Heimsmynd - 01.03.1990, Page 78

Heimsmynd - 01.03.1990, Page 78
n hvað sem líður samanburði við aðrar þjóðir er það stað- reynd að í velferðarríkinu ís- landi eru stórir hópar fólks sem ekki búa við mannsæm- andi kjör á okkar mælikvarða. Og hvers mega sín frasar eins og jafnrétti til náms þegar afkoma heim- ila er slík að börnin verða að fara út á vinnumarkaðinn strax að loknu skyldu- námi og helst fyrr til að létta undir með foreldrunum? Hversu langt er í það með sama áframhaldi að framhaldsmenntun verði aftur forréttindi þeirra ríku? Er ekki með þessari lág- launastefnu verið að koma á fastri stétta- skiptingu til fram- búðar? ÁTTA í SÖMU ÍBÚÐ í þriggja her- bergja blokkaríbúð í Breiðholtinu býr par á fertugsaldri með þrjú börn konunnar frá fyrra hjóna- bandi. Við skulum kalla þau Óla og Stínu, en þau vildu ekki fyrir nokkra muni að rétt nöfn þeirra kæmu fram. Óli vinnur verka- mannavinnu og fær þegar best lætur sjö- tíu þúsund í launa- umslagið þegar búið er að draga frá skattana. Stína er heima með börnin. Hún hefur enga menntun og á erfitt með að fá aðra vinnu en þá lægst launuðu. Ef hún færi að vinna við þau störf sem hún á möguleika á, skúringar eða sem starfsstúlka á barnaheimili þá þyrfti hún að fá dagmömmu fyrir börnin og kaupið hennar mundi ekki duga til að borga henni. Þau leigja þessa þriggja herbergja blokkaríbúð á fjörutíu þúsund á mánuði, eiga engan bíl og innanstokks- munir eru hvorki margir né íburðarmikl- ir. Stína fær meðlag með börnunum. rúm tuttugu þúsund á mánuði, þannig að eftir að húsaleigan hefur verið greidd hefur fjölskyldan fimmtíu þúsund í ráð- stöfunartekjur. Það gengur ekki upp og því gripu þau til þess ráðs fyrir tveimur mánuðum að taka inn á sig systur Stínu, mann hennar og barn. Þau eru bæði úti- vinnandi og borga helminginn af húsa- leigunni, en í staðinn ætlast þau ekki ein- ungis til þess að hafa afnot af öðru svefn- herberginu, eldhúsinu og stofunni, heldur hefur það komið í hlut Stínu að vera húsmóðir fyrir allan hópinn, baka og elda ofan í átta manns, þrífa og þvo. Samkomulagið er ekki sem best eins og nærri má geta þegar fjórir fullorðnir og fjögur börn búa saman í þremur her- bergjum. Börnin eru óánægð og sírell- andi og sambúðin hangir á bláþræði. Ástandið er bara tímabundið segja þau Stína og Óli, bara á meðan systirin og mágurinn eru að bíða eftir íbúð hjá bæn- um. Hvernig þau ætla þá að komast af vita þau ekki, en kannski reynir Óli að komast á sjó, eða Stína tekur börn í dag- gæslu. Þau eru þó ekkert mjög vongóð. Að eignast eigið húsnæði er draumur sem þau láta varla eftir sér að dreyma. Það þyrfti þá helst að vera í Verka- mannabústöðum og þau eru ekki alveg Börnin verða taugaveikluð, samlagast illa félögunum og verða viðlöng skólasálfræðinga. kassastörf í búð .ún hefur ekki keypt sér flík í tvö ár og fæðið samanstendur af spaghettí með tómatsósu, hafragraut og súrmjólk. sátt við þá leið. Þrátt fyrir baslið finnst þeim það niðurlægjandi að leita sér að- stoðar eða fara inn í eitthvert félagslegt kerfi. Þau vilja bjarga sér af eigin ramm- leik og trúa því og treysta að á einhvern hátt muni það takast í framtíðinni. Sú trú fleytir þeim yfir erfiðustu hjallana. AÐ VERA AUMINGI Hún er þrjátíu og fimm ára og varð ör- yrki fyrir tveimur árum. Þá var hún nýbúin að festa kaup á lítilli risíbúð og hafði í bjartsýniskasti látið sig dreyma um að það dæmi gæti gengið upp, þótt hún væri á Sóknartaxta. En örorkan setti strik í reikninginn. Nú mátti hún ekki lengur vinna og lagðist í þunglyndi sem leiddi af sér sjálfsmorðstilraun. Henni var bjargað og var eftir það í árs meðferð á göngu- deild geðdeildar Borgarspítalans. En geðmeðferð dugar skammt þegar fram- færsluféð er ekki nema þrjátíu og átta þúsund á mánuði; fullar örorkubætur, tekjutrygging og heimilisuppbót. Hún gat ekki staðið í skil- um með afborganir af íbúðinni og þótt hún kyngdi stoltinu og sækti um lán hjá Félagsmálastofnun var henni synjað á þeim forsendum að þeir lánuðu ekki fé til eignamyndunar. Hún fékk bankalán með veði í húsi syst- ur sinnar, gat ekki staðið í skilum og varð þess valdandi að hús systurinnar lenti á nauðungarupp- boði. Hún seldi íbúðina til að aflétta veðinu, en sat eftir á götunni með tæpar tvö hundruð þúsund krónur í skuld að þeirri sölu lokinni. Hvernig hún á að greiða það niður er henni hulin ráðgáta. Hún leigir nú kjallaraherbergi í Vest- urbænum á fimmtán þúsund krónur á mánuði, eldar á lítilli plötu og reynir að láta þessar tuttugu og þrjú þúsund krón- ur sem afgangs eru hrökkva fyrir nauð- synjum og afborgunum af láninu. Henni finnst hún baggi á þjóðfélaginu og skammast sín í hvert skipti sem hún þarf að fara í strætó, því farmiðar öryrkja eru bláir, öðruvísi en „venjulega“ fólksins og henni finnst allir stara á sig á meðan hún lætur miðann detta. Hún hefur ekki keypt sér flík í tvö ár og fæðið saman- stendur af spaghettí með tómatsósu, hafragraut og súrmjólk. En það finnst henni ekki það versta. Verst er að geta ekki unnið. Að vera aumingi. Lífslöngunin er engin. Hún situr mest- 78 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.