Skessuhorn - 23.11.2016, Page 63
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 63
Bjarni Þór
Gallerí vinnustofa
Kirkjubraut 1
Akranesi
Símar 431-1964,
857-2648, 849-6977
listamadur@simnet.is
www.listamadur.com
Málverk, vatnslitamyndir, skopteikningar, bókaskreytingar, skúlptúrar
Jólakveðja frá listamanninum og konu hans
Opið alla laugardaga til jóla
Jóla- og
útskriftargjafir
30% afsláttur af öllu skarti fram
að mánaðarmótum
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
„Þetta er búin að vera ótrúleg
breyting. Þegar ég byrjaði hérna þá
gátu ferðamenn ekki keypt sér mat
á mörgum stöðum á Vesturlandi á
veturna. Núna er staðan allt önn-
ur og ganga þeir að þjónustunni
vísri á flestum stöðum allan ársins
hring.“ Þetta segir Hvanneyring-
urinn Kristján Guðmundsson, for-
stöðumaður Markaðsstofu Vestur-
lands í Borgarnesi, um þær breyt-
ingar sem hann hefur upplifað á
vettvangi ferðaþjónustunnar á liðn-
um árum í störfum sínum. Kristján,
sem er 29 ára gamall, hefur leitt
starf Markaðsstofunnar undanfar-
ið ár eftir að hafa tekið við keflinu
af Rósu Björk Halldórsdóttur sem
stýrði stofunni um árabil. Hlutverk
Markaðsstofunnar er að halda utan
um markaðs- og kynningarmál fyr-
ir ferðaþjónstuna í landshlutanum
og reka upplýsingamiðstöð ferða-
manna í Hyrnutorgi í Borgarnesi.
Í mörg horn að líta
Kristján er fæddur og uppalinn á
Hvanneyri og menntaður ferða-
málafræðingur frá Háskólanum á
Hólum í Hjaltadal. „Ég hóf störf
á Markaðsstofunni strax eftir út-
skrift sumarið 2013, þá sem sum-
arstarfsmaður í móttökunni okkar
í Borgarnesi. Haustið eftir fékk ég
starf sem verkefnastjóri og gegndi
því þangað til að Rósa Björk hætti
í fyrra,“ segir Kristján sem segir
vinnuna krefjandi en skemmtilega.
„Maður þarf að vera sérfræðing-
ur á mörgum sviðum þegar kem-
ur að ferðaþjónustu. Greinin er
víðfeðm og spannar mörg svið allt
frá rekstri hótela til þess að reka
dekkjaverkstæði. Það er því í mörg
horn að líta.“
Yfir 500 þúsund á
Vesturland
Vexti ferðaþjónustunnar á undan-
förnum árum er best lýst í tölum
um heildarfjölda erlendra ferða-
manna á landinu. Árið 2010 var
fjöldinn tæp 488 þúsund, en árið
2015 tæpar 1,3 milljónir. Nýjustu
spár gera ráð fyrir að fjöldinn verði
1,7 milljón í ár. Það segir einn-
ig sína sögu að heildarfjöldi ferða-
manna frá 2008-2016 er tæplega
milljón manns meiri en á árabilinu
1949-2007.
„Samkvæmt þeim rannsóknum
sem við höfum stuðst við komu um
500 þúsund ferðamenn á Vestur-
land í fyrra. Það hefur orðið mik-
il aukning á þessu ári og bendir allt
til þess að fjöldi gesta verði enn
meiri á næstu árum,“ segir Krist-
ján. Spurður um hvort sókn ferða-
manna til landsins sé bóla sem muni
springa segir hann að vitaskuld séu
menn með varan á sér. „Eftirspurn
eftir flugsætum og gistirými er hins
vegar slík að það eru engar vís-
bendingar um bólumyndun. Stóra
verkefnið er aftur á móti hvernig
við getum haldið áfram að taka vel
á móti ferðamönnunum og þróað
þessa atvinnugrein áfram. Í þess-
um efnum verðum við að halda vel
á spilunum í uppbyggingu innviða
eins og bæta enn frekari aðgengi að
náttúruperlum.“
Þjónustustigið
dregur fólkið að
Hann segir margar ástæður búa
að baki aukningunni á Vestur-
landi. „Hér hafa verið byggðir
upp nokkrir seglar á liðnum árum
sem eiga sinn þátt í því að laða að
ferðamenn. Við getum nefnt Borg-
arfjörðinn, en þar hafa ísgöng-
in í Langjökli og bætt aðgengi að
hellinum Víðgelmi í Hallmund-
arhrauni leikið hlutverk svo eitt-
hvað sé nefnt. Mikil uppbygg-
ing hefur einnig verið á Snæfells-
nesi með Snæfellsjökulsþjóðgarð í
fararbroddi. Markaðsstarf síðustu
ára hefur einnig borið ávöxt og má
nefna val Lonely Planet ferðabóka-
útgáfunnar á Vesturlandi sem einn
af áhugaverðustu áfangastöðum
heims 2016,“ segir Kristján.
„Þá hefur skipt sköpum að
rekstraraðilum í ferðaþjónustu hef-
ur fjölgað og að þeir sem hafa ver-
ið með rekstur um nokkurt skeið
hafa aukið þjónustu sína með því
að hafa opið lengur. Þetta gerir
það að verkum að ferðamennirnir
eru líklegri til að koma. Ef þeir vita
að þjónustan er til staðar, þá koma
þeir.“
Nýjar áskoranir
Ljóst er að með auknum ferða-
mannafjölda hafa komið upp nýj-
ar áskoranir hjá ferðaþjónustunni
og segir Kristján mikilvægt að tak-
ast strax á við þær. „Næsta áskorun
innan ferðaþjónustunnar í lands-
hlutanum er að auka veru ferða-
manna hér og fjölga gistinóttum
þeirra. Margir koma hingað í dags-
ferðir frá höfuðborgarsvæðinu með
rútum eða bílaleigubílum. Með
því að fjölga gistinóttum og auka
afþreyingarmöguleika getum við
aukið líkurnar á því að ferðamenn
dvelji hér í nokkra daga eða lengur.
Nú stefnir í að gististaðir í Reykja-
vík muni ekki anna eftirspurn eft-
ir gistirými og því mun straumur-
inn leita á nærliggjandi svæði eins
og Vesturland,“ segir Kristján og
nefnir að Markaðsstofan fylgist nú
með tilraunaverkefni fyrirtækjanna
sem reka flugrútuna frá Keflavík.
„Rútufyrirtæki eru byrjuð að
lengja ferðir sína frá Keflavíkur-
flugvelli og aka nú í gegnum BSÍ
og alla leið á Selfoss. Við höfum
byrjað samtal við þau um að flug-
rútan komi líka á Vesturland, t.d.
með því að hafa endastöð í Borg-
arnesi. Þetta ætti að auka líkurn-
ar á því að ferðamenn komi beint
úr flugi og til landshlutans,“ segir
Kristján.
„Aðrar áskoranir felast í því að
koma í veg fyrir ágang ferðamanna
á íbúa. Við þurfum að finna jafn-
vægi þarna á milli. Það má ekki vera
þannig að koma ferðamanna reyni
á þolmörk íbúa. Nefna mætti sem
dæmi að beina svokölluðum „cam-
perum“ í afmörkuð rými.“
Aftur á æskuslóðir
Kristján er nú búsettur á Odds-
stöðum í Lundareykjadal ásamt
sambýliskonu sinni Eydísi Smára-
dóttur og tveimur drengjum þeirra,
Guðmundur Móberg 2 ára og
óskírðum sem er nýfæddur. Fjöl-
skyldan er þó búinn að festa kaup á
húsnæði á Hvanneyri og mun flytja
þangað með vorinu. „Ég er mjög
ánægður með að flytja á Hvanneyri
á ný þar sem ég er uppalinn. Ég bjó
um tíma í Reykjavík fyrir fáeinum
árum, en fann að það að búa í sveit
á betur við mig. Það er líka gott
að alast upp í sveitaþorpi eins og
Hvanneyri og því fá börnin okkar
Eydísar nú að kynnast. Þar að auki
er Hvanneyri vel í sveit sett með
góðum skólum og þaðan er stutt í
Maður þarf að vera sérfræðingur á mörgum sviðum
- rætt við Kristján Guðmundsson forstöðumann Markaðsstofu Vesturlands
alla þjónustu og svo á höfuðborg-
arsvæðið.“
Mjög líklegt er að ferðaþjónustan
verði starfsvettvangur Kristjáns til
framtíðar. „Það eru allar líkur á því
að fleiri störf skapist í þessum geira
í framtíðinni, sérstaklega á Vestur-
landi. Þetta mun laða að margt fólk
til starfa. Nú starfa margir jafnaldr-
ar mínir við ferðaþjónustu, sum-
ir meira að segja sem voru samtíða
mér í grunnskóla. Ég held að íbú-
um sem starfi í þessum geira muni
fjölga mikið. Það er því ástæða til
að vera bjartsýnn.“ hlh
Kristján Guðmundsson í höfuðstöðvum Markaðsstofu Vesturlands í Borgarnesi.