Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 64

Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 64
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201664 Á þessum árstíma fer jólaljósum og seríum fjölgandi á húsum og trjám, jólagardínur og aðventuljós birtast í eldhúsgluggum landans, kransar eru hengdir á hurðir víðast hvar og svona mætti áfram telja. Löngum hefur fólki þótt skemmtilegt að skreyta glugga sína fyrir jólin með ýmsum hætti. Sumir nota til þess jólaseríur og skraut á meðan aðr- ir skreyta glerið sjálft. Límmiðar og gervisnjór úr spreybrúsum voru lengi vel notaðir á rúður en það má fara fleiri leiðir. Einfaldast er lík- lega að teikna á glerið með svoköll- uðum fljótandi krítarpenna. Teikn- ingin helst vel á rúðunni og auðvelt er að ná myndinni af aftur. Hægt er að nota skapalón til að gera alls- kyns snjókorn og myndir en einnig má leyfa sköpunargleðinni að njóta sín og teikna fríhendis. Þá má einn- ig nota pennana til að skreyta gler- krukkur undir kerti. Meðfylgjandi myndir má finna á samfélagsmiðl- inum Pinterest, ásamt ótal fleiri hugmyndum að ýmsu sniðugu jóla- skrauti. grþ Teiknaðu á gluggann þinn - einföld leið til að skreyta fyrir jólin Sigurður Bjarni Gilbertsson hefur mörg járn í eldinum í sínu heima- héraði. Þessi 23 ára Dalamaður úr Búðardal er allt í senn landpóst- ur, sjúkraflutningamaður, björgun- arsveitarmaður og sveitarstjórnar- maður í Dalabyggð. Vinnudagarnir eru því stundum langir en það skipt- ir minna máli þar sem Sigurði finnst ákveðin forréttindi að fá að þjóna heimahéraði sínu í öllum þessum hlutverkum. 270 kílómetrar á dag „Ég er Dalamaður í húð og hár og fæddur og uppalinn í Búðardal,” seg- ir Sigurður við upphaf spjalls. „Ég á ættir mínar að rekja til Hrappsstaða í Laxárdal, en þaðan er pabbi minn, Gilbert Hrappur Elísson. Mamma, Valgerður Ásta Emilsdóttir, er aftur á móti úr Borgarnesi. Ég er stundum á ferðinni þar og á það til að leggja móðurbræðrum mínum lið í mestu törnunum, þeim Sigurði Arilíusi og Gunnari, á bílaverkstæðinu þeirra við Sólbakka,” segir Sigurður. Helsta starf Sigurðar er hins vegar að vera landpóstur sem er með elstu starfsheitum á Íslandi. „Ég sinni í grófum dráttum svæðinu sunnan við Búðardal, það er Laxárdal, Hauka- dal, Miðdölum, Hörðudal og vest- ur eftir Skógarströnd. Ætli ég keyri ekki um 270 kílómetra á dag,” seg- ir Sigurður. „Þetta eru tvær ferðir aðra vik- una og þrjár ferðir hina vikuna sem ég fer, en ferðum var fækkað hér eins og í öllu dreifbýli landsins fyr- ir stuttu. Ég verð að segja að þetta er skemmtilegt starf og er ánægjulegt að hitta fólkið á bæjunum. Maður fær þá að heyra hvað á því brennur sem kemur sér vel þegar maður er í sveitarstjórnarmálum.” Sjúkraflutningar eru gefandi starf Þegar póstferðum var fækkað minnkaði starf Sigurðar. „Ég varð þá að finna eitthvað annað viðfangsefni til að fylla í vinnuvikuna. Niðurstað- an varð sú að gerast sjúkraflutninga- maður en þá vantaði slíkan mann til starfa hér í Dölunum. Ég er bú- inn að vera virkur í björgunarsveita- starfi í nokkur ár og var því með smá reynslu til að byggja á,” segir Sig- urður, en hann er nú um stundir formaður í Björgunarsveitinni Ósk í Dölum. „Ég skráði mig því í Sjúkra- flutningaskólann á Akureyri og lauk því námi fyrr á árinu. Ég byrjaði síð- an að standa vaktir í vor.” Sigurður sér ekki eftir ákvörðun sinni. „Þetta starf er ótrúlega gef- andi, en vissulega erfitt. Það er þó ekkert betra en að sjá fólk sem við höfum þurft að koma undir læknis- hendur heilt heilsu úti í búð nokkr- um dögum síðar. Það gefur starfinu mikið gildi.” Yngsti sveitarstjórnar- maðurinn Vorið 2014 var Sigurður kjörinn í sveitarstjórn Dalabyggðar, þá ein- ungis 21 árs gamall og gerir það hann að einum yngsta sveitarstjórn- armanni í sögu sveitarfélagsins. „Í aðdraganda kosninganna fór ég að spá aðeins meira í sveitarstjórnar- málum. Mér fannst mikilvægt að unga fólkið í Dölunum ætti fulltrúa í sveitarstjórn og því ákvað ég að setja nafn mitt á lista yfir þá sem ætluðu að gefa kost á sér,” segir Sigurður en í Dalabyggð var persónukjör en ekki listakosning eins og tíðkast víða. „Svo þegar talið var upp úr kössun- um kom í ljós að ég var kjörinn og kom það nokkuð á óvart. En þá var bara að rísa undir ábyrgðinni.” Tók tíma að kynnast formlegheitum Sigurður segir sveitarstjórnarmál- in hafa komið sér á óvart. „Það eru mun fleiri verkefni sem sveitarfé- lögin sinna en maður gerði sér grein fyrir í fyrstu. Stóra verkefnið er hins vegar fyrst og síðast að forgangsraða verkefnum því við getum ekki fram- kvæmt allt í einu. Það eru takmark- aðir peningar til spilanna í fámennu sveitarfélagi eins og Dalabyggð, þó það sé stórt að flatarmáli.” Hann segir að það hafi tek- ið nokkurn tíma að venjast vinnu- brögðunum í sveitarstjórn. „Það eru mikil formlegheit á fundum og það tók tíma að kynnast þeim og venj- ast. Stundum finnst mér hlutirnir þó ganga full hægt fyrir sig.” Er formaður fræðslu- nefndar Sveitarstjórn hefur unnið að ýmsum málum á kjörtímabilinu og nefnir Sigurður að nú hylli undir að ráð- ist verði í framkvæmdir á stóru máli sem skipti miklu fyrir héraðið. „Við ákváðum nýlega að hefja undirbún- ingsvinnu við byggingu nýs íþrótta- húss og sundlaugar í Búðardal en það er framkvæmd sem búið er að bíða lengi eftir. Um leið ákvað sveit- arfélagið að auglýsa til sölu hlut sinn í mannvirkjum á Laugum í Sælings- dal. Nú um stundir erum við svo að ganga frá fjárhagsáætlun en það er alltaf vandasamt verk. Sú vinna er sérstaklega vandasöm núna þar sem kjarasamningar við t.d. kennara eru í óvissu. Þetta gerir okkur erfiðara fyrir í okkar vinnu, en fræðslumálin er stór útgjaldaliður eins og annars staðar,” segir Sigurður sem gegn- ir formennsku í fræðslunefnd Dala- byggðar. Samgöngur og fjar- skipti stór framfaramál En það eru fleiri mál sem brenna á þessum unga sveitarstjórnarmanni. „Maður bindur vonir við að ríkið auki framlög til samgöngu- og fjar- skiptamála á næstunni. Það þarf að gera meira í ljósleiðaramálum en um er að ræða stórt byggðamál fyrir okkur Dalamenn,” segir hann. Hvað samgöngurnar snertir þá nefnir Sig- urður nýlega ákvörðun um að gera bætur á Skógarstrandarvegi sem skref í rétta átt. „Það þarf hins vegar að gera meira. Með bættu vegakerfi eykst öryggi á vegum og tækifærum fjölg- ar, t.d. í ferðaþjónustu. Þá eru meiri líkur á því að ungt fólk flytjist í Dal- ina,” segir Sigurður sem sér ekki eft- ir því að hafa hellt sér út í pólitík. „Það getur svo vel verið að ég haldi áfram á þessu sviði. Það verður bara að koma í ljós,” segir hann að end- ingu. hlh Sér ekki eftir því að hafa hellt sér út í pólitík Rætt við Sigurð Bjarna Gilbertsson landpóst og sveitarstjórnar- mann með meiru í Búðardal Sigurður Bjarni Gilbertsson, landpóstur og sveitarstjórnarmaður í Dölum. Sigurður ásamt samnemendum síðasta daginn í Sjúkraflutningaskólanum fyrr á árinu. Nemendur í þessum hóp voru af Vesturlandi og Suðurlandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.