Skessuhorn - 23.11.2016, Page 73
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 73
Ýmislegt verður um að vera
á aðventunni á Vesturlandi.
Tendruð verða ljós á jólatrjám
víðast hvar á næstunni og marg-
ir fjölbreyttir jólaviðburðir eru á
döfinni um allan landshlutann,
svo sem helgileikir, markaðir
og jólatónleikar - svo fátt eitt
sé nefnt. Skessuhorn tók saman
það helsta sem er á dagskrá á
aðventunni, skipt eftir sveitar-
félögum í landshlutanum. At-
hugið að listinn er hvergi nærri
tæmandi og að fleiri viðburðir
geta bæst við þegar líður á að-
ventuna.
Akranes:
Margt verður að gerast á Akranesi á aðvent-
unni og hefst dagskráin fyrstu aðventuhelg-
ina, en hún er einmitt framundan. Líkt og
undanfarin ár fer Útvarp Akranes í loftið á
hádegi á föstudag og verður dagskrá fram
á miðjan sunnudag. Ýmislegt annað verð-
ur um að vera um helgina og má þar nefna
kvikmyndahátíðina Frostbiter: Icelandic
Horror Film Festival sem verður í gangi alla
helgina. Á laugardag verður afmælishátíð ÍA
og Íþróttahússins á Vesturgötu haldin. Þá
verður aðventuskemmtun á Akratorgi þeg-
ar jólaljósin verða tendruð á jólatré bæjarins
klukkan 16:30. Um kvöldið verða tónleikar
með Kirkjukór Akraness og Þór Breiðfjörð í
Bíóhöllinni.
Mun fleiri viðburðir verða á dagskrá á
aðventunni á Akranesi. Miðvikudaginn 30.
nóvember verða tónleikar í Tónbergi þar
sem hljómsveitir nemenda í tónvali grunn-
skólanna í samstarfi við tónlistarskólann
koma fram en fjölmargir jólatónleikar verða
í tónlistarskólanum á aðventunni. Föstudag-
inn 2. desember verður Mugison með tón-
leika í Bíóhöllinni og laugardaginn 3. des-
ember verður jólasamvera í Garðakaffi,
þar sem Valgerður Jóns og Doddi munu
spila lög og boðið verður upp á föndur fyr-
ir börnin. Miðvikudaginn 7. desember mun
flautukvartett halda tónleika í Akranesvita
og Jólagleði kóranna verður í Tónbergi
fimmtudaginn 8. desember kl. 20. Þar munu
Karlakórinn Svanir, Grundartangakórinn,
Kór Saurbæjarprestakalls og Kvennakór-
inn Ymur halda sameiginlega jólatónleika.
Í Akraneskirkju verða styrktartónleikar
þann 9. desember en þar koma fram söng-
konurnar María Dís, Rakel Rún, Rakel Páls
og Margrét Eir. Föstudaginn 16. desember
verður boðið upp á nýjung í Skógræktinni
en „Leitin að jólasveininum“ mun fara fram
í Garðalundi kl. 20. Þar munu fjölskyld-
ur koma saman, njóta þess að stelast út eft-
ir kvöldmat, kveikja á kyndli eða vasaljósi og
taka þátt í leitinni að jólasveininum. Laug-
ardaginn 17. desember verður jólamarkað-
ur í Garðalundi þar sem matur, handverk,
tónlistaratriði og fleira verður á boðstóln-
um. Þá verða Þorláksmessutónleikar Bubba
Morthens 19. desember í Bíóhöllinni. Sýn-
ing Gyðu L. Jónsdóttur Wells, Hver veg-
ur að heiman er vegur heim, verður opin í
Guðnýjarstofu á Byggðasafninu í Görðum á
opnunartímum Garðakaffis alla aðventuna.
Þá mun myndlistasýning Sigurbjargar Ein-
isdóttur og ljósmyndasýning Töru Wills,
sem er lögblind, verða opin í Akranesvita
á opnunartíma vitans. Auk þess verða fleiri
tónleikar í Tónbergi á aðventunni og má
þar meðal annars nefna jólatónleika á veg-
um Brynju Valdimarsdóttur 5. desember þar
sem nemendur hennar koma fram og tón-
leika Huldu Gests og Birgis Þórissonar þann
18. desember klukkan 16.
Hvalfjarðarsveit:
Árleg Fullveldishátíð Heiðarskóla verð-
ur haldin 1. desember næstkomandi. Þar
munu nemendur í 1. - 4. bekk sýna leikrit-
ið Línu Langsokk og nokkrir nemendur úr
Tónlistarskólanum á Akranesi koma fram.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og rennur óskipt-
ur í ferðasjóð Nemendafélagsins. Vöfflur og
heitt súkkulaði er innifalið í verði. Þá á leik-
skólinn Skýjaborg 20 ára afmæli 8. desemb-
er og verður opið hús frá kl. 8:30 - 10 í til-
efni þess.
Borgarbyggð:
Líkt og víðast hvar er ýmislegt á döfinni í
Borgarbyggð á aðventunni. Næstkomandi
föstudagskvöld verður hið árlega jólabingó
Kvenfélagsins 19. júní haldið í matsal Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Sama
kvöld verða Gosar í Landnámssetri. Þar munu
tónlistarmennirnir Valdimar Guðmunds-
son, Snorri Helgason, Teitur Magnússon,
Örn Eldjárn og Jón Mýrdal sameina krafta
sína og halda tónleika kl. 21. Fyrsta sunnu-
dag í aðventu, 27. nóvember, opnar í Safna-
húsi Borgarfjarðar ljósmyndasýning Jóns R.
Hilmarssonar „Ljós og náttúra Vesturlands“.
Þar mun Alexandra Chernyshova óperu-
söngkona koma fram. Þá verða ljósin tendr-
uð á jólatré Borgarbyggðar við Kveldúlfsvöll
næsta sunnudag klukkan 17. Þar mun Geir-
laug Jóhannsdóttir formaður byggðarráðs
flytja ávarp og tendra ljósin. Jólalög verða
sungin af Barnakór Borgarness undir stjórn
Steinunnar Árnadóttur, Grýla og jólasvein-
arnir koma til byggða og nemendur Grunn-
skólans í Borgarnesi bjóða upp á heitt kakó.
Laugardaginn 3. desember verður árlegur
jólamarkaður í gömlu hlöðunni í Nesi í Reyk-
holtsdal. Sunnudaginn 4. desember verða tón-
leikar með Elmari Gilbertssyni tenórsöngvara
og karlakórnum Söngbræðrum í Reykholti.
Þriðjudaginn 6. desember flytur Magnús K.
Hannesson lögfræðingur og sagnfræðingur
fyrirlestur um konungsríkið Ísland 1918-1944
í Snorrastofu og sameiginlegir aðventutón-
leikar Freyjukórsins, Reykholtskórsins og
Söngbræðra verða fimmtudaginn 8. desember,
einnig í Reykholti. Laugardaginn 10. desemb-
er verður jólabjórsmökkun á Hvanneyri Pub
og mánudaginn 12. desember mun Borgfirð-
ingurinn, leikarinn og rithöfundurinn Ævar
Þór Benediktsson mæta í Landnámssetrið kl.
18 og lesa úr nýjustu bók sinni. Auk þess mun
söngkonan Margrét Eir halda jólatónleika í
Reykholti sunnudaginn 18. desember.
Snæfellsbær:
Næstkomandi laugardag hefst jólaopnun í
Pakkhúsinu í Ólafsvík en þar verður opið all-
ar helgar fram að jólum frá kl. 14 - 18. Sama
dag verður opnun á nýrri sýningu í Pakk-
húsinu; „Símstöðvar í Snæfellsbæ“. Þá verð-
ur jólamarkaður í Pakkhúsinu frá kl. 15 - 17.
Kveikt verður á ljósum jólatrjánna í Snæ-
fellsbæ næsta sunnudag. Ljósin verða tendr-
uð klukkan 16:30 á Hellissandi og kl. 18 í
Ólafsvík. Að vanda munu jólasveinarnir kíkja
í heimsókn og dansað verður í kringum jóla-
tréð. Aðventuhátíð verður í Ólafsvíkurkirkju
kl. 20 sunnudagskvöldið 27. nóvember.
Margt verður um að vera í Snæfellsbæ á
aðventunni. Meðal annars verða Borgardæt-
ur með tónleika í Klifi 1. desember næstkom-
andi. Þá verða tónleikar hjá Tónlistarskóla
Snæfellsbæjar 5. desember og þann 6. des-
ember verður jólabókaupplestur í Klifi. Jóla-
markaður Pakkhússins verður opinn fimmtu-
daginn 8. desember. 12. desember fara jóla-
sveinarnir að tínast til byggða og verður
Jólapakkhúsið þá opið alla virka daga frá kl.
16 - 19 og koma jólasveinarnir í heimsókn.
Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju verður með jóla-
tónleika 15. desember og á Þorláksmessu
verður opið í Jólapakkhúsinu fram á kvöld.
Þar verður jólaglögg og heitt súkkulaði í boði
um kvöldið og kirkjukórinn mætir kl. 21 og
tekur nokkur lög.
Grundarfjörður:
Aðventan í Grundarfirði hefst að vanda á að-
ventudegi Kvenfélagsins Gleym mér ei í Sam-
komuhúsinu. Aðventudagurinn verður sunnu-
daginn 27. nóvember og stendur yfir frá klukk-
an 14 til 17. Ljósin á jólatrénu í Grundarfirði
verða tendruð sama dag klukkan 18 og verð-
ur þar sungið og dansað í kringum jólatréð
líkt og áður. Hjónaklúbbur Eyrarsveitar verð-
ur með spilakvöld í Sögumiðstöðinni kl. 20:30
á morgun, fimmtudag, og aftur fimmtudag-
inn 29. desember. Jólamarkaður Lions verður
haldinn í Sögumiðstöðinni 8. og 9. desember
næstkomandi. Þar verða til sölu jólatré, leiðis-
geinar, útikerti og fleira, ásamt heitu kakói og
vöfflum. Skraflkvöld með Skraflfélagi Grund-
arfjarðar verður haldið á Kaffi Emil 9. des-
ember nk. en þann 10. desember verða hug-
ljúfir jóla-djasstónleikar með Helgu og Hjalta
á sama stað. Jólatónleikar tónlistarskólans
verða haldnir í Grundarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 15. desember. Jólahekl verður í Sögu-
miðstöðinni 7., 14. og 21. desember kl. 16:30.
Þá verða tónleikarnir „Jól með Jóhönnu“ með
Jóhönnu Guðrúnu og Davíð Sigurgeirssyni í
kirkjunni 22. desember kl. 20. Einnig verða
jólahlaðborð, dansleikir og jólatónleikar á 59
Bistro Bar á aðventunni, ásamt skötuhlaðborði
í hádeginu á Þorláksmessu en á Bjargarsteini
verður einnig skötuhlaðborð 23. desember.
Stykkishólmur:
Laugardaginn 26. nóvember verður jóla-
basar í Setrinu. Þar verða munir gerðir af
starfsmönnum Ásbyrgis og handavinna frá
íbúum Dvalarheimilisins til sölu. Margt fal-
legt verður í boði, á verði sem gleður, ásamt
heitu súkkulaði og vöfflum. Á fyrsta sunnu-
degi í aðventu, 27. nóvember, stendur Aft-
anskin fyrir félagsvist í Setrinu kl. 15:30. Þar
kostar 500 krónur að taka þátt og eru allir
velkomnir. 4. desember, á annan sunnudag
í aðventu verður árlegur basar kvenfélagsins
haldinn á Hótel Stykkishólmi. Jólatónleikar
Tónlistarskóla Stykkishólms verða haldnir í
tónlistarskólanum 5., 6. og 7. desember og
munu nemendur úr öllum deildum skólans
flytja jólalög og fjölbreytta tónlist. Þriðju-
daginn 6. desember verður helgileikrit í
Stykkishólmskirkju þegar leik- og grunn-
skólabörn fara í kirkjuheimsókn kl. 10:30.
Þá verður helgistund og súpa fyrir 60 ára og
eldri sama dag klukkan 12.
Jólastemning verður í Hólmgarði í Stykk-
ishólmi föstudaginn 9. desember þegar ljósin
á jólatrénu verða tendruð klukkan 18. Kven-
félagið mun selja heitt súkkulaði og smákök-
ur og lúðrasveit og sönghópur frá tónlistar-
skólanum verða með atriði. Jólastund verð-
ur á bókasafninu 10. desember næstkom-
andi en hátíðartónleikar tónlistarskólans
verða haldnir 15. desember í Stykkishólms-
kirkju kl. 18. Þá verður að vanda boðið upp
á jólahlaðborð á Hótel Stykkishólmi á að-
ventunni.
Dalabyggð:
Lionsklúbbur Búðardals verður með jóla-
markað í Leifsbúð næstkomandi föstudag og
laugardag frá kl. 14 til 18. Sunnudaginn 27.
nóvember verður jólamarkaður í Auðarskóla
til styrktar Gleym mér ei frá kl. 13 - 16. Nem-
endafélagið verður þar með kaffisölu. Að-
ventukvöld verður í Hjarðarholtskirkju næst-
komandi sunnudag. Þar mun kirkjukór Dala-
prestakalls syngja jólasálma og sérstakur gest-
ur er Helga Möller söngkona sem syngur jóla-
lög. Krakkar úr kirkjuskólanum syngja og spila
jólalög og Hlöðver Ingi Gunnarsson skóla-
stjóri Auðarskóla flytur hugvekju.
Þriðjudaginn 6. desember verður kveikt
á ljósunum á jólatré Dalamanna við Auðar-
skóla klukkan 17:30. Súkkulaði og piparkökur
verða í boði Dalabyggðar eftir að ljósin verða
tendruð og rauðklæddir vinir koma snemma
til byggða og láta sjá sig. Aðventukvöld verður
haldið í Staðarfellskirkju föstudagskvöldið 9.
desember. Þar munu félagar úr Þorrakórnum
syngja jólasálma og krakkar úr kirkjuskólanum
syngja og spila nokkur jólalög. Eftir hugvekju
flytja fermingarbörn kærleiksboðskap og bera
ljós um kirkjuna.
Reykhólahreppur:
Árlegur jólamarkaður verður í Kaupfélaginu
í Króksfjarðarnesi um næstu helgi. Þar verð-
ur meðal annars hægt að finna fallega unnið
handverk, bækur, jólakort, jólapappír og fleira,
ásamt kaffi og meðlæti. Þau félagasamtök
sem þegar hafa staðfest þátttöku eru Hand-
verksfélagið Assa, Lionsdeildin á Reykhólum,
Björgunarsveitin Heimamenn, Krabbameins-
félag Breiðfirðinga og Kvenfélagið Katla.
grþ
Viðburðir í sveitarfélögum á Vesturlandi á aðventu
Ljósin eru tendruð á jólatrjám víðast hvar þegar aðventan gengur í garð. Hér er svipmynd úr Búðardal.
Ljósm. sm.