Heimsmynd - 01.03.1990, Blaðsíða 28

Heimsmynd - 01.03.1990, Blaðsíða 28
Hluti af starfi Sigurðar Árnason- ar, krabbameinslæknis, felst í því að fá fólk til þess að hugsa um dauðann. Hann hefur starfað með Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins frá upphafi. Hann hefur áhyggjur af því að samfélagið verði æ tregara til að horf- ast í augu við dauðann, dauðvona sjúkl- ingar séu langtímum saman slitnir úr eðlilegu samhengi við lífið utan spítala- veggjanna meðan þeir bíða þess óumflýj- anlega, og sú bið lengist og lengist fyrir tilverknað nýrra og nýrra tækniundra. Hann verður að berjast við þverstæður starfsgreinar sinnar: Um eins eða tveggja áratuga skeið hafa læknar boðað al- menningi nýja von fyrir tilverknað tækniundra læknisfræðinnar og almenn- ingur hefur látið sannfærast og fagnað. Nú verða hann og aðrir að sannfæra þann sama almenning, að í of mörgum tilfellum sé tækniundrunum aðeins kleift að lengja dauðastríðið. Starfsfélagi hans var ekkert að skafa utan af hlutunum, þegar hann sagði nýlega: „Við erum hættir að leyfa fólki að deyja.“ Það er erfitt að finna stund til að tala við Sigurð. Loks finnur hann hálftíma smugu á sunnudegi og við hittum hann á skrifstofu hans á Landspítalanum. Hann er óhátíðlegur í klæðaburði, og skreytir óheflað málfar sitt latneskum tilvitnun- um í rómversk skáld og keisara. Hann er ekki með neinar málalengingar og kem- ur sér beint að efninu: „Öll erum við haldin eilífum ótta við dauðann, læknar ekki síður en hverjir aðrir almennir borgarar. Öllum er okkur innrætt að bera djúpa virðingu og lotn- ingu fyrir lífinu. Okkur læknum hefur frá upphafi læknislistarinnar verið kennt að okkar hlutverk sé að lækna og varðveita líf. En hvers konar líf? Við megum aldrei missa sjónar af því að líf er eins og hvert annað excrementa bovi (skíta- klessa) nema það hafi sér innihald og til- gang, eigi innra virði fyrir manneskjuna, beri með sér lífsfyllingu og reisn, sé mönnum sjálfum og nánustu samferða- mönnum til gleði og ánægju, en ekki ein- tóm byrði og kvöl. Læknislistin er söm og jöfn og felur í sér að líta á líf sjúklingsins sem heild, en framfarirnar innan læknisfræðinnar bera í sér þá hættu, að við verðum bara lækn- istæknifræðingar: Það er svo miklu auð- veldara í dag að lækna meinsemd í til- teknu líffæri sjúklings, án þess þó endi- lega að gera honum fært að lifa eðlilegu lífi, en að hjálpa honum til að deyja. Hræðsla læknisins sjálfs við dauðann get- ur valdið nokkru um hvaða ákvörðun hann tekur. Stundum getur staða læknis- ins í kerfinu valdið einhverju um ákvörð- un hans. Ef hann er þannig staðsettur að sjúklingurinn kemur honum ekki við nema sem tilfelli, sem hverfur úr hans umsjá og ábyrgð eftir aðgerð, tekur hann ákvörðun sína á sérfræðilegum forsend- um og hagsmunir hans sjálfs geta spilað „Við megum aldrei missa sjónar af því að líf er eins og hvert annað excrementa bovi (skítaklessa) nema það hafi sér innihald og tilgang, eigi innra virði fyrir manneskjuna, beri með sér lífsfyllingu og reisn.“ - Sigurður Árnason krabba meinslæknir inn í: hann fær borgað fyrir aðgerðina og honum kemur lítið við hvað um sjúkling- inn verður eftir það. Þessi möguleiki er sem betur fer sjaldgæfur hér á landi. En vegna þessa er það svo mikilvægt að hafa sjúklinginn sjálfan með í ráðum, eða að- standendur hans, ef hann er ekki sjálfur ákvörðunarfær. Auðvitað er hægt að taka skynsamlegar ákvarðanir án hans, og þá með það huga að líta á vand- ann sem siðferðileg- an vanda alltaf og undir öllum kring- umstæðum. Þetta er upphafið að Hospice-hreyf- ingunni, sem á upp- tök sín í Bretlandi og hefur starfað þar í tvo, þrjá áratugi. Að hverfa frá lækn- ingu sem æðsta boð- orði til líknar, að hver og einn fái að lifa og deyja með fullri reisn og við eins mikla vellíðan og unnt er, án tillits til þess hvort lífsferillinn er í sjálfu sér lang- ur eða skammur, að hverfa frá magni til gæða. Tökum dæmi: Áttatíu og fimm ára gamall sjúklingur hrjáður af margs konar meinsemdum, sem engin líkindi eru til að hann geti læknast af þannig að hann geti komist til þeirrar heilsu, að hann geti haft ánægju af lengingu ævikvölds- ins, fær skyndilega lungnabólgu. Hjúkr- unarfræðingur, sem kannski þekkir ekk- ert til sjúklingsins, kallar til aðstoðar- lækni á vakt. Án þess að ráðfæra sig við einn eða neinn og alls ekki sjúklinginn sjálfan fyrirskipar hann hið sjálfsagða við lungnabólgu, pensillíngjöf. Þetta er miklu auðveldari leið en að ræða við sjúklinginn sjálfan og segja: Sjáðu nú til. Þú hefur ofan á annað fengið lungnabólgu. Við getum mögulega læknað hana til þess eins að þú getir haldið áfram að stríða við önnur banvæn mein. Hverjar eru þínar óskir? Lækningartil- raunin er þarna miklu auðveldari leið og ekki eins tímafrek. Það er fyrst núna á síðustu ár- um að ég er farinn að hafa til þess kjark að gera þetta og ég hef ekki nærri alltaf kjark til þess. En með þessu er verið að taka ráðstöfunarrétt yfir eigin lífi úr höndum sjúklingsins - ráðstöfunarrétt sem að vísu takmarkast af óskum þeirra sem þykir vænt um mann - og færa hann yfir til þér ókunnugs manns, sem fyrir ýmsar tilviljanir hefur gengið í lækna- skóla, en þekkir að öðru leyti hvorki á Magnús Böðvarsson nýrnasérfræðingur og Rafn Benediktsson aðstoðarlæknir ræða við einn af reglulegum sjúklingum blóðskilunardeildar. 28 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.