfta með það
að markmiði að fara að keppa í kraft-
lyftingum. Ég byrjaði bara að lyfta
með Manga vini mínum í íþróttahús-
inu við Vesturgötu á Akranesi þeg-
ar við vorum í fjölbraut, eftir æfinga-
plani frá Írisi Grönfeldt. En ég smit-
aðist strax af bakteríunni og einum og
hálfum mánuði síðar var ég farinn að
einblína á kraftlyftingar,“ segir Ein-
ar. Á þeim tíma þjálfaði hann frjálsar
íþróttir í Borgarnesi tvisvar í viku og
lyfti stundum þar í leiðinni.
„Ég var farinn að spá í að keppa
á einhverjum mótum hjá Kraftlyft-
ingasambandinu en þá hafði Valdi
Borgarnesbolla [Þorvaldur Ásberg
Kristbergsson] samband og sagði:
„Þú kemur og lyftir hjá okkur,“ og
ég gerði það,“ segir Einar. Úr varð
að Einar keppti fyrsta árið á vegum
kraftlyftingafélagsins METAL, sem
er ekki innan vébanda Kraftlyftinga-
sambands Íslands og þar með ekki
Íþrótta- og Ólympíusambandinu. Öll
þau met sem hann setti innan ME-
TAL eru því ekki formleg met og
njóta ekki viðurkenningar á lands-
og heimsvísu. „METAL er hópur af
fólki sem er að lyfta og keppa til að
þykjast geta sett heimsmet. Iðkend-
urnir eru tiltölulega fáir og það eru
ekki einu sinni lyfjapróf,“ segir Ein-
ar. „Það er allt saman gott og bless-
að. Ef þeir vilja gera þetta svona þá er
það hið besta mál. En þessi „heims-
met“ sem ég setti þar hefðu ekki einu
sinni komið mér á verðlaunapall ef ég
hefði verið að keppa á heimsmeist-
aramótum fyrir Kraftlyftingasam-
bandið.“
Dansinn besti
grunnurinn
Eftir að hann gekk úr skafti METAL
og hóf að keppa fyrir kraftlyftinga-
sambandið hefur Einar sett 52 Ís-
landsmet, sem fyrr segir. Metin eru
þó ekki það sem heldur honum við
efnið. „Það er auðvitað gaman að
setja met en það er skemmtilegast að
vera stöðugt að bæta sig, þess vegna
er maður í þessu. Metin eru bara rós
í hnappagatið,“ segir Einar. Þrátt fyr-
ir að hafa ekki byrjað að lyfta til að
keppa í kraftlyftingum kveðst hann
engu að síður alinn upp við að horfa
á aflraunir í sjónvarpinu. Fyrirmyndir
hans voru aflraunakapparnir Magnús
Ver Magnússon og Jón Páll Sigmars-
son. „Ég hef meira að segja keppt
einu sinni í aflraunum en það er ekki
til umræðu hér,“ segir hann léttur í
bragði og hlær hálf skömmustulega.
Áður en Einar hóf að lyfta lóð-
um stundaði hann frjálsar íþrótt-
ir. Segir hann að þær séu prýðileg-
ur grunnur fyrir kraftlyftingarnar.
„En ég æfði líka dans, og það er ein-
hver besti grunnur sem kraftlyftinga-
fólk getur haft,“ segir Einar. „Dans-
inn gerði það að verkum að ég var
með gott vald á öllum hreyfingum og
var sterkur þegar ég byrjaði að lyfta,“
bætir hann við.
Hvetur alla til að prófa
kraftlyftingar
Einar er frá Brautartungu í Lund-
arreykjadal en er búsettur á Akra-
nesi ásamt sambýliskonu sinni Evu
Ösp Sæmundsdóttur og syni þeirra
Sigurði Erni. Einar lærði málmiðn í
Fjölbrautaskóla Vesturlands og starf-
ar í vélsmiðju Héðins á Grundartanga
á dagvinnutíma. „Síðan fer ég nánast
beint á æfingu eftir að ég kem heim
úr vinnunni, þrjá daga í viku. Auð-
vitað væri óskastaða að æfa á hverj-
um degi en æfingarnar eru tímafrek-
ar, allt að fjórir tímar í senn og ég er
fjölskyldumaður í fullri vinnu,“ segir
Einar. Það virðist þó ganga ágætlega
upp, því hann hefur aðeins misst af
gullinu á einu móti á þessu ári. Hann
æfir, líkt og aðrir kraftlyftingamenn
á Akranesi, í kjallara íþróttahússins
við Vesturgötu í aðstöðu Kraftlyft-
ingafélags Akraness, þar sem Einar
er jafnframt formaður. Hann segir
félagið hafa verið í sókn undanfarin
misseri. „Þetta er flott félag og iðk-
endur hafa staðið sig vel í keppnum
bæði á Íslandi og erlendis. Félagið
hefur unnið níu Íslands- og bikar-
meistaratitla á þessu ári og fullt af
silfurverðlaunum. Það er býsna góð-
ur árangur,“ segir Einar. „Iðkendum
fer fjölgandi og við erum nú þegar
að sprengja aðstöðuna utan af okkur
eftir að við stækkuðum hana í sumar.
Við erum líka farin að sjá fleiri stelp-
ur æfa kraftlyftingar sem er mjög
ánægjulegt. Við eignuðumst einmitt
aftur Íslandsmeistara í kvennaflokki á
árinu og það er frábært. Það er nefni-
lega mikill misskilningur að kon-
ur eigi ekki eða geti ekki lyft,“ bæt-
ir hann við og mælir með kraftlyft-
ingum fyrir alla sem hafa áhuga á og
hvetur þá til að kíkja á æfingu hjá fé-
laginu. „Þetta er eitthvað það besta
sem þú getur gert ef þú vilt halda þér
í formi eða byggja upp styrk. Kraft-
lyftingar eru fyrir alla og ef fólk hef-
ur hug á að prófa þá er um að gera að
kíkja á okkur og fá leiðbeiningar, við
erum með bestu þjálfara á landinu,“
segir Einar Örn Guðnason á lokum.
kgk
Smitaðist undir eins af kraftlyftingabakteríunni
Rætt við Einar Örn Guðnason kraftlyftingakappa
Kraftlyftingamaðurinn Einar Örn
Guðnason.
Einar klárar hér hnébeygjulyftu á Bikarmótinu í kraftlyftingum sem fram fór í
byrjun mánaðarins. Einar varð bikarmeistari og stigahæstur karla óháð þyngdar-
flokkum. Hann setti Íslandsmet í hnébeygju, bekkpressu og samanlögðu á
mótinu.