Heimsmynd - 01.03.1990, Blaðsíða 74
Hjónin Guðrún Jónsdóttir
Sigurður Stefánsson Þórunn Bjarnadóttir í Vigur
og Páll Líndal lögfræðingur
með son sinn Pál Jakob.
Kristín Jónsdóttir
með syni sína Bjarna og Sigurð
listmálari í Kaupmannahöfn
hvert stjörnuhlutverkið af öðru og þótti sýna dæmafáa snilld
og mikla innlifun. Má þar nefna Mörtu í Hver er hræddur við
Virginíu Wolf og Mutter Courage í samnefndu leikriti eftir
Berthold Brecht. Maður hennar var Bjöm Thors, blaðamaður
á Morgunblaðinu. Börn þeirra voru: Kjartan Thors (f. 1945)
doktor í jarðfræði og starfsmaður Hafrannsóknarstofnunar.
Hann þótti efnilegur leikari á skólaárum en sneri frá leik-
listinni. Hann þótti hallast til vinstri í stjórnmálum eins og
Stefán bróðir hans og þótti sumum það illt í efni þar sem hér
voru á ferðinni erfingjar Morgunblaðsins. Fyrri kona var Þór-
unn Klemensdóttir hagfræðingur, sem nú er gift Þresti Ólafs-
syni hagfræðingi, en núverandi kona hans er Ólöf, dóttir
Magnúsar Kjartanssonar, ráðherra og Þjóðviljaritstjóra. Krist-
ín Thors (f.1948) förðunarmeistari við Þjóðleikhúsið. Hennar
maður er Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri Granda hf.,
áður forstjóri Almenna bókafélagsins (sjá Gautlandaættina,
HEIMSMYND 1. tbl. 1990). Hann situr í stjórn Árvakurs, út-
gáfufélags Morgunblaðsins. Stefán Thors (f. 1949). Hann
sýndi óvenjulega leikhæfileika á yngri árum en lærði síðan til
arkitekts og er nú skipulagsstjóri ríkisins, kvæntur Guðrúnu
Gunnarsdóttur vefara. Björn Thors (f. 1950) tæknistjóri Morg-
unblaðsins, sem einnig situr í varastjórn Árvakurs, kvæntur
Bryndísi Lúðvíksdóttur.
HÆGLÁTUR BORGARFULLTRÚI
2. Hulda Valtýsdóttir (f. 1925) var yngri dóttir Valtýs. Hún
hefur verið blaðamaður við Morgunblaðið um langt árabil og
er varaformaður Árvakurs. Hún sá um barnatíma útvarpsins
ásamt Helgu systur sinni á yngri árum og muna margir íslend-
ingar á miðjum aldri eftir flutningi þeirra systra á sögunni um
Bangsimon. Á síðari árum hefur Hulda skipt sér allmikið af
stjórnmálum innan Sjálfstæðisflokksins, þó að hæglát sé, og
var borgarfulltrúi 1982-1986. Hún á sæti í ýmsum nefndum
borgarinnar en mestur er áhugi hennar á umhverfis- og skóg-
ræktarmálum og heldur hún þar uppi merki og langri hefð
innan ættarinnar. Hún er formaður Skógræktarfélags íslands.
Maður hennar var Gunnar Hansson arkitekt sem lést á síðasta
ári. Hann teiknaði meðal annars Morgunblaðshúsið og átti
sæti í byggingancfnd Reykjavíkur. Þá sat hann um árabil í
stjórn Árvakurs. Börn þeirra eru Kristín Gunnarsdóttir (f.
1947), blaðamaður á Morgunblaðinu, kona Stefáns P. Egg-
ertssonar verkfræðings, sem situr í stjórn Árvakurs, Helga
Guðrún Gunnarsdóttir (f. 1953) arkitekt, kona Mikaels Dal
bókmenntafræðings og Hildigunnur H. Gunnarsdóttir (f.
1957) grafíklistamaður. Hennar maður er Ásgeir Haraldsson
læknir.
FJÖRMIKLAR MÆÐGUR
Hulda Stefánsdóttir (1897-1989) var hitt barn Stefáns Stef-
ánssonar skólameistara og þótti fjörmikil ung stúlka og and-
staða bróður síns sem var hæglátari og settlegri. Hún var send
til mennta eins og sjálfsagt þótti í þessari fjölskyldu og var við
nám í húsmæðra- og tónlistarfræðum ásamt tungumálum og
bókhaldi í Danmörku og var síðan um hríð kennari við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri. Hún giftist bóndanum á hinu forna
stórbýli Þingeyrum, Jóni Pálmasyni, og var þar húsfreyja til
1943. Hún var jafnframt skólastjóri Kvennaskólans á Blöndu-
ósi í nokkur ár og síðan Húsmæðraskóla Reykjavíkur og aftur
Kvennaskólans á Blönduósi. Hulda varð háöldruð og í elli
sinni skrifaði hún stórmerkar æviminningar sínar í fjórum
bindum. Ávallt lék nokkur Ijómi um nafn Huldu og hún var
æskuvinkona Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Var lengi
haft á orði að eitthvað hefði verið á milii þeirra og kveikjan að
Dalakofanum mun hafa orðið til í ferðalagi þeirra á hestbaki
frá Skagafirði til Eyjafjarðar sumarið 1919. Þess skal hér getið
að þjóðfræðasafnarinn Olafur Davíðsson, móðurbróðir Dav-
íðs, var kennari þeirra Valtýs og Huldu og vinur þeirra. Mun
hann hafa haft mikil áhrif á þau. Hulda eignaðist eina dóttur.
Hún er Guðrún Jónsdóttir (f. 1935) arkitekt sem um árabil var
forstöðumaður Borgarskipulags Reykjavíkur en varð einna
þekktust fyrir baráttu sína fyrir varðveislu gamalla húsa í
Reykjavík. Hún var forvígismaður Torfusamtakanna og for-,
maður þeirra þegar þau létu mest að sér kveða. Guðrún er
þrígift. Fyrsti maður hennar var Ómar Árnason menntaskóla-
kennari, annar Knútur Jeppesen arkitekt en núverandi maður
hennar er Páll Líndal. lögfræðingur og sagnameistari, fyrrver-
andi borgarlögmaður í Reykjavík.
STJÓRNMÁLASKÖRUNGURINN í VIGUR
Þá er komið að því að segja frá öðrum greinum Heiðarætt-
ar, frá systkinum Stefáns skólameistara og grasafræðings og
afkomendum þeirra. Eldri var Sigurður Stefánsson (1854-
1924), prestur og alþingismaður í Vigur. Hann settist í Lærða
skólann 19 vetra að aldri og lauk þaðan prófi árið 1879. Hann
tók virkan þátt í félagslífi skólans og þar strax byrjuðu að
myndast þeir flokkar sem síðar áttu eftir að elda saman grátt
silfur í íslenskum stjórnmálum. Einn besti vinur hans og sam-
herji varð þá þegar Skúli Thoroddsen en þeir áttu eftir að
verða leiðtogar í andófi gegn „höfðingjaflokknum“ í svoköll-
uðum Skúlamálum sem skóku alla Vestfirði og reyndar landið
allt fyrir hundrað árum. Sigurður var kosinn prestur til Ögur-
þinga árið 1881 og settist að í Vigur nokkrum árum seinna og
eignaðist síðan þá jörð. Hann var mikill búmaður og reisti öll
hús frá grunni í Vigur og standa þau enn með góðum blóma.
Er ævintýri líkast að koma á þetta gamla og búsældarlega
höfðingjasetur í Djúpinu þar sem afkomendur hans ráða ríkj-
um. Séra Sigurður varð skjótlega vinsæll sem prestur og sveit-
arhöfðingi í Djúpinu. Hann þótti málliðugur í samtölum.
74 HEIMSMYND