Heimsmynd - 01.03.1990, Blaðsíða 71

Heimsmynd - 01.03.1990, Blaðsíða 71
Kristín Jónsdóttir listmálari, eiginkona Valtýs. Hulda og Helga Valtýsdætur, fjögurra og sex ára gamlar. Starfsfólk Morgunblaðsins 1933 þegar blaðið átti tuttugu ára afmæli. kona Stefáns, var andstæða bónda síns, smá vexti og hæglát. Hulda Stefánsdóttir, sonardóttir hennar, sagðist efast um að hún hefði nokkum tíma ávarpað mann að fyrra bragði, en þegar á hana hefði verið yrt, hefði verið auðfundið að hún var gáfuð kona og orðheppinn. Hún var skáldmælt eins og hún átti kyn til. Eitt sinn í mikilli ótíð og harðindum varð Stefán bóndi hennar svo argur, er verst horfði, að hann neitaði að lesa húslesturinn. Guðrún, kona hans, varpaði þá fram þessari stöku: Hér er æði fullt með fúss, fást ei ræður þuldar, utan bœði og innan húss eru næðingskuldar. Faðir hennar, Sigurður Guðmundsson, var merkilegur karl. Hann var frægt alþýðuskáld á sinni tíð og hafði hrifist mjög af hugsjónum Baldvins Einarssonar, Fjölnismanna og Jóns Sig- urðssonar. Hann var einn af leiðtogum skagfirskra bænda er þeir fóru að Möðruvöllum 1849 og hrópuðu niður hinn dansk- sinnaða og íhaldsama amtmann, Grím Jónsson. Var það ein af fyrstu pólitísku þjóðfrelsishræringum hér innanlands. Sig- urður var á Heiði í elli sinni og kenndi þá dóttursyni sínum, Stefáni Stefánssyni, að hafa opin augu fyrir náttúrunni í kring- um sig og dýrð hennar. Alla tíð síðan hefur þessi ætt verið annáluð fyrir áhuga sinn á blóma- og trjárækt. Og margir af ættinni hafa einnig fært fegurð náttúrunnar með penslum á mynd. í henni eru þekktir listmálarar en einnig arkitektar og leikarar. Þau hjón á Heiði eignuðust sjö börn en aðeins þrjú þeirra komust upp. Af þeim, sem létust, dóu þrjú sama sólarhring- inn úr barnaveiki. Af þeim þremur, sem komust til fullorðins- ára, er mikill og frægur ættleggur sem hér verður rakinn nokk- uð. SKÓLAMEISTARINN Fyrst barnanna verður talið upp það yngsta, Stefán Stefáns- son (1863-1921). Honum var snemma haldið til bókar og fimmtán ára gamall settist hann í Lærða skólann í Reykjavík. A skólaárum sínum fékkst hann nokkuð við skáldskap og skrifaði nokkrar rómantískar smásögur. Hugur hans hneygðist mjög til náttúrufræði, sem ekki var algengt um þær mundir enda náttúrufræði hornreka í skólakerfinu. Tvítugur að aldri ferðaðist hann sumarlangt um Reykjanesskagann sem aðstoð- armaður hins víðkunna náttúrufræðings, Porvalds Thorodd- sens (sjá Thoroddsenætt, HEIMSMYND nóv. 1989). Næsta ár sigldi Stefán til Kaupmannahafnar og hóf nám í náttúrufræði. Jafnframt námi tók hann virkan þátt í félagslífi íslenskra stúd- enta þar og varð höfuðpaur í Velvakandahópnum sem stefndi að hálfgerðri uppreisn á íslandi gegn hinu danska valdi. A menntaskólaárum hafði hann samið leikritið Prófastsdótturina ásamt æskufélaga sínum, Valtý Guðmundssyni, og var það fært upp þar og síðan í Kaupmannahöfn. Sjálfur lék Stefán að- alhlutverkið en leikhæfileikar eru áberandi í þessari ætt og nægir þar að minna á Harald Björnsson, systurson Stefáns, og Helgu Valtýsdóttur, sonardóttur hans en að þeim verður vikið síðar. Kaupmannahafnardvöl Stefáns varð endaslepp því að árið 1887 losnaði kennarastaða við gagnfræðaskólann á Möðru- völlum í Hörgárdal og Stefáni bauðst hún. Vildi hann ekki láta slíkt tækifæri úr höndum ganga, þó að skólanámi væri ekki lokið, og sló til. I’egar Stefán kom að Möðruvöllum var skólinn þar nánast í andaslitrum og aðeins sjö nemendur þar. Svo virðist vera sem koma Stefáns að skólanum hafi virkað eins og vítamínsprauta á hann því að brátt tók nemendum að fjölga við hann enda ber heimildum saman um að Stefán hafi verið frábær uppfræðari. Hann var kosinn á þing árið 1900 og eitt af fyrstu verkum hans þar var að beita sér fyrir því að nýtt skólahús yrði reist og að þessu sinni á Akureyri. Virðist hann þá þegar hafa haft í huga að skólinn yrði, þegar fram liðu stundir, gerður að menntaskóla. Stefán Stefánsson átti því mestan þátt í að hið glæsilega hús Menntaskólans á Akureyri var reist og getur með nokkrum hætti kallast faðir hans þó að ekki lifði hann þann dag að skólinn fengi rétt til að útskrifa stúdenta. Stefán Stefánsson tók við stjórn Gagnfræðaskólans á Akureyri árið 1908 og gegndi skólameistarastöðu til æviloka. Hann vann ekki hug nemenda sinna með kennslunni einni saman heldur var hann einnig félagi þeirra, leikbróðir og ráðunautur. Margir af nemendum hans urðu síðar í farar- broddi íslenskra þjóðmála og má þar nefna Jónas frá Hriflu sem mun hafa orðið fyrir miklum áhrifum frá Stefáni. STJÓRNMÁL OG FLÓRA ÍSLANDS Þingmennsku Stefáns má skipta í tvö tímabil. Hann var kjörinn þingmaður Skagfirðinga á árunum 1900 til 1908. Arið 1907 urðu þáttaskil í stjórnmálaferli hans. Hann var þá kjör- inn af sjálfstæðismönnum í nefnd þá sem semja skyldi við Dani um samband íslands og Danmerkur. í þeim samningum fylgdi hann Hannesi Hafstein úr Heimastjórnarflokknum og varð viðskila við flesta samherja sína. í öllu gerningaveðrinu sem fylgdi svokölluðu uppkasti var hann felldur út af þingi ár- ið 1908. Skömmu síðar skipaði Hannes Hafstein hann einn af HEIMSMYND 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.